Alþýðublaðið - 03.12.1965, Qupperneq 4
mtstjórar: Gylfi Gröndal (&b.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
trúl: EUSur Guönason. — Símaiv 14900 - 14903 — Auglýsingasíml: 14906.
Aftsetur: Alþýðuhúsið vl5 Hverfisgötu, Reykjavlk. — Prentsmiðja Aiþýðu-
blaðslns. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. B.00 elntaklð.
Otgefandl: Alþýðuflokkurlnn.
Hvítmáluð skip
MYNDARLEGT, íhvítmálað skip liggur í Reykja
víkurhöf'n þessa daga. Það siglir undir fána brezka
flotans, ber íslenzka nafnið Hekla, og er hvorki
Bmíðað til fiskiveiða eða flutninga. Fyrir nokkrum
dögum var hér á ferð amerískt skip, sem gegnir
svipuðum tilgangi, og noklkru þar á undan rúss-
nesk. Allt eru þetta haf- eða fiskirannsóknaskip,
sem hafa verið að ramisóknum umhverfis ísland
og líta hér við í kurteisisheimsóknir. Ber þetta
vott um stóraukinn áhuga annarra þjóða á rann-
sóknum á heimshöfunum og lífi í þeim.
Fáar þjóðir munu eiga svo mikið undir þess-
um rannsóknum og þeirri þékkingu, sem þær von-
andi færa okkur, sem íslendingar. Þess vegna er
fími til kominn, lað smíðað verði fyrsta flokks ís-
lenzkt rannsóknarskip, og mun það raunar vera á
næsta leiti. Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegs-
imálaráðherra, hefur tilkynnt, að smíði slíks skips
verði boðin út á næsta ári. Hefur undirbúningsstarf
'tekið langan tíma, enda fyllsta ástæða til áð vanda
smíði slíks skips.
Landssamband íslenzkra útvegsmanna sat ný-
lega á fundi í Reykjavík. Þar var samþykkt, að
síldariðnaðurinn tæki á sig að kosta 30 milljón
króna leitar- og rannsóknarskip fyrir Jakob Jakobs-
son. Sá maður hefur margfaldlega unnið fyrir því,
að fá þó starfsaðstöðu, sem nýsmíðað skip mundi
verða. Og það var ánægjulegt, að viðkomandi aðil-
ar skyldu taka að sér kostnaðinn, en ekki senda
bænaskrá til ríkissjóðs, eins og venja er.
Kjartídómur
KJARADÓMUR hefur kveðið upp úrskurð sinn
um kaup og kjör opinberra starfsmanna. Varla er
við að búast, að allir séu ánægðir með s'líka dóma,
en að þessu sinni er tilefni til óánægju frekar starfs
ínanna megin en ríkissjóðs.
Ritari kjararáðs sagði í viðtali við Alþýðublað
ið, að hann teldi kauphækkunina of litla. Benti
|iann á, að laun sumra verkamanna og iðnaðar-
hfianna, sem eru á taxta ríkisins, nái ©kki lægstu
töxtum viðkomandi verkalýðsfélaga, sem þau hafa
samið um.
Erfitt er að segja um, hvort hið gamla skipulag,
er Alþingi setti launalög, eða verkfallsréttur hefðu
fært opinberum starfsmönnum betri ábangur að
þessu sinni. Meðan ástand vinnumarkaðarins er
eins og raun ber vitni, er einnig hæpið að nokkuð
fast launakerfi geti staðizt einkafyrirtækjum snún
jing í samkeppni um lögleg og ólögleg kjör. En rík-
jnu er og verður mikilsvert að tryggja sér sem bezta
Starfskrafta, ef núverandi Skipan þess helzt í fram-
tíðinni.
4 2. des. 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
OG STRÍÐIÐ
Churchill og stríðið eftir Gerald Pawle er mikið og
’merkilegt rit. Það tók höfundinn fimm ór að viða að sér
efni í bókina og skrifa hana. Undrast það enginn sem
bókina les, því þetta eru raunar tvœr bœkur: Saga
heimsstyrjaldarinnar síðari, að segja mó sögð fró degi
til dags — og saga Winston Churchills ó sama tíma, eða
þeim tíma sem gerði hann að þvi mikilmenni, er þjóðir
heims minnast með þakklœti, aðdóun og virðingu.
CHURCHILL OG STRÍÐIÐ er nóma fyrir þó, sem óhuga
hafa ó Churchill. Við kynnumst Churchill ögrandi og
Churchill hrífandi, — Churchill í fjölmörgum myndum.
Samtímis fylgjumst við með gangi mesta hildarleiks
veraldarsögunnar, — sigrum og ósigrum/ vonum og
vonbrigðum og því, hver urðu viðbrögð Churchills og
nónustu samstarfsmanna hans, er fréttir bórust af víg-
völlunúm. — Churchill og Roosevelt, Stalin og Hitler,
— þessi fjögur nöfn, sem mörkuðu svo óafmóanleg
spor í veraldarsöguna og þó tíma, sem nú lifum við, —
verða stöðugt ó vegi okkar við lestur bókarinnar. —•
Churchill og 'stríðið er mikið rit um mikinn mann og
mikinn hildarleik, og fjöldi mynda úr striðinu og cevi
Churchills prýða bókina.
m
m
AHYGGJUFULLUR SKRIFAR:
„Slysaalda hefir gengið yfir
þetta land á síðustu mánuðum
Menn hafa týnzt á rjúpnaveiðum
og fundizt aftur — Guði sé lof —
dáið úti á rjúpnafjöllum, lent í
óvenjumörgum bilslysum o.s.frv.
Þetta er orðið öllum hugsandi
mönnum áhyggjuefni og meira en
það.
VÍNK> Á MIKLA SÖK í þess
um slysum mörgum, til dæmis í
bílaárekstrum. Og reynslulitlir
menn illa klæddlir, matarlausir
fara upp um fjöll að skjóta rjúp
ur, villast og verða hjálparvana. En
ifyrir fornfýsi margra einstaklinga
fer stundum betur en til hefir ver
ið stofnað í upphafi. Fáir kunna
sig í góðu veðri heiman að búa.
ÞEIM SEM FARA í langferðir
til rjúpnaveiða, er nauðsynlegt að
fara jafnan 2 saman, hafa ávallt
litla ^ttavita í vasa sínum, sem
festa má við lyklahring. Þegar
o> oooooooooo ooooooooooooooooooooo*
+ Slysafaraldur.
Duga engin vettlingatök.
ic Félagsheimilin og löggæzlan.
ir Kunna sig ekki heiman að búa.
oooooooooooooooooooooooooooooooo
komið er á veiðisvæðið, tekur þú
áttir á meðliggjandi fjöll, því nú
er allra veðra von á fjöllum uppi.
Hafa ávalt með góðan göngustaf
og lítið spjald í tözku sinni, sem
sé þannig útbúið að þú megir
stinga uppá stafoddinn svo ef illa
fer, þá er þrautalendingin að
grafa sig í snjó og sé ferðamað
urinn í vatnsheldum flíkum, mun
hann ekki saka í snjóskýli, sé
rétt að farið. Hafa ávallt með
sér mat, t.d. er ágætt að hafa með
sér súkkulaðiplötur. Fjalla - Bessi
og Fjalla - Hjalti báðir Norðlend
ingar miklir fjallamenn grófu sig
í fönn og lágu úti í margar nætur
án þess að verða meint af. En þeir
höfðu góðar skjólflíkur og ávallt
góða göngustafi.
ANNARS VEITIR EKKI af að
Slysavarnarféiagið hafi námskeið
á hverju hausti og þar væri mönn
um kennt að búa sig út í ferða
lög til fjalla, og þá ekki sízt
hvernig á að grafa síg í fönn.
SÁ GETUR er þetta ritar, dæmt
um gildi vasa-áttavita, þar sem
hann lenti í villu á fjöllum uppl
en lítill vasaáttaviti vísaði steftx
una og þess vegna skrifar hann
þessar línur nú eftir fimm ár.
SLYS Á UNGLINGUM, þcgar
þeir eru að koma ölvaðir af
skemmtunum út um sveitir eru
of tíð. Þar virðist vanta löggæzlu,
sterka löggæzlu. T.d. þyrftu einn
eða fleiri lögreglumenn að stöðva
|allal bíla' sem leggja upp f!rá
Framhald á 10. siðu-