Alþýðublaðið - 10.11.1965, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 10.11.1965, Qupperneq 3
HUS BJARNA RIDD ARA VARDVEITT ■WWIMWWmiMWMWMWIWWWWtMWWWMWWWWW Fyrirspurnaflóð / sameinuðu þingi MMMMMMMMMMM MMMMMMMIMIMW Reykjavík, — KB. Framkvæmdir eru nú að hefjast við eudurhyggingu eins elzta húss í Hafnarfirði og er ráðgert að korna því í upprunalegt horf. Hafa verið mynduð sérstök samtök í þessu skyni í Hafnarfirði, en fram- kvæmdir allar munu verða gcrðar i samráði við þjóðminjavörð. Elzta hús í Hafnarfirði er við Vesturgötu og ber númerið 6. Það reisti Bjarni riddari Sívertsen, liöfundur Hafnarfjarðar ,árið 1805 að því er talið er. Hús þetta hefur verið mjög vandað að allri gerð, en það er bindingsverkshús að dönskum hætti, hlaðið úr múr- steinum í viðarbinding og þak þess er viðamikið timburþak. Að öllum líkindum hefur hús þetta verið flutt tilhöggvið frá Dan- mörku og aðeins sett hér saman. Kristján Eldjárn Þjóðminja- vörður sagði fréttamönnum í gær, að hús þetta væri bæði merkilegt vegna gerðar og stíls, en það lýsti ,.vel byggingarstíl síns tíma og væri einnig sögulega merkt fyrir Hafn- arfjörð. en segja mætti, að á viss- 'an hátt væri bærinn sprottinn upp í kring um þetta hús. Það er Rotaryklúbbur Hafnar- fjarðar, sem á frumkvæðið að því, að nú er hafizt handa um endur- b.vggingu hússins. Klúbburinn hef- ur snúið sér til ýmissa félaga í bænum og hinn 24. fyrra mánaðar var haldinn stofnfundur sérstaks félags, sem á að sjá um. fram- kvæmdir. Aðilar eru 12 félags- samtök í Hafnarfirði og er búizt við, að fleiri muni bætast í hópinn innan tíðar. Á næstunni mun þetta félag gangast fyrir fjársöfnun til að kosta framkvæmdirnar og mun verða leitað til Hafnfirðinga og fyrrverandi Hafnfirðinga, sem bú- settir eru annars staðar á land- inu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef- ur samþykkt að greiða allt að fjórða hluta kostnaðarins í sam- ræmi við framgang verksins og ' fjárframlög frá öðrum aðilum, og ' á fjárlögum þessa árs eru veittar 100 þúsund krónur í þessu skyni. j I stjórn húsfélagsins elga sæti | Bjarni Snæbjörnsson læknir, for- maður, Gisli Sigurðsson, lögreglu- j þjónn, varaformaður, Kristján Eyfjörð ritari, Ólafur Pálsson ' gjaldkeri, Kristín Magnúsdóttir, i Sína Arndal og Ársæll Jónsson meðstjórnendur Reykjavík — EG. Þingskjal með fimm fyrirspurn um í samtals 19 liðum var lagt fram á Alþingi í gær. Fyrirspumir nar fjalla um setningu reglna um tilboð í verk samkvæmt útboðum frá Þorvaldi Garðari Kristjánssyni (S) o. fl., um framkvæmd áætlana um sjálfvirkt símakerfi frá Hanni bal valdimarssyni (K); um sérleyfis sjóð og umferðarmiðstöð frá Inga R. Helgasyni (K) um framkvæmd laga um fávitahæli frá Alfreð Tillaga Alfreðs óþörf - byggð á misskilningi Lí&ctn hinna slösuðu Rvík, — ÓTJ. EIÐAN Ágústu Jónsdóttur, sem lenti í umferðarslysi í Álflieimum sl. mánudag er ekki góð. Hún er með meðvitund en hefur miklar þrautir, enda lærbrotnaði liún, mjaðmargrmdarhrotnaði og fót- brotnaði fyrir neðan hné. Bjarni Bjarnason Skipasundi 58 er liress eftir atvikum. Ilann Ienti í árekstri við stóra flutnmgabifreið á mót um Skipasunds og Holtavegar sl. mánudag. Meiddist hann á öxl, og höfði. Reykjavík, — EG. MEGINHLUTI þessarar tillögu er óþarfur og á misskilningi byggð ur, sagði Eggert G. Þorsteinsson félagsmálaráðherra í efri deild í gær, er þar fór fram fyrri um ræða um þingsályktunartillögu Alfreðs Gíslasonar (K) um að r’k isstjórnin feli húsnæðismálastjórn að semja frumvarp til húsaleigu- laga og leggja fyrir þetta þing. Eggert ítrekaði, það sem hann hef ur áður sagt, að Húsnæðismála stjórn hefur þegar verið falið að semia fr”mvarp til húsale>g",l’ga, en ekki þykir rétt að setja lienni ströng tímatakmörk til verksins, *>3r sem hér er um mikið og vanda samt verk að ræða. Pggerf sagði í ræðu s;nni, að ekki væru skiptar skoðanlr um það að núgildandi húsa’eigulög væru úrelt og þjónuðu engum til gangi. t frumvarpi til breytinga á lögum um Húsnæðismálastjórn værí bví gert ráð fyrir, að lögin væru felld úr gildi, en Húsnæðis i málasfiórn fa’ið að semia nv lög Enp'r>r> ---s -m tiag ! Eggert aff hér þyrftl Y ' g en þau lög sem nú vær- I í gildi væru algjörlega gagns- laus. Nauðsynlegt væri að afnema þau svo að hægt væri að beita reglugerðarákvæðum um bygg- ingu leiguhúsnæðis, sem sveitar félög og Öryrkjabandalag íslands reisa fyrir lán Húsnæðismálastjórn ar. Eggert kvaðst sjá í breytingar tillögum Framsóknarmanna við frumvarp til laga um' Húsnæðis málastofnun ríkisins, að þar væri gert ráð fyrir að leysa þetta mál án þess að fella þyrfti gömlu húsa leigulögin niður -og væri auðvitað sjálfsagt og eðlilegt að það yrði kannað hvort slíkt væri löglega hægt. Það væri ekki rétt að setja hús næðismálastjórn ströng timatak- mörk um samningu húsaleigulaga, því það væri mikið verk og vanda samt og ýmis ný sjónarmið kæmu Framhald á H líðn. Gislasyni (K) og um sjónvarps mál frá Gils Guðmundssyni (K) Meirihluti þessara fyrirspurna er frá þingmönnum kommúnista eins og að framan má sjá, en þeir eru jafnan spurulir á þingi, en kvarta svo í þinglok, ef ekki hef ur unnizt tími tii að afgreiða all ar tillögur þeirra vegna þess að mikið af fundartíma sameinaðs þings hefur farið í að ræða fyrir spurnir þeirra. Fyrirspurnirnat, sem vænjtan lega verða á dagskrá í sameinuðu þingi eftir rúmlega viku eru svo hljóðandi. I. Til viðskiptamálaráðherra um setningu reglna um tilboð í verk samkvæmt útboðum. Frá Þorvaldi Garðari Kristjánssyni, Sveini Guð mundssyni og Jónas’ G. Rafnar. Hvað líður störfum nefndar, er viðskiptamálaráðherra skipaði 18. desember 1959 til að athuga þann hátt, sem á er um tilboð í verk samkvæmt útboðum, og gera tillög ur um leið til úrbóta með bað fyr ir augum, að reglur verði settar um þau mál? II. Til ríkisstjórnarinnar um fram kvæmd áætlana um sjálfvirkt síma kerfi, frá Hannibal Valdimarssyni. t Framhald á 10. síðu. SJÁLFVIRK SÍMSTÖÐ OPNUÐ I BORGARNESI Borgarnesi — DO, — OÓ. SJÁLFVIRK símstöð var opnuð hér í Borgarnesi sl. mánudag, og en nú hægt að hringja beint i númer hér hvaðanæfa að af land inu. Símnotendur eru um tvö hundruð og hægt er að bæta hundr að númerum við stöðina án mikilla breytinga en alls er hún gerð fyr ir eitt þúsund númer. Sjálfvirka stöðin var opnuð kl. 5 síðdegis og talaði þá Póst- og símamálastjóri við Ingólf Jónsson ráðherra, en Póst- og símamál heyra undir hann. í sambandi við sjálfvirku stöðina eru 8 rásir, það er að segja að 8 símtöl geta átt sér stað samtímis milli Borgarness og annarra landshluta og er auð velt að fjölga rásunum ef með þarf. S;mstöðvarstjóri er Karl Hjálm arsson. Hefur hann verið póst- og s mstöðvarstjóri hér í Borgarnesi síðan árið 1958. Svæðisnúmer, sjálfvirku stöðvarinnar er 93. í ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. nóv. 1965 3 ' ' . J. C

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.