Alþýðublaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 7
KAUPMANNAHÖFN sumarið 1950. Sjúkrastofan er heit og björt af sól. Laufin kvikna á danska skóginum úti í garðinum, og blærinn andar ilminum inn um opinn gluggann. Þannig líða dagarnir eins og þeir raðist á festi, sama veður, sömu andlit. Mér verður helzt til afþreyingar að hugsa heim, en lundin dapr- ast í tvísýnni bið. Ei vegleg er hans vagga: í veggina jata fest, sem ekki er hægt að hagga. Við höfðum engan frest, og stjarnan stóð liér kyr. Við höfðum knúð til einskis á aðrar dyr. Sú undrastjarnan eina, sem engir sáu fyr, brá ljóma á stokka og steina og stefndi á kofans dyr, er þraut mig þrek og von. Ég féll um koll í hálminn, og fæddi son. Þýðingin á kvæðinu Vatnið er líka afrek: Hinn blessaði iierra Bernharð frá Clairvaux mér knapa sínum, bauð að beizla jó. Þótt sannanlega söm væri okkar leið, hann aðrar slóðir einhvern veginn reið. Aldrei skil ég, sem er hans knapi. þó, minn blessaða herra Bernharð frá Clairvaux. Magnús gerði Hjalmar Gullberg frægan og vinsælan á íslandi, en ógleymanlegustu ljóðin man maður þó á frummálinu. Skáldinu mæliist þannig í För vilsna fötter sjunger graset: Þá kemur góður drengur í heimsókn og færir mér nýja bók. Þetta er úrval af ljóðum eftir sænska skáldið Hjalmar Gull- berg og kvæðin hundrað talsins. Þau verða mér dýrmæt huggun. Kveðskapurinn er fagur og á- hrifaríkur. Lesandanum gefur sýn, svo að hversdagsleikinn hverfur, en jafnframt nemur hann hljóm eins og lindir kliði eða vötn niði í fjarska, Iiuldu- strengir skynjunarinnar titra. Ég er þeirri reynslu ríkari að hafa kynnzt frábæru skáldi. Hjalmar Gullberg fæddist 1898, en lézt 1961, og veit víst enginn, hversu dauða hans bar að. Sumir telja, að hann hafi bezt ort á sænska tungu síðan Gustaf Fröding leið, en sú full- yrðing mun hæpin, enda skiptir hún litlu máli, fátt er fávíslegra en ætla að bera saman tvö stór- skáld eða fleiri, og Gullberg stendur hvorki né fellur með slíkum dómi. Hann var óumdeil- anlega snillingur þeirrar vanda- sömu en yndislegu íþróttar að tjá í orðum mannvit og tilfinn- ingu, samræmdi boðskap og list, skynsemi og næmleik með að- ferð undraverðrar hnitmiðunar. Ljóð hans eru tímabært og minn- isstætt umhugsunarefni, en lifa og í endurminningunni eins og tónrænn söngur á helgri stund. Galdurinn er hverjum manni skilgreinanlegur og þó líkastur opinberun. Magnús heitinn Ásgeirsson þýddi mörg kvæði Gullbergs á íslenzku og túlkaði þau af stakri vandvirkni. Samt missa sum þeirra snilldarbrag einfaldleik- ans við tilfærsluna, áferðin dofnar, þó að myndin komist til skila. Eigi að síður tókst Magn- úsi iðulega áð leysa þrautina. Svo er um Vögguvísur Maríu: Ein stjarna, er stöðugt ljómar, á stallinn blikar inn. Ég hlaut ineð hendur tómar að hreiðra um drenginn minn. Með mjóum meyjarskó læt ég sem ég vaggi þeim litla í ró. Hér beið við sérhvert borðið um bita neitun hörð. Svo þröngt um allt er orðið í okkar tíð á jörð. Hvi bar ég barn í heim? Hvað verður, er hann stækkar, af stúfi þeim? Hans list að þegja er alveg undraverð; ei nefndi hann, hvert var lieitið okkar ferð. Við þræddum fram með vatnsins spegli veg, hann grár og lotinn, ljós og grannur ég. Ég hugsaði eftir hringferð kringum það: til lítils fór minn herra heiman að. Og er við riðum þetta í þriðja sinn: að útivist er holl, veit herra minn. För vilsna fötter sjunger graset: jag er din matta var du gár — ráds ej, att natten förestár! För vilsna fötter sjunger gráset: mot hemmet st.vr jag dina spár. För vilsna fötter sjunger gráset: under mitt tácke sánks din bár — ráds ej, att natten förestár! För vilsna fötter sjunger gráset: du gár mot hemmet var du gár. Og sem var ferðin sjöunda um það gjörð: minn herra gleðst við Guðs síns fögru jörð. Einn lævirki uppi söng um sól og vor; við riðum tólfta sinn í sömu spor. Þá rufu þögli okkar orðin mín: ,,Já, víst er himneskt, livernig vatnið skín!” Sérkenni Gullbérgs njóta sín öll í smákvæðinu stóra Broder Död : Död, jag tror at du stár bak rutan, dár jag ensam bor, ej som ován utan som en áldrc bror. Ur sin grav stiger mitt vásen, rinner í sav, gror bland grásen, andas i doft av blommande lind, blandas med stoft och vind . . . Ei keyrispústur hefði sem hans svar mig fyllt svo djúpri furðu: „Vatnið — hvar?” Minn hcrra ei skynjað hafði þennan dag hið bjarta vatn né fuglsins lofsöngslag. Din gestalt glatt jag igenkánner. O, du har befallt, att en gáng som vánner vi ska dela allt. Þetta dapra ljóð varð mér kærkomin huggun fyrir fimmtán árum. Helgi Sæmundsson. Embættisveitingiii í Hafnarfirði HINN 4. nóv. sl. rann út um- sóknarfrestur um sýslumannsemb- ættið í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógetaembættið í Hafn- arfirði, sem auglýst var laust til umsóknar í október síðastliðnurrt. Um embættið sóttu: Björn Svein- björnsson, settur bæjarfógeti og sýslumaður, Einar Ingimundar- son, bæjarfógeti á Siglufirði og Jóhann Gunnar Ólafsson, bæjar- fógeti á ísafirði og sýslumaður i ísafjarðarsýslu. Hinn 6. þ. m. til- kynnti dómsmálaráðuneytið, að Forseti íslands liefði samkvæmt tillögu dómsmálaráðherra veitt Einari Ingimundarsyni framan- greint embætti frá 1. janúar 1966 að telja. Þar sem embættisveiting þessi er með þeim hætti, að hún hlýtur að varða hvern þann, sem lætur sig einhverju skipta siðgæði hins opinbera og almenn mannréttindi, þykir mér hlýða, sem starfsmanni áðurnefnds embættis um rúmlega fjórtán ára skeið, að gera hana hér að umtalsefni. Rétt er þó að taka fram, að pólitísk misbeiting valds er ekkert nýtt fyrirbrigði hér á landi í sambandi við stöðu- veitingar og að allir stjórnmála- flokkarnir eru meira og minna sekir í þessu efni. Þessar línur eru ekki ritaðar til þess að klekkja á ákveðnum stjórnmálaflokki öðr- um fremur heldur fyrst og fremst til þess að vekja athygli á mein- semdinni og nauðsyn þess, að hún verði upprætt, enda þótt tilefnið sé ráðs.töfun ákveðins stjórnmála- ílokks á tilteknu embætti. Hinn 24. júlí 1956 var Guð- mundur í. Guðmundsson, þáver- andi bæjarfógeti í Hafnarfirði og sýslumaður í Gulibringu og Kjós- arsýslu, skipaður utanríkisráð- herra í ráðuneyti Hermanns Jón- assonar. Þá þegar tók Björn Sveinbjörnsson, sem verið liafði fulltrúi við embættið síðan í sept- ember 1945, við störfum Guð- mundar, enda þótt formlegt setn- ingarbréf undirritað af dóms- málaráðherra væri ekki gefið út fyrr en 20. október þá um haust- I ið. Eins og kunnugt er, kom Guð- j mundur í. Guðmundsson ekki aft- I ur að sínu fyrra embætti og á sl. liausti sagði hann því lausu, er hann tók við embætti sendiherra í London. Nú um áramótin, er skipun Einars Ingimundarsonar tekur gildi, hefur Björn Svein- björnssbn því veitt embættinu forstöðu í samfleytt níu og hálft ár. Allan þennan tíma hefur hann rekið embættiíf á eigin á- byrgð og Guðmundur í. Guð- mundsson þar hvergi nærri komið. Gullbringu- og Kjósarsýsla með Hafnarfirði er stærsta og langum- svifamesta héraðsdómaraembætti I utan Reykjavíkur, íbúafjöldi citt- ; hvað um 18 þúsund manns. Rekst- | ur embættisins hefur að ýmsu leyti verið erfiðari en ella vegna þröngs húsakosts og af fleiri á- stæðum, en mér er ekki kunnugt um, að fundið hafi verið að honum af hálfu dómsmálastjórnar eða fjármála. Það er líka sannast mála, að Björn Sveinbjörnsson hefur rækt störf sín með frábær- um dugnaði og ósérhlífni, enda tel ég ekki neinn vafa á því leika að hann sé í fremstu röð þeirra manna, sen\ nú gegna héraðsdóm- araembættum, að öðrum ólöstuð- um Vinsældir þær og traust, sem Björn Sveinbjörnsson nýtur hér í umdaeminu, kom berlega í ljós eftir að embættið hafði verið aug- lýst laust til umsóknar. Aðalsýslu- nefndarmenn Gullbringu- og Kjós- arsýslu sendu dómsmálaráðheiTa áskorun um það, að hann veitli Birni embættið er liann hefði gegnt í rúm níu ár við góðan orðstír og ýmsir mætir menn úr hópi sam- flokksmanna ráðherrans bcindu | til hans sams konar tilmælum. — I Nefni ég þetta til þess að sýna, að Björn nýtur almenns trausts án tillits til stjórnmálaskoðana. manna og að sem betur fer er tií fjöldi manna, sem metur hvert mál af sanngirni og hleypidóma- laust, enda þótt þeirra tillögu.r verði oft að þoka fyrir annarleg- utn sjónarmiðum, í íslenzkum rétti eru ekki sett' nein tímatakmörk fyrir setningu manna í embætti eins og tíðkast í rétti sumra ríkja. Hér á landi hefur skapazt sú venja, að menn, sem kvaddir hafa verið til ráð- herrastaría, hafa getað halditi sínu fyrra embætti opnu í lengri eða skemmri tíma með því að láv'a setja annan mann í sinn stað. Þetta er að sjálfsögðu galli, sern ástæða er til að ráða bót á irseð setningu reglna um þetta efni, eklti sízt, þegar um dómarastörf er að ræða, þar sem segja má, að sá, sem er settur dómari, sé ekki jafn óháður framkvæmdavaldinu og- liinn, sem er skipaður. Hin langa og samfellda setn- ing Björns Sveinbjörnssonar 3 sér ekki neina hliðstæðu og þarí því engan að undra, að almennt Framhald á 10. síðu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. nóv. 1965 y

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.