Alþýðublaðið - 28.09.1965, Blaðsíða 5
LAUS STAÐA
Staða aðstoðarmatráðskonu á sjúkrahúsinu
Sólvangi, Hafnarfirði, er laus til umsóknar.
Laun samkivæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir sendist skrifstofu Sólvangs fyrir
15. október n.k.
Sólvangur.
LAUS STAÐA
Staða bókara I hjá Bæjarsímanum í Reykja-
vík er- laus til umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa góða leikni í vél-
ritun og kunnáttu í ensku og einu norður-
landamáli.
Umsóknir- sendist póst- og símamálastjórn
fyrir 5. október 1965.
Reykjavík, 27. september 1965.
Póst- og símamálastjórnin.
Minningarorð:
Eiríkur Eiríksson
skipstjóri frá Breiðinni
Nú opnar fangið fóstran góða
og faðmar þreytta barnið sitt,
Bvo sagði Þorsteinn Erlingsson
skáld.
EIRIKUR EIItÍKSSON
Þeir hafa margir farið þreyltir
að hátta að enduðum æfidegi,
drengirnir, sem fóru að róa á ára-
bátunum á síðasta tug nítjándu
aldarinnar, og hafa komizt til
hárrar elli, því þeir eiga margir
hálfrar aldar sjómennskuferil að
baki sér.
Líklega eitthvert erfiðasta tíma-
bil hjá íslenzkum sjómönnum.
Einn af þessum mönnum verður
til grafar borinn í dag, Eiríkur Ei-
ríksson skipstjóri frá Breiðinni.
Hann var fæddur á Akranesi að
bænum Breið 30. apríl 1879, sonur
hjónanna Ingveldar Einarsdóttur
og Eiríks Tómassonar sjómanns, en
föður sinn sá Eiríkur aldrei, því
hann drukknaði tveimur mánuðum
áður en hann fæddist. Hann ólst
upp með móður sinni og stjúpa,
Jóni Guðnasyni, þar til hann fór
til Reykjavíkur 1902 og ætlaði sér
að læra trésmíði, því hann var hag-
ur vel, en sjómennskan varð þar
yfirsterkari.
Ég býst við að lát hans færi fram
hjá eldri sjómönnum, ef hann
væri ekki kallaður Eiríkur á Breið-
inni, en undir því nafni gekk hann
frá æsku til æfiloka. Hann lézt að
Ilrafnistu 20. sept, 1965, þá farinn
að kröftum.
Mín fyrstu kynni af þessu nafni
voru bundin þrennskonar eiginleik
um, í fyrsta lagi að hann væri frá-
bær dráttarmaður á færi, í öðru
lagi að hann væri sterkari en al-
mennt gerist og í þriðja lagi að
hann væri orðvar stillinga og geð-
spektarmaður. Þessu öllu átti ég
eftii- að kvnnast áþreifanlega nema
færafiskiríinu, því okkar samvera
byrjaði á togara og hélzt hún nær
óslitið um 20 ára skeið, og naut
ég í ríkum mæli þessara kosta
hans.
Hann byrjaði um fermingarald-
ur að róa á árabátum, fór síðan á
skúturnar, þegar þær komu til
sögunnar, eins og margir ungir
menn fór hann á Stýrimannaskól-
ann og lauk þaðan fiskimannaprófi
árið 1905 og var síðan stýrimaður
og skipstjórl á skútunum nær ó-
slitið fram undir 1920, en þá fór
þeirri útgerð að hnigna, og fór
ALLTAF FJÖLGAR V0LKSWAGEN
Er langt síðan þér hafið ekið Volkswagen?
eða
— Ókuð þér í gær?
.. . fyrir tíu vikum síðan?
. . ? fyrir fimm árum
hafið þér kannske aldrei ekið Volkswagen?
Ef það eru meira en ár síðan, þá ættuð
þér að skoða Volkswagen vandlega. Sá Volks-
wagen sem við bjóðum nú er fullkomnari að
Öllum búnaði
Sýningarbtiar á staðnum
Ef þér viljið reyna Volks wagen þá er nú tækifærið,
— auðvitað yður algjörlega að kostnaðarldusu, nema
þér verðið að hafa samb^nd við okkur og panta
tíma. Þegar eftir reynsluferðina hafið þér sjálfur
kynnst V. W. og þessvegna verður valið auðveldara
en áður og svo er varahlutaþjónusta Volkswagen
þegar Iandskunn.
VoSkswagem iSðO TL
Fasiback
VerS ca. kr. 20S þús.
Vclkswagen Í300
Verk kr. 149.800
Eiríkur yfir á togai’ana. Á þeim var
hann fram til 1938, en fór þá í land
eftir 47 ára veru á sjónum, og eft-
ir það vann hann alla algenga
vinnu í landi meðan heilsa og kraft
ar entust, lengst af lijá Bæjarút-
gerð Reykjavíkur.
Akranes hefur miðlað íslenzkri
sjómannastétt mörgum góðum
drengnum og var Eiríkur á Breið-
inni einn af þeim og til gamans
vil ég geta þess að hann var síð-
astur lifandi af þeim Kátu körlum
á Kútter Haraldi, sem hin þjóð-
kunna vísa getur um, og að líkind-
um við burtför Eiríks mun nú vera
hægt að finna tvo skútuskipstjóra
á lifi.
Hann giftist 23. október 1910 eft-
irlifandi konu sinni Guðrúnu Ei-
ríksdóttur frá Eiríksbæ hér í borg,
og hér hafa þau búið allan sinn bú-
skap. Þeim varð þriggja barna auð-
ið, sem öll eru á lífi. Soffíu sem er
búsett í Borgarnesi, Sigurbjörgu
búsetta á Seltjarnarnesi og Gunn-
Laugavegi
170-172
ar húsasmíðameistara búsettan hér
í borg.
Guðrúnu ekkju Eiríks, sem nú er
þrotin að heilsu og er á sjúkra-
deild Hrafnistu og börnum þeirra
votta ég mína fyllstu samúð og svo
að endingu þegar Eiríkur er lagð-
ur upp í hinztu ferðina, þakka ég
honum af alhug alla samveruna og
hans traustu handtök og að Guð
ieiði hann til öruggrar friðarhafn-
ar.
Nikulás Kr. Jónsson.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. sept. 1965 5