Alþýðublaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 9
Dularfullur, pólskur her- foringi glatar her sfnum TÍMAMÓT hafa orðið í Póllandi. Yfirvöldin hafa ákveðið að leggja niður pólitískan her landsins á þeirri forsendu að nú sé svo kom- ið aö hann hafi við engin vanda- mál að stríða í sambandi við ör- yggi innanlands. Þar með lýkur tímabili í sögu landsins. Pólverjar hafa rofið síðustu tengslin við hina istalinistísku fortíð sína. Menn úr innanlandsöryggissveit unum og landamæraverðinum eru nú undir venjulegri stjórn hersins og landvarnaráðuneytisins. Áður voru þeir undir stjórn innanríkis- ráðuneytisins. MOCZAR HERSHÖFÐINGI — valdamikill að tjaldabaki Þessar breytingar á völdunum virðast hafa orðið þeim 45.000 mönnum, sem hér eiga hlut að máli, mikið áfall. Á einni svip- stundu glötuðu þeir sérstöðu sinni og fréttir um megna óánægju hafa borizt til liöfuðborgarinnar. Sumir liðsforingjar óhlýðnuðust bersýnilega að lesa dagskipunina fyrir hermönnum sínum. bæla niður óeirðir á ýmsum stöð- um er áttu rót sína að rekja til trúmála, einkum í nágrenni Kra- kow vorið 1960. Dularfullur herforingi Helztu pólitísku áhrif sameining ar öryggissveitanna og hersins hafa verið þau, að athygli manna hefur á ný beinzt að. hinum dul- arfulla hershöfðingja Moczar. Þótt hann hafi sem yfirmaður innanrík- isráðuneytisins misst yfirráð sín yfir öryggissveitunum og landa- mæraverðinum, stjórnar hann lög- reglusveitunum og hjálparsveitum þeirra. Hann er einnig yfirmaður gagnnjósnasveitanna, sem miklu fé er kostað til. Auk þessara starfa er hann al- mennt talinn, bæði í Póllandi og erlendis, leiðtogi stjórnmálasam- taka, er ganga undir nafninu „partisanar". Partisanarnir fengu leikni í hermennsku þegar þeir börðust gegn neðanjarðarsamtök- um vinstri sinna á pólskri grund í heimsstyrjöldinni síðari. Þar sem þeir börðust í Póllandi og ekki með pólskum hersveitum, sem komið var á fót á sovézkri grund, hafa þeir fengið á sig annan stimpil, sem sé þann að þeir séu „þjóöernissinnar". En enga algilda, pólitíska skil- greiningu er hægt að gefa á partis- önunum. Enginn getur verið viss um hvaða stefnu þeir mundu fylgja í stjórnmálum ef þeir kæm ust til valda. Samtök þeirra geta að áliti ýmsra ráðið úrslitum um stjórnmálaþróunina innanlands á- samt kaþólsku kirkjunni og menntamönnum. Talið er, að bað sem verður um áhrif þeirra, hvort þau aukast eða minnka, endur- spegli grundvallarákvarðanir, sem áhrif hafa á alla framtíð landsins. Önnur samtök Ekki alls fyrir löngu tók Mocz- ar hershöfðingi einnig við stjórn samtaka pólskra uppgjafaher- KASTLJÖ manna (sambands baráttumanna frelsis og lýðræðis). Á undanförn- um mánuðum hefur félagatala samtaka þessara aukizt úr 170.000 í 200.000. Tilgangur þeirra er að sameina alla þá, sem börðust á stríðsárunum, og fjölskyldur þeirra á bak við flokkinn og auka áhrif sín um allt landið. Hershöfð- inginn hefur gefið þá skilgrein- ingu á samtökunum, að þau séu vakandi afl í stjórnmálunum er sameini samfélagið um fram- kvæmd verkefna flokksins. Moczar er sagður hafa stuðlað að því að sætta þá Pólverja, sem börðust með hinum fjölmenna heimaher hægrisinna í Póllandi á stríðsárunum og félaga úr neðan- jarðarhreyfingu kommúnista, Al- þýðuhernum, sem var miklu fá- mennari en fékk allt hrósið eftir styrjöldina er hann kom fram í dagsijósið. 1 Frh. á 10. síffu. Rányrkja í livalveiðum Gegn Úkraníumönnum Þegar svéitir úr pólska hernum sóttu inn í rústir Berlínar 1945 hafði þegar verið ákveðið að velja beztu mennina úr þessum sveitum I í öryggissveitir, sem halda skyldu uppi lögum og reglu í Póllancfi. Þessir menn úthelltu brátt blóði sínu í fyrsta skipti í Póllandi eft- ir styrjöldina. Þeir voru fluttir í járnbrautarlestum og flutninga- bifreiðum til hinna þéttu skóga suðausturhluta Póllands og að- stoðuðu lierinn í grimmilegri her- ferð á árunum 1946 og 1947 gegn úkraínskum skæruliðum, sem streymdu yfir sovézku landamær- in með rússneskar hersveitir á hælunum. Næst reyndi á öryggissveitirn- ar 1956 þegar Gomulka kom fram á sjónarsviðið og tök völdin i sínar hendur gegn vilja valdhaf- anna í Kreml. Sovézkar hersveit- ir voru þess albúnar að sækja til Varsjá og menn úr öryggissveitun- um umkringdu höfuðborgina. En aldrei kom til átaka. Síðan þetta gerðist hafa öryggissveitirnar fangizt við venjuleg skyldustörf nema hvað þær aðstoðuðu við að ÞESS gerist brátt þörf að setja almennar reglur og koma á eftir liti með hvalveiðum í heiminum Þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir vísindamanna hefur mikið fé ver ið lagt í nýjar hvalveiðifram kvæmd og hvalstofninn þolir ekki auknar veiðar. Eigi hvalveiðar að halda áfram, verður að gera ráðstafanir til að takmarka þær, segja sérfræðingar matvæla- og landbúnaðarstofnunar (FAO). Á fundj með fulltrúum frá A1 þjóðahvalveiðinefndinni í Lundún um um síðustu mánaðamót sagði Sidney Holt, yfirmaður fiskideild ar FAO, að stofnunin hefði fagn að þeirri ákvörðun, sem hvalveiði nefndin tók nýlega, að takmarka enn hámarksafla hvalveiða á næs tu árum, en hins vegar kvaðst hann harma að ákvörðunin tæki ekki til allra hvalategunda- Til að ná samkomulagi hefði nefndin orðið að fallast á ótakmarkaðar veiðar tveggja hvaltegunda. Hvalveiðar eru miðaðar við blá hvali, þannig að hver bláhvalur jafngildir tveimur hvölum af ann arri tegundinni sem leyfð er ó takmörkuð veiði á (Langreyður) og sex af hinni. Nefndin hefur lagt til, að hámarksveiðin á ver tíðinni 1965—66 verði 4500 blá hvalir en á síðustu vertíð voru veiddir 7000 bláhvalir. Árum saman hefur hámarkið verið alltof hátt, og hefur það ver ið fóðrað með því að fjárfestingin sé svo mikil. Samt sem áður hafa flestar hvalveiðiferðirnar ekki gef ið ágóða sem svaraði til hinnar miklu fjárfestingar, sagði Holt og hann sagði að FAO liti svo á að nauðsyn bæri til að reikna út hve hvalastofninn væri stór á næstu tveimur árum, og væri stofn unin reiðubúin að eiga samvinnu við hvalveiðinefndina í þessu brýna máli. Skriístofa og verkstæöi Kirkjugarða Reykjavíkur verða lokuð fyrir- hádegi í dag, vegna jarðarfarar Guðmundar _ Helgasonar. / /erðo/ag/ð Ódýrar stretchbuxur Verðlækkun Unglinga- og fullorðinsstærðir. VERÐ AÐEINS KR. 395.00 loCsöirN Aðalstræti 9. — Sími 18860. Áskriftasíminn er 14900 Bifreiðaeigendur athugið! Tökum að okkur viffgerðir á flestum gerðum bif- reiða. — Kappkostum að hafa sem bezta og örugg- asta þjónustu. — Pantið tíma í síma 37534. Reyniff viffskiptin. Bifreiðaverkstæðið STIMPILL Grensásvegi 18. Veiðimenn! Aldrei fyrr hafa svo vandaffir veiffijakkar veriff fáanlegir hér á landi. Þaff bezta er þó aldrei of gott. Komiff og sjáiff. Vinnufafabúðin Laugavegi 76. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. júlí 1965 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.