Alþýðublaðið - 03.12.1965, Qupperneq 8
Vandið val bamabóka
MIKIÐ kemur út af barnabókum fyrir hver jól. Foreldrar ogr
aðrir, sem kaupa barnabækur til þess að gefa börnum í jólagjöf,
vita oft eigi gjörla, hvaða bækur skal velja, jafnvel ekki, hvaða
bækur er að veija um, því að ekki er hægt að komast yfir að
skoða allar þær bækur, sem nýútkomnar eru. Oft er afgreiðslu
fólk bókabúðanna þess vegna látið sjá um að velja bækurnar.
Mikið af skólafólki vinnur við afgreiðslu í bókabúðum fyrir jólin,
Margt hefur aldrei fyrr nærri bókabúðum komið, og ekki er
hægt að ætlast til þess, að það hafi lesið allar nýútkomnar barna-
bækur. En það þyrfti afgreiðslufólk bókabúðanna auðvitað helzt
að hafa gert, ef það á að vera fært rnn að ráðleggja fólki um val
jólabókanna eða eins og oft er, sjá algjörlega um val bókanna.
Mjög algengt er, að fólk kemur inn í bókabúðir fyrir jólin og
biður um bók fyrir kannske 9 ára gamalt barn. En 9 ára gömul
börn geta haft mjö,g ólíkan bókmenntasmekk, sum níu ára börn
lesa jafnvel bækur fyrir fullorðna, önnur lesa kannske aðeins
einföldustu myndabækur. Stundum óska börnin eftir einhverjum
sérstökum bókum, og er þá vandinn leystur fyrir foreldra. En
margir vilja, sem betur fer, hafa hönd í bagga með því, hvað börn
in þeirra lesa og reyna þá að kynna sér eftir megni málfar og
gildi bókamia, áður en keyptar eru. Bækur hafa allmikil óhrif
á hugsunarhátt barna og að sjálfsögðu verða þær, hvort sem
þær eru eftir íslenzka höfunda eða þýddar, að vera á réttu,
fallegu íslenzku máli. Orðalag og stafsetning bóka, sem Iesnar
eru hvað eftir annað eins og er um góðar barnabækur, festist
skýrt í huga barnanna, því að flest börn hafa gott sjónminni.
Ekki er því sama, hvaða baraabækur eru valdar handa börn-
unum, æskilegast er, að börnin hafi gaman af lestri þeirra og
um leið séu bækurnar þroskandi bæði fyrir málfar og hugmynda
heim þeirra.
Alþýðublaðið hefur tekið saman iista tun allflestar þær
barna- og unglingabækur, sem koma út nú fýrir jól'in, til þess
að auðvelda Iescndum blaðsins val á bókum fyrir börain. Að
vísu eru þar engir dómar um einstakar bækur, en nöfn bókanna
eru þar upptalin í stafrófsröð ásamt höfundanöfnum flestra og
ýmsum öðrum upplýsingum, t. d. um verð og útgefendur. For-
eldrar og aðrir þeir, sem ætla að velja bækur til jólagjafa handa
börnum og unglingum geta því kynnt sér listann og séð þar,
hvaða bækur er um að velja. Flestar bókanna munu komnar í
bókabúðir, en bætast mun þó við stöðugt næstu daga.
Á FLÓTTA MEÐ BANGSA.
Höf.: Babbis Friis Baastad.
Þýð: Sig. Gunnarsson skólastj.
Bók fyrir 10 — 15 ára börn. Verð
kr. 160.00. Útgefandi Æskan.
ADDA í KAUPAVINNU. 2 útg.
Höf.: Jenna og Hreiðar Stef
ánsson. Myndskr. Halldór Pét-
ursson. Bók fyrir telpur. Verð
kr. 129,00. Útgef. Bókaforlag
Odds Björnssonar, Ak.
ADDA OG LITLI BRÓÐIR. 3.
útg. Höf.: Jenna og Hreiðar Stef
ánsson. Myndskr. Halldór Péturs
son. Bók fyrir telpur. Verð kr.
98,90. Útgefandi Bókaforl. Odds
Björnssonar Ak.
AFMÆLISDAGURINN HENN-
AR MJÁSU.
Bók fyrir lítil börn. Verð kr.
40,85. Útgefandi Bókabúð Böðv
ars.
ALLIR í LEIK.
Bók fyrir lítil böra. Útg. Bóka
búð Böðvars. Verð kr. 28.00.
ANNÁ í GRÆNUHLÍÐ, 3. bók
Anna, trúlofast.
Höf,: L.M. Montgomery. Þýð.
Axel ÍGuðmundsson. Verð kr. 148,
35. Útg. Iðunn.
ann|i LÍSA 13 ÁRA.
HöÚ: Tove Ditlevson. Þýð.
Guðjón Guðjónsson skólast. Bók
fyrir, telpur 10—15 ára. Verð
152,50 + sölusk. Útg. Æskan.
ÁSA-DÍSA.
Þýð.: Freysteinn Gunnarsson
Bók fyrir telpur 10 — 12 ára Verð
kr. 124,70. Útg. Setberg.
BANGSABÖRNIN í HELLA-
LANDI.
Höf.: Anna Brynjúlfsdóttir.
Myndir teiknaði Bjarni Jónsson
Bókin fjallar um sömu söguhetj
ur og bókin Bangsabörnin, og
er fyrir börn 6—10 ára. Útg. Ið
unn.
BASKERVILLE-HUNDURINN.
Ilnf.: Arthur Conan Dovle. Þýð.
Kristmundur Bjarnason. Bókin
er í bókaflokknum Sígildar sög
ur Iðunnar, og er ætluð ungling
um. Verð' 177,40. Útg. Iðunn.
BERNSKUÁR AFDALA-
DRENGS Höf.: Jón Kr. ísfeld.
Bók fvrir drenfri 8 — 13 ára. 139
bls. Útg. Snæfell.
BLÓMARÓS.
Höf.: Helmi Maelo. Þýð. Árni
Óla, ritstjóri. Bók fvrir telpur
10-15 ára. Verð 131 50+sölusk.
Útg. Æskan.
BOB MORAN OG N.TÓSNAR-
INN Höf.: Henry Vernes. Þýð.
Magnús Jochumson. B’>k fvrir
drengi. Verð k(r. 134 40. Útg.
Leiftur.
BOB MORAN OG MAÐURINN
MEÐ GULLTENNIIRNAR.
Höf.: Henry Vernes. Þýð:
Magnús Jochumsson. Bók fyrir
drengi. Verð kr. 134.40. Útgef.
Leiftur.
DÍSA OG ÆVINTÝRIN.
Höf.: Kári Tryggvason. Mynd
skreytt af Birni Björnssyni. Bók
fyrir yngstu Iesendurna. Verð
kr. 77,40. Útgef. ísafold.
DODDI OG KÖKUÞJÓFURINN
Höf.: Enid Blyton. Bók fyrir
lítil börn. Verð kr. 96,75. Útg.
Myndabókaútgáfan.
DÓRA FER TIL DRAUMA-
LANDS Höf.: Jón Kr. ísfeld,
myndskr. af Bjama Jónjssyni.
Bók fyrir telpur 7 — 11 ára. Útg.
Snæfell.
és Kristjánsson. 160 bls. Verð
148,35. Útg. Iðunn.
EMIL í KATTIIOLTI.
Höf.: Astrid Lindgren. Þýð.
Jónína Steinþórsdóttir. Bók fyr
ir drengi 10—13 ára 155 bl».
Verð 125 kr. + söluskattur. Útg.
Fróði.
ERNA FER í FERÐALAG
Höf.: Margarethe Haller. Þýð.
Guðrún Guðmundsdóttir. Bók
fyrir telpur 8—12 ára. Bókin er
108 bls. Verð kr. 98,90. Útg. Set
toerg.
DULARFULLA JARÐHÚSH)
Höf. Enid Blyton. Þýð.: Andr
FALLEGU ÆVINTÝRIN
14, gömul, vinsæl ævintýri.
spurt um innlendar barnabækur
Alþýðublaðið hitti að máli
Steinar Þórðarson, verzlunar-
stjóra í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar í Austurstræti,
og hann svaraði greiðlega
nokkrum spurningum um barna
og unglingabækur og sölu á
þeim:
— Er ekki mikil sala í barna-
bókum fyrir jólin?
— Jú, jú, annars er alltaf
mikil og stöðug sala í barna-
bókum allt lárið. Fólk kaúpir
gjarnan bækur bæði til afmæl-
isgjafa og ýmissa tækifæris-
gjafa, t.d. er oft mikið keypt
af þarnabókum til sumargjafa.
— Og á hverju ári koma út
margar barna- og unglinga-
bækur?
— Já fyrir unglingana eru
igefnir út t. d. bókaflokkar. Má
þar nefna bókaflokkinn Fræg-
ir menn, sem Setberg gefur út.
í þeim fiokki hafa komið t.d.
ævisaga Mozarts og Alberts
Schewei'tzers Einnig má nefna
bókaflokkinn Sígildar sögúr
Iðunnar. Þar hafa komið marg-
ar góðar, sígildar bækur, t. d.
"Ben Húr, Börn Grants skip-
stjóra og Baskervillehundur-
inn.
Báðir þessir bókaflokkar eru
mjög: skemmtilegir fyrir ungl-
inga. Svo er Prins Valiant frá
Ása-Þór einnig fyrir unglinga.
Fleiri bókaflokkar eru einn-
ig hæði fyrir telpur og drengi
og fyrir yngstu lesenduma.
— Er fólk yfirleitt ákveðið
í þvi, hvaða bækur það ætlar
að kaupa þegar það kemur í
bókábúðina. Eða eru margir,
seni tiiðja afgreiðslufólkið um
aðstoð við val bókanna?
— Fólk er yfirleitt ákveðið
í þvírhvaða bækur á að kaupa.
Samt' kemur það auðvitað fyr-
ir, að ..viðskiptavinir biðji af-
greiðslufólkið um að leiðbeina
sér um val bóka En flestir eru
þó alveg ákveðnir. Oft biðja
börnin líka um ákveðnar bæk-
ur, og foreldrarnir haga þá
vali sínu á bókum samkvæmt
ósk þeirra.
— Hefur verð bókanna mikil
áhrif á sölu?
— Nei, ekki myndi ég segja
það, fólk velur bækurnar helzt
eftir því, hversu góðar og vand-
aðar þær eru.
— Eru bækur keyptar jafnt
handa öllum aldursflokkum?
— Já, já, bækur eru keypt-
. ar handa börnum og ungling-
Framhald á 10. síðu.
Steinar Þórðarson
8 2. desí. 1965;
ALÞYÐUBLAÐIÐ