Alþýðublaðið - 13.10.1965, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.10.1965, Blaðsíða 1
MiSvikudagur 13. október 1965 - 45. árg. - 230. tbi. - VERÐ 5 KR. stefnuyfiiiýsing ríkisstjórnarinnar í*að var margi um manninn á fundi Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur í Iðnó í gærkveldi. Formaður félagsins Erlendur Vilhjálmsson setti fundinn og bauð sérstaklega velkomna þá Stefán Jóhann Stef ánsson fyrrverandi formann Al- þýðuflokksins og Emil Jónsson nú verandi formann flokksins. ooooooooooooooo< Reykjavík, Á FUNDI sameinaðs Ál- þingis í dag er eitt mál á dagskrá: Tilkynning frá ríkisstjórninni. Mun þá dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flytja i^eðu, sem felur í sér Stefnuyfirlýsingu af hálfu ríkisstjórnarinnar, og verð ur ræðu forsætisráðherra ^erð skil hér í blaðinu á morgun. Stefnuyfirlýsingin, sem forsætisráðherra birtir í dag, er árangurinn af við- ræðum milli Alþýðuflokks ins og Sjálfstæðisflokks- ins sem hófust að frum- kvæði Alþýðuflokksins í fyrravetur. Á fundi í gærkveldi í Alþýðuflokksfélagi Reykja víkur gerðu ráðherrar flokksins grein fyrir þess- um viðræðum og árangri þeirra. Fundurinn var mjög fjölsóttur og urðu þar talsverðar umræður. Spánverjar og ítalir móðgaðir ....... Telja kortið fjand- samlegt ráðabrugg Madrid 12. 10 (NTB-Reutcr. Málgagn spánskra konungs- sinná, „ABC“ hélt því fram í dag að tilkynning Yale-háskóla um nýj I ar sannanir fyrir því að víkingar hafi fundið Ameríku væru saman FUF KLOFNAR! Reykjavík, — EG. Miklan væringar gerast nú með ungum Framsóknarmönn um í Reykjavík, og er þar hver höndin upp á móti annarri og endurspeglast þar klofningur inn í röðum ráðamanna flokks ins. Halda átti aðalfund Félags ungra Framsóknarmanna sl. mánudagskvöld, og endaði það með því að fundurinn leystist upp og meirihluti fundarmanna gekk af fundi. Fundurinn var boðaður í Framsóknarhúsinu, sem þó er þekktara undir nafninu Glaur| bær. Mætti þar Örlygur Hálf dánarson einn helzti postuli þeirra Framsóknarmánna, sem telja sig vinstri menn. Var hann með talsvert lið, mest ungl- inga, sem ganga skyldu í félagið á fundinum. Eins og venja er til á aðal fundum áttu stjórnarkosningar að fara fram á undan inntöku nýrra félaga. Þetta vildi Örlyg ur ekki sætta sig við, og bar fram tillögu um að inntaka nýrra félaga færi fram á undan stjórnarkosningu, og vildi hann, að þeir sem sóttu um inngöngu á fundinum fengju að greiða atkvæði um þessa tillögu, þótt utanfélagsmenn væru! Upphófust nú deilur miklar. Lyktaði þeim svo, að meiri hluti fundarmanna, þar á með al sjö lögfræðingar, sem eru meðlimir í félaginu gengu af fundi, en Örlygsmenn héldu fundinum áfram og kusu sig í stjóm. Forysta Framsóknarflokksins lítur þetta mál mjög alvarlegum augum, sem marka má af því, að það var rætt á fundi fram kvæmdanefndar flokksins, sem haldinn var í gærkvöldi. tekin ráð, sem væru vandlega undirbúin og sprottin af illgirni til þess að gera lítið úr þeim glæsilega þætti, sem Spánverjar áttu í því að Kolumbus fann Amer íku. Blaðið bætti því við, að ef vík ingarnir hefðu látnir urn að finna Ameriku væri enginn Yale-liáskóli til í dag. Blaðið lagði mikla á- herzlu á það, að það hefðu verið Ferdinand Spánarkonugur og Isa bella drottning, sem gerðu Genúa manninum Kolumbusi kleift að fara í könnunarferð sína. Danski heimskautakönnuðurinn Eigil Knuth greifi hélt því fram í dag, að Y’ale kortið væri ekki til komið vegna þess að víkingar hafi gengið á land í Norður-Ameríku en um leið lagði hann áherzlu á að kortið væri áreiðanlega ófals að. Knuth greifi sagði, að þótt vík ingar hefðu eflaust siglt til Norð ur-Ameríku væri engin ástæða til að ætla, að þeir hefðu teiknað kort ið, og sterkari líkur bentu til þess að það hefði verið sett saman á Framhald á 14. síffu. Reykjavík, - OÓ í TILEFNI útkomu l ókar- innar The VinlancL Ma > and the Tartar Relation, sem jjallar um Vínlandsk ortið, sem skýrt var frá um helg- ina, var haldin viðhifn í Yale háskóla sl. már udag. Meðal gesta þar voru Pétur Thorsteinsson, ambassi dor í Washington, ásamt konu sinni. Alþýðublaðið liafði sam- band við Pétur í gær og sagði hann meðal annars a.i sér hefði komið á óvart að rit- stjóri Yale University Press hefði farið til Noregs til að tilkynna fundinn og liður- stöður rannsókiw. vídnda- manna skólans, en (engið fram hjá íslandi. — Þarna var mikil viðhöfn í sambandi við birti igu á kortinu og handritim sem þvi fylgdi. Fyrir utan mig og konu mína var þarna við- staddur ambassador Kvnada, en ambassadorar Noreg i, Sví- þjóðar og Danmerkur gátu ekki komið en sendu fv lltrúa í sinn stað. Þarna von sam- ankomnir allir þeir sen kom- ið hafa mest við sögú ' sam- bandi við rannsóknir á þessu korti. Glerskápur nieð kort- Framh. á 14. síðu. >000000000000000

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.