Vísir - 14.01.1959, Blaðsíða 10

Vísir - 14.01.1959, Blaðsíða 10
10 VÍSIB Miðvikudaginn 14. janúar 1959 mér í örmum hans og vakna létt og glöð og tóm vð hliðna á honum og fyllast þrá við snertingu handa hans. Hann hratt mér ruddalega á rúmið. Án þess að segja nokk- urt orð. Með lokuð augun sá eg líkama hans, línurnar yfir brjóstinu og öxlunum, fingur mínir þreifuðu — eins og þeir œttu aldrei að víkja þaðan aftur. Eins og það hefði alltaf verið svona — bara við, eins og við hefðum elskast alla tíð. Hann lagðist ofan á mig áður en hann var búinn að færa sig úr fötunum, hann var haröhentur þegar hann tók um mjaðmir mínar. Eg kveinkaði mér. — Kann sleppti mér allt í einu. — Eg get þetta ekki! Hendur mínar fálmuðu eftir honum: — Af hverju ekki? — Eg hef ekki, eg tók ekki.... með.... eg veit ekki, þegar eg er fullur.... Eg dró hann að mér, talaði upp í hann. — Þaö gerir ekkert til, gerir ekkert. Það eina sem nokkra þýðingu hafði var að sigra hann, sigra líkama hans, ná honum til mín aftur. Allt, sem síðan kæmi, kom mér ekkert við, allt mátti ske — annars gæti eg misst hann. Nú var eg hjá honum. — Eg giftist þér ekki þó að þú eignist barn, sagði hann. Eg skildi ekki hvaö hann var að segja. En loks rann það upp fyrir mér. Smátt og smátt kipraði eg mig saman. — Og svo verðum við að hugsa um hana. Hann bað mig að hugsa um þig! — Eg get ekki lagt það á hana, sagði hann. — Við gerðum út urn þetta okkar á milli þegar þú komst aftur heim úr Frakk- landsferðinni. Við ákváðum að reyna á ný. — Og það gengur vel, sýnist mér? spurði eg hæðnislega. — Já.... það gerir það. Eg drúpti höfði. Hann sá að axlir mínar titruðu og hélt að eg væri að gráta. Hann greip um höfuð mér og beygði þaö aftur á bak og leit á mig — og eg hló. Nú leið honum víst vel með þér. Nú var hann búinn að læra hvernig á að hafa það gott hjá konu. Eg hafði kennt honum það. Hann hristi mig, hristi mig svo að höfuðið slengdist til. — Hættu, fyrir alla muni, hættu. — Komdu þér í, sagði eg. — Hypjaðu þig heim — tii hennar. Eg sneri mér upp að veggnum. Mig langaði ekki til að heyra hann hringja á bíl, vildi ekki heyra þegar hurðin skylii á hæla honum — samt leit eg upp, augu okkar mættust þar sem hann Stóð og hélt um handfangið á hurðinni. Allt í einu tók hann undir sig stökk og fleygði sér í kjöltu mína, kjökraði við brjóst mér. Fingur mínir struku yfir hár hans. Bros á vörum mínum. Hann var kominn til mín aftur. Honum þótti vænt um mig. — Þú mátt ekki brosa, sagði hann. — Horfðu ekki á mig, skilur þú ekki.... uppskurðurinn, það var til þess að — ó, guð minn góður, eg vissi það ekki, eg vissi það ekki.... nú er hún með barni. Líkami minn dróst saman, kaldur — ískaldur. Kipraðist sam- an í krampateygju af kuldanum. En biliinn beið niðri á götunni. Allt í einu hringdi síminn. Hljóðið smaug í gegnum mig eins og hnifur og yfirgnæfði sársaukann, eg leit ósjálfrátt á klukk- una. Hálf þrjú. Sekúnduvísirinn tifaði rclega hringinn sinn. Tíminn hafði liðið fljótt. Það skein i ljósrönd meðfram gluggatjaldinu. Það var sóða- legt í herberginu. Kjóllinn lá eins og drusla á gólfinu. Síminn hringdi — Smátt og smátt skýrðist liugsunin. Fyrst var það um hann. Andlit hans var alveg hjá mér, eins og það hefði brent sig inn í sál rnína. Þetta hlaut að vera hann, sem var að hringja. Hann stóð niðri í sínraklefanum og hringdi. Það hlaut að vera hann! Mér fannst rödd mín koma langt að þegar eg svaraði. „Halló,“ sagði eg, „Halló, er nokkur þarna?“ Það fór hrollur um mig þegar eg skynjaði efann í rödd mlnni. Nokkur? Hann — þaö gat ekki veriö hann, hann gat ekki verið kominn svo iangt. Og um leiö vissi eg að það varst auðvitað þú, sem sazt við hinn endann. Þú — og barnið. Þú og barnið biðu hans. Þú og barnið binda hann. Og eg elska hann. Klukkan er hálf þrjú. Svo framorðið er það. Svo lengi er hann búinn að vera hjá mér. Maðurinn þinn — sem þú átt að eignast barn með, svona lengi er hann búinn að vera hjá annari. Hann, sem hefur komið heim á hverju kvöldi, hann, sem hefur borðað mið'degisverð heima á hverjum degi — í nótt var hann hjá annari. í nótt hafa hendur hans leitað annars likama. í nótt hQfur höfuð hans hvílt við brjóst mitt. í nótt elskar hann mig. Þetta hef eg að segja þér, þér hinni huglausu — sem ekki þorir að spyrja, sem hringir í símann minn og bíður. — Eftir hverju ertu aö bíöa? Átti hann að svara simanum. Átti hann að standa hjá mér, láta þig heyra rödd sina hérna hjá mér. Hann er farinn. Hann er farinn frá mér. Tvisvar hefur þú tekið hann frá mér. Þú sagðir að þú ættir von á barni, og þaö var ekki satt. Hann giftist þér og það var ekki satt. Og fyrst núna, þegar þú ert búin að tapa honum, þegar hann elskar þig ekki framar, fyrst núna lætur þú hann gefa þér barn. Nú fórst þú loksins til læknis. Nú loksins lézt þú leggja þig inn á sjúkrahús. Þú lézt hann gefa þér barn, og hann vissi það' ekki, hann elskar þig ekki. Þú — Hvernig gazt þú, hvernig gazt þú þetta! Hvernig gazt þú þetta án þess a'ð elska hann. Gazt þú — án þess að elska hann — Nú lield eg öllu í mínum höndum. Enn andar þú í eyra mér. Enn er nokkur stund unz hann kemur heim. Eg get nefnt nafnið hans, hvíslað því lágri röddu.1 Eg get talað við hann, talað við hann í eyra þér — tala eins og hann sé að kalla á mig, eins og hann sé að spyrja, hver sé a'ð hringja, biðji mig að koma. Eg get sagt já, já ástin mín, eg kem eftir andartak, eg skil bara ekki hvers vegna enginn svarar í símanum. Eg dreg hægt andann. Opna varirnar, leita að örðunum.... Rödd mín er framandi, framandi — „Rolf,“ segi eg, „Rolf, undarlegt, það var hringt, en svo er enginn í símamun. Það hlýtur einhver að hafa valið skakt númer.“ Rolf — nafn annars mann. Maðurinn þinn, hann er ekki hér. Hann er á leiðinlegri skemmtun í fyrirtækinu. Skemmtun, sem maður kemst ekki hjá að mæta á. Það heyrðist slittónn í símanum. Eg legg heyrnartólið hægt á. • — ENDIR — Á XVOLDVðKUNNi ft 3 H Hún kom inn og' bar heljar stóran böggul. „Hvað keyptiröu?“ spurði bóndi hennar. „Eg veit ekki hvað það er.“ „Hvers vegna keyptir þú það þá?“ „Búðarmaðurinn sagði, að það fengist ekki lengur.“ SOTIYÐiR fyrir oiíukynditæki „Gleymdu ekki að segja öll- um, að það sé leyndarmál.11 ★ Stúlkan mín elskar tvennt. — Hún elskar ástina og er al- veg vitlaus í peninga. ★ „Ef manneskja er fædd 1898 — hvað gömul væri liú þá i dag?“ „Er það karl eða kona?“ ★ Stúlkan var að kvarta við mömmu sína. „Eg varð að skipta um sæti 1 kvikmynda- húsinu fimm sinnum í dag.“ | „Var einhver karlmaður að ónáða þig?“ « „Já,“ sagði stúlkan. „Loks- ins.“ ★ Hún hljóp grátandi til mömmu sinnar. „Góða mamma, hann er svo skelfilega ósvífinn.“ „Hvað hefir hann nú gert?“ spurði móðirin. ,,Þegar hánn kom heim í kvöld var kvöldverð'urinn ekki til og hann spurði hvers vegna. Eg sagði: ,,Getur þú ekki heyrt hvað eg er hás?“ Þá sagði hann: „Ef rödd mín fengi eins mikla æfingu eins og' þin rödd, væri eg hás líka.“ ★ Randy lærði töluvert af eg þrjár kvenflugur og tvær karlflugur, sagði hann kenn- aranum, — Hvernig vissii'ðu að þær voru karl- og kvenflugur? — Jæja, sagði Randy, — þrjár voru á speglinum en tvær á vindlakassanum. * Föt bai'na geta haldist hrein í nokkra daga — ef börnin eru ekki i þeim. Hann hefði getað hrist mig. Hann hefði getað tekið um axlir jafnan fyrirliggjandi. mér og snúið mér að sér. Það hefði hann getað. SMYRILL húsi Sameinaða, sír.ii 1-22-firt. E. R. Rurroughs — TAHZA^ —. 2798 Jón Austin var trúgjarn skyssa á að snúa baki að [ og tilleiðanlegur og varð sú bróður sínum! „Eg var bara einu sinni of seinn í skólann. — Það var þegar lögregluvagninn sótti hann pabba. Eg vildi kveðja hann.“ þérhafið ágóðavon ^rallíárið! c? 0O D o YcIttemkv HASKOLANS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.