Alþýðublaðið - 12.12.1965, Blaðsíða 7
000000000000000000000000000000000000000000<00000000000000000000<0000<00000000000000<C
SUÐURSKAUTSLANDIÐ
Eitt er þatS land á okkar jörS, sem
menn virðast vita mjög lítið um. Þetta
er Suðurskautslandið, sem á alþjóðamáli
er kallað Antarktis. Ant er forskeyti og
þýðir víst á móti. Það sem er á móti arktis
(heimskautinu - norður-) er að sjálfsögðu
hitt heimskautið þ.e. Suðurheimskautið.
Suðurskautslandið er meginland, sem er
stærra en öll Evrópa. Er það um 14 millj.
ferkíómetrar og er nærri kringlótt að
lögun.
Á því er um 90% af öllum ís, sem er
á jörðinni, vindhraðinn kemst upp í 325
kílómetra á klukkustund og frostið niður
í 55° á Celcius. Þetta finnst okkur háar
tölur, og við trúum því varla, þegar okk-
ur er sagt að ísbreiöurnar þar verði allt
að tveir kílómetrar á þykkt.
Á Suðurskautslandinu eru tveir flóar,
sem skerast inn í landið. Við annan þeirra
Ross-flóa, eru tvö eldfjöll, sem eru hulin
jökli.
Miðhluti landsins er að mestu hulinn
jökli, sem nær víða á haf út. Á stöku
stað gnæfa þó háir fjallatindar upp úr
snjóbreiðunni.
Fyrsti maðurinn, sem kom til Suður-
skautslandsins hefur að öllum líkindum
verið Bandaríkjamaðurinn Natanael Brown
Palmer árið 1820. Hafði hann þar aðeins
stutta viðdvöl en fyrsti leiðangurinn, sem
þar hafði vetursetu var frá Englandi. Sá
leiðangur kom til landsins árið 1899 og
var foringi hans Norðmaðurinn Carsten
Borchrevink.
Síðan hafa verið farnir til Suður-
skautslandsins fjöldamargir leiðangrar, og
er einn frægasti þeirra leiðangur Norð-
mannsins Roalds Amundsens, sem kom
þar árið 1911.
Þrátt fyrir alla þessa mörgu leiðangra
bættist þó ekki verulega við þekkingu
manna á Suðurskautslandinu, og vitneskju
þeirra um það, fyrr en á Alþjóða-Jarðeðl-
isfræðiárinu. Þá voru þar vísindamenn og
landkönnuðir frá 12 þjóðum, sem rann-
sökuðu landið þvert og endilangt.
Nú vita menn, að þar eru í jörðu
ýmsar málmsteinstegundir, svo sem graf-
it og járn.
Er þarna fjöldi rannsóknarstöðva og
árið um kring starfar fjöldi vísindamanna
og sérfræðinga að alls konar mælingum
og rannsóknum þar.
Líklegustu not, sem menn geta í ná-
inni framtíð haft af Suðurskautslandinu
eru þau, að þar verði komið upp mót-
tökustöðvum fyrir jarðskjálftamælingar og
ýmsum rannsóknarstöðum til hinna láng
varandi athuguna á loftslagi og geislun
jarðarinnar.
Einnig er mjög heppilegt að gera þar
ýmsar athuganir á haffletinum og fortíð
plánetu okkar.
Nú hafa verið byggðir margir flugvellir
á Suðurskautslandinu, og eru því ferðir
þangað mikið auðveldari. Fljótlegt er að
búa vellina til, því að það þarf aðeins að
slétta yfirborðið á jöklinum, en það er
mjög hart.
Heyrzt hefur, að margar ferðaskrif
stofur, aðallega í Bandaríkjunum séu að
skipuleggja hópferðir þangað. Er það mest
fyrir skíðamenn, sem ættu að því er sagt
er að hafa mjög góðar aðstæður til æf-
inga og iðkana hinna ýmsu tegunda skíða-
greinanna. „Aðeins" á eftir að byggja
hótel, kvikmyndahús, sundlaugar, leikhús,
skóla, verzlunar-, skrifstofu og íbúðarhús,
til þess að menn geti setzt þarna að fyrir
fullt og allt.
Hver veit, nema á Suðurskautsland-
inu rísi upp, í framtíðinni, þorp og borgir,
og kannski verður vinsælasta leiðin til
að eyða sumarleyfinu, að skreppa til
Suðurskautslandsins.
Ef til vill 'minnkar þá straumurinn til
Mallorca.......
00000000000000000<x>000000000^00000<50000000000000<x>0000c00000000000000<>0000000<>0000
Fætur á jólatré
Nú er kominn tími til að fara að at-
huga hvort allt er í l'agi með jólatréð og
sækja það inn í geymslu. Það þarf kannski
að baupa á það eitthvert jólaskraut eða
laga það smávegis og það er betra að gera
það fyrr en seinna. Ef til vill þarf að út-
búa fót undir tréð, svo að það geti staðið
sjálfstætt á góifinu eða litlu borði yfir
jólin, og ef ske kynni að keypt yrði ,,1’if-
andi“ jólatré er nauðsynlegt að búa til fót
undir það.
Fætur á jólatré geta verið með ýmsu
móti. — Ef þið eigið t.d. gildan bút af
járnröri, getið þið sagað með járnsög
tvær rifur í kross í annan enda hans og
beygt síðan endana út á við. (Sjá myndl).
Algengasti'fóturinn er líklega trékrossinn,
sem sést á mynd 2, og þarf ekki að skýra
hann nánar. — Nr. 3 er bútur af gildu
birkitré með berkinum á. — Hann er sag-
aður í sundur í kross og síðan tékið inn-
an úr honum hæfilega mikið, eftir því hvað
jólatréð er stórt. — Síðan, þegar tréð er
komið á sinn stað, eru kubbarnir, negld-
ir saman. Á mynd 4 sjáið þið svo dálítið
myndarlegan jólatrésfót. — Hæfilega stór
tréplata er neðst. Á henni sitja fjórir jóla-
sveinar og halda undir aðra plötu, nokkru
minni, en niður í gegntxm hana gengur
jólatréð. — Þið þurfið að teikná einn. jóla-
svein, svipaðan þeim, sem myndin sýnir.
Síðan má strika hina þrjá eftir honum.
Jólasveinarnir eru negldir fastir eins og
sýnt er á myndinni. Málið húfur þeirra,
buxur og vettlinga með rauðum lit, skeggið
hvítt og skórnir mættu. vera svartir. —
Andlitið er ljósrautt en hárið gult. Stærð
sveinanna fer eftir því, hve jólatréð exj
stórt — Sé jólatréð miög lítið, mætti not-
ast við blómsturpott sem fót og er slíkur
fótur undir jólatré mjög einfaldur, eins og
þið sjáið á myndinni, sem er númer 5.
JÖLABLAÐ 1965
í flö A :ijl.d'f clJIA
sjöunda síða