Alþýðublaðið - 28.09.1965, Blaðsíða 14
AFTÖKUR í
S-VIETNAM
Saigoir, 27. september
(NTB — Reuter)
Forsætisráðherra Suður-Vietnams,
Nguyen Cao Ky flugmarskálkur,
lýsti því yfir i dag, að hryðjuverka
tnenn Vietcong yrðu líflátnir i
framtíðinni. Flestar aftökurnar
munu fara fram í kyrrþei, en sum-
ar fara opinberlega fram til þess
að verða öðrum til varnaðar, sagði
Ky.
Útvarpsstöð Vietcongs hermdi
um helgina, að tveir Bandaríkja-
menn, höfuðsmaður og liðþjálfi,
hefðu verið teknir af lífi. Þeir
voru ákærðir um fjöldamorð og
aðra glæpi. í Saigon er talið að
menn þessir hafi verið líflátnir í
hefndarskyni við aftökur þriggja
hryðjuverkamanna Vietcongs við
Da Nang 22. september. Bandarísk-
ur formælandi sagði, að ekkert
gæti réttlætt aftökur Bandaríkja-
mannanna, en hins vegar hefðu
hryðjaverkamennirnir verið dæmd
ir samkvæmt suður-vietnamískum
lögum.
SÓKN 6EGN UPP-
REISNARMÖNNUM
Fimm yfirheyrðir
Kvík, — ÓTJ.
FI3XM íslendingar hafa verið tekn
ir til yfirheyrslu vegna þjófnað
ar sem framinn var uni borð í
Kronprins Olav I fyrrinótt, þar
Sem skipið lá í Reykjavíkurhöfn.
Innsiglaður vínskápur hafði verið
hrotinn upp, og stolið þaðan 17
áfengisflöskum. Magnús Eggerts
Son hjá rannsóknarlögreglunni,
fiem hefur með málið að gera, sagði
Alþýðublaðinu í gærkvöldi að yfir
heyrslur stæðu enn yfir, og þvi
ckkert hægt að segja nánar, að
sinni.
Leopoldville, 27. 9. (NTB-
Reuter.)
Stjórnin í Kongó beitir flugher
og landher í viðtækrl sókn gegn
síðustu meiriháttar bækistöð upp
reisnarmanna í Austur-Kongó. Að
gerðir þessar hófust um helgina
og eru hinar umfangsmestu sem
um getur í liinni löngu baráttu
gegn uppreisnarmönnum, að því er
góðar heimildir herma.
Fótgöngulið 2.000 manna er kom
ið til bæjarins Lulimba, miðja vegu
milli herstöðvarinnar í Albertville
og bækistöðvar uppreisnarmanna
bæjarins Fizi við Tangaynykavatn.
Stjórnarhersveitimar hafa enn
ekki mætt mótspyrnu. Framvarð
arsveitin er skipuð 350 enskumæl
andi málaliðum undir stjórn Mike
Hoare ofursta. Kongóskar T-28 orr
ustuvélar aðstoða sveitirnar og ráð
ast á stöðvar uppreísnarmanna í
f jöllunum og varðskip eru á sveimi
á Tangaynykavatni.
Uppreisnarmenn, sem eru 3.000
talsins á þessum slóðum, tóku
Fizi 1964.Kongóska leyniþjónuat-
an liermir, að uppreisnarmönnum
hafi borizt vopn frá Tanzaníu og
Burundi. Svokallaðir erlendir
ráðunautar eru I liði uppreisnar-
manna, m.a. nokkrir Kúbumenn
og Kínverjar.
Námskeið...
Framhald af 3- síðu.
námskeiðs fyrir hlutaðeigandi
kennara eigi síðar en sumarið 1966
og yrði þá auglýst með nægum fyr
frvara.
Menntamálaráðuneytið,
27. september 1965.
Jafnaðarmenn...
Frh. af 1. síðu.
hvítbók sína um málið. Tillagan
verður rædd á morgun. Hugsanlegt
er, að stjórnin slaki nokkuð til en
hún vill ekki hagga tölu þeirra
innflytjenda, sem leyft verður að
koma til Bretlands, en hún er 8.
500 á ári.
iliðnætursk....
Framhald af siðu 3.
ar vakið sérstaka athygli enda er
sýning þeirra mjög fjölbreytileg
Öll leika þau á hljóðfæri og syngja
Lögin eru allt frá völsiun í nýj-
ustu bítlalögin, ætti því að vera
eitthvað fyrir alla á miðnætur-
skemmtuninni.
Á skemmtuninni koma einnig
fram Savannatríóið, sem þá leik
ur nokkur lög eftir einn með
limanna, Þóri Baldursson. Þá mun
Hermann Ragnar sýna nýjustu
dansana og að lokum spilar bitla
hljómsveitin Dátar.
Fyrir skemmtuninni standa þeir
Hilmar Helgason og Róbert A.
Kristiánsson, forráðamenn veit
ingahússins Lido. Næstu fjögur
kvöld eftir miðnæturskemmtunina
munu The Dave Bunker Show
skemmta í Lido. Þau kvöld verða
einkum ætluð fyrir unglinga og að
veniu verða þar alls kvns veiting
ar en ekki áféngi. Þar mun hópur
inn leika lög og spila eftir beiðn
um frá gestunum, enda kunna
bau nervrini laga og dansa. svo ó
hætt mun vera að panta næstum
hvað sem er nema rímnakveð-
skao.
. . .
Framhald af 2 sfðu
rnnqur. í daa va.r Au.ita Ek-
hnrq síðan dtpmd t.il að
nrotfla hót.plrpikninninn i
Y°tad. 1.044 krnnur. Hún
h"fði ekki arpitt. reik.ninainn
aa bnrið því við að kvik-
mimdafélaaið æt.t.i að gera
heð. Dómarinn var á öðru
vn.nli.
Ka«mír...
Framhald af 1. síðu.
lag næðist með heröflum Ind-
lands og Pakistans. Hann gagn
rýndi U Thant fyrir að hafa ein
ungis áhuga á vopnahléi og brott
flutningi hersveita, en Pakistanar
vildu heiðvirða lausn á Kasmírmál
inu, sem væri undirrót deilunnar.
Forseti Öryggisráðsins, banda-
ríski SÞ sendiherrann Arthur Gold
berg kallaði meðlimi ráðsins sam
an í dag til óformlegra viðræðna
um brotin á hinum 5 daga gamla
«x>0000000000000000000000 v>00000000< 'XXXXXXX •• '<xx>-
útvarpið
Þriðjudagur 28. september
7.00 Morgunútvarp,
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Síðdegisútvarp.
17.00 Fréttir — Etadurtekið tónlistarefni.
18.30 Harmonikulög.
18.50 Tilkynningiar. — 19.20 Veðiu-fregnir.
19.30 Fréttir.
200.00 Daglegt mál
Svavar Sigmundsson stud. mag. flytur þátt-
inn.
20.05 Þjóðlög frá Bretlandi:
Katlileen Ferrier syngur; Phyllis Spurr leik
ur með á píanó.
“t-
20.15 Þriðjudagsieikritið: „Konan í þokunni"
eftir Lester Powell.
Þýðandi: Þorsteinn Ö. Stephensen. Leik-
stjóri: Helgi Skúlason.
Fjórði þáttur.
20.55 „Snædrottningin“, leikliústónlist op. 12 eftir
Tjaikovský.
Kór og hljómsveit rússneska útvarpsins
flytur. Alexander Gauk stjórnar.
21.30 Fólk og fyrirbæri
Ævar R. Kvaran segir frá.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Afbrýði" eftir Frank O'Connor
Þýðandi: Sigurlaug Björnsdóttir.
Guðjón Ingi Sigurðsson les (1).
22.30 „Syngdu meðan sólin skín“
Guðmundur Jónsson stjórnar þætti með mis-
léttri músik.
23.20 Dagskrárlok.
000000000000000000<000000<000000000000000000000000<
INNRITAÐ verður í Miðbæjarskólanum til föstudagsins
1. október í 1. stofu (gengið inn um norðurdyr), kl. 5—7
og 8—9 síðdegis.
Velja má eina námsgrein eða fleiri.
INNRITUNARGJALD er kr. 250.00 fyrir bóknámsflokka
og kr. 400,00 fyrir verknámsflokka. Kennsla fer fram Á
KVÖLDIN kl. 7,45—10,20 í bóklðgum greinum en 7,30—
10,30 i verklegum greinum. í hverjum flokki verða
kenndar tvær kennslustundir á viky sín hvorn vikudag
(nema sniðteikning, kjólasaumur, barnafatasaumur, leik-
húskynning, foreldrafræðsla, sálfræði, íslenzka fyrir
útlendinga, algebra, bókmenntir, bókfærsla og þýzka
3. fl. tvo samliggjandi tíma einu sinni í viku).
Kennsla hefst mánudaginn 4. október. — Síðasti
kennsludagur 31. marz.
BÓKNÁMSFLOKKAR: íslenzka (1.—2. fl.), danska
(1.—5. fl.), enska 1,—6. fl.), þýzika (1.—3. fl.). franska
(1.—2. fU, spánska (1.—2. fl.), reikningur (1.—2. fl.),
algebra, bókfænsla (1.—2. fl.), islenzka fyrir Englend-
iniga, Þjóðverja og Dani (1.—2. fl.), foreldrafræðsla
(1.—2. fl.), sálfræði, leikhúskynning, bökmenntakynn-
inig.
Englendingar kenna ensku 1. D, 2. D, 3. B, 4. B, 5. B og
6. — Danir kenna dönsku 4. og 5.
VERKNÁMSFLOKKAR:: Ritvélar og saumavélar eru til
afnota í tímunum). Vélritun, föndur, bamafatasaumur,
kjólasaumur, sniðteikning.
Stundaskrár og upplýslngablöð lilggja frammi við inn-
ritun. — Innritunargjald greiðist við innritun.
(Gjörið svo vel að geyma þessa auglýsingu )
vopnahléssamningi. Svipaður fund
ur var haldinn áður en Öryggis
ráðið skoraði einróma á Indverja
og Pakistana að fallast á vopnahlé.
Forsætisráðherra Indlands, Lal
Bahadur Shastri, asgði á fundi í
stjóm Kongressflokksins í dag, að
SÞ mætti ekki hafa eftirlits sveit
ir á indverskri grund, að því er
góðar þeimildir herma i Nýju
I Delhi. Shastri kvaðst hafa skýrt
, U Thant frá þessu. Shastri sagði
| að eftirlitsmenn þeir, sem SÞ
hefðu nú skipað, hefðu sömu stöðu
og þeir, sem skipaðir voru 1949
þegar markalínan var dregin.
VS
Eiginimaður minn
Guðmundur Vilhjálmsson
fyrrverandi framkvæmdastjóri
andaðist í Lendsspítalanum sunnudaginn 26. september.
Kristín Thor Vilhjálmsson.
Alúðar þakkir vottum við öllum þeim mörgu, er sýndu okkur
samúð og vináttu við andiát og jarðarför eiginkonu minnar, - móð-
ur - tengdamóður og ömmu
Emilíu Björg Pétursdóttur
Krístinn J. Markússon
dætur, tengdasynir og barnabörn.
14 28. sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ