Alþýðublaðið - 03.11.1965, Page 13
aÆHSP
Ll simi 50184.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Sími 50249
.,McLintock! “
Víðfræg og sprenghlægileg, ame
rísk mynd í litum og Panavision.
John Wayne
Maureen 0‘Hara
íslenzkur texti.
Sýnd ikl. 6,30 og 9..
Ógnþrungin og æsispennandi, ný
amerísk sakamálamynd.
Með: Lee Phllips — Margot
man og Sheppert Strundwick
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð bömum innan 16 ára.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 34. Siml 13-100.
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásvegi 18. Sími 30945
Mwy Douglas Wwrert
LÆKNIR TEKUR ÁKVÖRBUN
hana, hann 'hafði álitið að hann
vildi kvænast henni. En nú ef
aðist hann. Nú var það Carmen,
bjarta, hugrakka, duglega Car
men, sem hafði tekizt að ljúka
sínu prófi og vinna fyrir sér með
náminu.
— Ég verð að fara heim, sagði
hann. — Sælar frú Weston. Sé
þig seinna Joy.
4.
Ted Hazeltyne, yngstur barn
anna tók sér skilnaðinn næst.
Hann var grannur unglingur með
ljóst hár og frekur. Ef til vill
yrði hann síðar jafn laglegur og
bróðir hans en sá dagur var ekki
enn runninn upp. Hann dáðist
að föður sínum og honum leið
illa nú þegar allir á heimilinu
virtust vera reiðir honum. Hann
átti fáa vini og hafði verið háð
ari föður sínum en hinir í fjöl
skyldunni enda hafði hann unn
ið með lionum allar lielgar í
garðinum. Að vísu kunni hann
vel víð móður sína og þótti vænt
um hana en það var ekki það
sama og aðdáunin á föður hans.
Nú virtist sem faðir hans hefði
ekki aðeins svikið móður hans
heldur einnig hann sjálfan.
— Þessi bannsetta Mavis Baily
tautaði hann fyrir munni sér.
— Mikið vildi ég að ég gæti tek
ið utan um háls hennar og kyrkt
hana.
Hann gekk um nágrennið og
forðaðist sína fáu vini því hann
áleit að allir hlytu að vita um
þá skömm sem hafði komið fyrir
fjölskyldu hans. Hann var svo
ungur að honum fannst skilnaður
vera óbærileg skömm. — Ef
mamma hefði aðeins beðið, hugs
aði hann — hefði pabbi komið
aftur til hennar. Hann hafði áð-
ur heyrt ávæning af kvennafari
föður sfns, en hafði pabbi hans
ekki alltaf komið aftur heim til
mömmu? Af hverju liafði móðir
hans ekki beðið núna? Af hverju
var hún að höfða skilnaðarmál
Af hverju kom þetta hatur ?
Hann sparkaði steini frá sér
Hann sagði við sjálfan sig að
hann væri dauðþreyttur á lífinu,
og samt hafði lif hans rétt haf
izt. Hungur, hungur ungs vax-
andi drengs rak hann héim í
matinn.
Þetta var daufleg máltíð. Sæt
ið við enda borðsins þar sem
faðir hans hafði alltaf setið var
autt. Hann sá hann fyrir sér glað
legan og glæsilegan. Ned Hazel
tyne, sem alltaf hafði glettnisorð
á vörunum og breiðar herðar,
brúnt liðað hár. Maður sem aldr
ei drakk eða borðaði of mikið
Hann hugsaði um vöxt sinn. Þess
vegna lék hann tennis og fór
í sund á hverjum degi.
Joan saknaði hans einnig þrátt
4
fyrir skilnað þeirra að sæng fyrir
sex mánuðum. Hann hafði ttaum
ast yrt á hana við matborðið og
þó saknaði hún þagnar hans. —
Það er eðlilegt, hugsaði hún, —
það er ekki hægt að búa með
manni í tuttugu og fjögur ár og
sakna hans ekki þegar hann fer.
Þetta var víst að ske. Ég gat
ekki þolað þetta lengur, þegjanda
•háttur hans og hæðni þá sjaldan
•hann yrti á mig. Stundum fannst
mér hann hata mig. En því skyldi
hann gera það? Fyrir ári elskaði
hann mig.
j SÆWGUR
RE8T-BEZT-k«<W«r
Enðnmýjmn (ftuhl
lænpinur, etnou
dún- «( fiðurhetd v*r.
Selimn æðarðihw- «g ;
gæsadúnssænrnr —
•g kodda af ýnunai
stærðum.
DÚN- OQ
FDURHRElNSim
Vatnsstíg X. Sfml 1874*.
hhmmmmmmmmimmmmw
Cherry hugsaði um morgundag
inn. Hve mikið átti hún að segja
Ben af því sem skeð hafði? Ben
myndi skilja hana, það var víst
Ástæðurnar voru of keimlíkar
þeirra.
Ef Ben hefði aðeins fréttir
handa henni, fréttirnar sem hana
dreymdi um að heyra. Ef Clot-
hilde Hallam myndi aðeins fall
ast á skilnað. En Ben hafði marg
•saigt það að læknir í Marquarie
Street gæti ekki leyft sér að
ivera hinn seki í skilnaðarmáli.
Og þótt Clothilde stæði í ástar
sambandi við annan mann gætti
•hún þess vandlega að það frétt-
ist ekki langt. Ben grunaði að
'hún hefði verið 'ástmey Msrcolms
Harveys lengi en þau gættu sín
of vel, þau létu Ben aldrei fá
neitt áhreyfanlegt.
Hann játaði þetta allt fyrir
Cherry oig hún vorkenndi honum.
En stundum velti hún því fyrir
sér hvort Ben vildi raunverulega
fá skilnað, hvort hann elskaði
nokkurn mann. Hún var ham-
ingjusöm þegar 'hún vann með
honum og henni leið illa þegar
‘hún var heima. Stundum fór
hann með ihana í mat eða i leik
'hús. Það var þegar Clothilde var
annað að gera. Stundum gerði
ihún uppreisn af ’hiverju urðu þau
að fara eftir eftir áliti Clothile
og lákvörðunum hennar? Af
hverju saigði Ben Clothilde 'ekki
sannleikann — að hann elskaði
hana sjálfa? Elskaði hann hana?
Það fcvaldi hana mest að vita það
ekki fyrir víst
Fjölskyldan hafði lágt um sig
um kvöldið Það heyrðist ekki
þessi venjulegi hlátur sem endur
ómaði um alla stofuna Don og
Eed voru vanir að borða eins og
úlfar en þá virtist vanta matar-
lystina í kvöld Þeir forðuðust að
líta á móður sína því þá hefðu
þeir séð tárin sem stóðu í aug
um hennar. Þeir vorkenndu
henni mjög en hvað gátu þeir
gert. Hún lifði í heimi hinna full
orðnu, þau voru varla meira en
börn.
— Góða nótt elsfcurnav. Viljið
þið þvo upp? Ég held ég farj að
'hátta. Það var auðvelt að heyra
ekkann að baki orðanna.
FATA
VIÐGERÐIR
Betjom sklnn á Jakka ;
mnk mnnarra fata-
vlðgerða
Sanngjarnt varl.
Sklpholt 1. — Siaal 4M8.
SÆNQUR
Æu)
; Endnmýjum gömln sængnraar.
Seljum dún- tts ftðurheld vw.
NÝJA FIÐCRHRBINSITNDI
Hverfiagöta 57A. Siml M7S8
— Auðvitað mamma. sagðf
Cherry. — Viltu ekki horfa á
isjónvarpið?
Hún hristi höfuðið og brostl
biturt. — Öll sjónvarpsleikrit
enda vel. Ég held ég geti ekk|
horft á slíkt í kvöld.
Þau höfðu hljótt um sig með
an þau þvoðu upp en sífellt sáu
þau Ijósröndina undan svefnliet
bergis’hurð móður eirra. Hún
var ekki sofnuð.
— Mig langar ekki til að horfa
á sjónvarpið heldur, sagðl
Oherry. — Ég þarf að vinna á
imorlgun. Ég ætla að fara aS
íhátta.
— Ég fer og tala við Joy. sagði
Don. Hann þurfti að tala við ein
hvern. Hann var eins og faðir
hans, þarfnaðist sífellt félagas*
skap við konur, aðdáun þeirra og
virðing-u.
— Þá verð ég að horfa einn á
•sjónvarpið, nöldraði Ted.
— Komdu með mér, bauð Don.
— Og vera þriðja hjól undir
vaigninum? Nei þakka þér fyrir
bróðir. Éð bíð hérna smástund og
fer svo að hátta líka. Skolli er
þetta leiðinlegt. Hann hafði ekki
átt að gera okkur þetta!
—• Það er víst ekkert annað
að gera þegar maður verður ást
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. nóv. 1965 13