Vísir - 06.03.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 06.03.1959, Blaðsíða 1
49. árg. Föstudaginn 6. marz 1959 53. tbl, Lenti óvart í útiöndum. Ætlaði tiI í morgun fór flugfarþegi, sem pantað hafði flugfar frá Reykjavík til Akureyrar illa flugvélavillt. Á afgreiðslu Flugfélagsins á Reykjavíkurflugvelli kom í ljós þegar verið var að af- greiða flugvél til Akureyrar, að einn faiþeganna, sem pant- að hafði far norður, vantaði. Var nafn hans þá kallað upp í hátalara í afgreiðslusal, en allt kom fyrir ekki, maðurinn gaf sig ekki fram og flugvélin héh áleiðis norður. Aknrpyiar. Litlu seinna barst skeyti frá millilandaflugvél Flugfélagsins „Hrímfaxa“ sem þá var á leið héðan til Glasgow og Khafnar að um borð í henni væri far- þegi sem alls ekki ætlaði til útlanda, heldur aðeins til Ak- ureyrar. Akureyrarfarþeginn er vænt anlegur aftur til íslands rétt fyrir miðnætti í nótt og dregst því a. m. k. um einn dag að hann komist til Akureyrar. &ÍÍÖ : St! I ■ í I í l Myndin er frá Hornafirði og er tekin fyrir skönimu. bá var á suövestan stormur og sést hvernig brimskaflarnir loka Iiornafjarðarós, sem löngum hefur verið talin hættuleg siglingaleið. — landsmálið aftur á dagskrá Eisenhower ræðir við fBokks* Adenauer og de Gaulle bíða komu Macmillans. Eisenhower Bandaríkjafor- seti hefur hvatt flokksleiðtoga beggja þingflokkanna á sinn fund í dag til þess að ræða Þýzkalandsmálið. I I gær kom landvarna- og ör- yggisráð Bandaríkjanna saman til fundar og ræddi einnig um I>ýzkaland. Víðtæk styrjöld. McElroy lahdvarnaráðherra 'sagði eftir þann fund, að ef til styrjaldar kæmi út af Berlín rnyndi ekki unnt að koma í veg fyrir, að hún breiddist út. Hann kvað ekki mundu duga ,að taka ‘upp loftflutninga, til þess að knýja það fram, að virtur væri réttu; bandamanna í Berlín. •fc Æinerískur milljónaeigandi,' Hans P. Kraus, er einn mcsti „bókabéus", sem nú er uppi. Hann leit inn hjá Sotheby í -London í vikunni n-.eð n.álægt 200 þús. kr. upp á vasann, og var búinn að kaupa handrit fvrir alla summuna, þegar liann fór. M.a. keypti hann „The Brudenell Ch.aucer Codex“, handrit frá 16. öld fyrir 15 •þúsund stpd. og „fimm blöð úr 7, aldar handrit? á latínu“ fyrir-7.20® stnd. Idesember s.I. var Kraus í London og t keypti handrit og bækur fyrir yfir 100.000 stpd. Engin breyting. Af hálfu Bandaríkjanna var tilkynnt í tilefni af yfirlýsingu Krúsévs í gær, að hún breytti í engu þeirri afstöðu Banda- rkja, að halda fast fram full- um og óskoruðum rétti banda- manna í Berlín, og sætta sig ekki við einhliða aðgerðir í því máli. Krúsév hafði sagt í ræðu í Leipzig, að komtð gæti til mála, ef bandamenn reyndust sátt- íúsir, að fresta til júníloka, jafn vel til júlíloka að skila af sér í hendur austur-þýzku stjórn- arinnar í Austur-Berlín. — Krúsév fer til Austur-Berlínar á morgun. Tilslakanir. Brezk blöð segja, að eftir við- ræður þeirra Macmillans og Krúsévs hafi komið í ljós, að Krúsév hafi bóðið upp á nokkr- ar tilslakanir, þó ekki stór- vægilegar, og sýni það, að já- kvæður árangur hafi orðið af viðræðunum. M. ö. o. hafi þetta orðið uppi á teningnum eftir að Krúsév flutti ræðu þá, sem virt- ist ætluð til að knýja Macmillan til að gugna á að halda fram rétti. bandamanna, en án árang- urs, og eftir að Krúsév fékk hina heimsfrægu tannpínu sína. Dr. Konrad Adenauer er nú •kominn heim að afloknum við- ræðufundinum í grcnnd við París. Bæði hann og De Gulle Frakklandsforseti mun fresta að tilkynna nokkuð um viðræð- ur sínar og afstöðu til Berlínar — og Þýzkalandsmálsins, fyrr en að loknum viðræðunum við Macmillan, en hann fer til Bonn og Parísar í næstu viku og ger- ir þeim grein fyrir viðræðun- um við Krúsév. 428 Akureyringar ákærðir. Kæryrnar llestar fyrfr ölvim og bffreilaárekstra. Fi’á fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri voru 28 menn kærðir þar í bæ á árinu sem leið og embætti bæjarfógeta tók til meðferðar. Kærurnar voru fyrir eftir greind brot: Ölvun á almanna- færi 239, (þar af voru þó ekki nema 192 þeirra sektaðir), ölvun við akstur 20 og voru þeir allir sviptir ökuréttindum, bifreiðaá- rekstrar 80, önnur brot á bif- reiðalögum og lögreglusam- þykkt 31, þjófnaður og innbrot 8, líkamsárásir 4, svik 2, álögleg meðferð skotvopna 2, brot á til- kynningaskyldu um aðseturs- skipti 11, helgispjöll 1, brot á vegalögum 3, veiðilagabrot 2, brot á gjaldeyrislögum 1, brot gegn valdsstjórninni 5, áfengis- sala 1, bruggun áfengis 1, mann- skaðarannsóknir 4 og afbrot unglinga 13. Rétt þykir að taka fram, að lögreglumenn á Akureyri höfðu auk þessa afskipti af ýmsum minni háttar yfirsjónum manna, svo sem í sambandi við ölvun manna, umferð, afbrot barna og fleira án þess þó að til kæru hafi komið. Flugfargjöld yfir N.-Atl- antshaf hækka. Loftleiðir hækka aðeins milli íslands og IJ.S.A. ‘ Fyrir nokkru ákvað IATA- flugfélag-ssamsteypan að hækka fargjöld á flugleiðunum yfir , Norður-Atlantshafið. Framkv- ákvörðun þessarar er háð sam- þykki viðkomandi ríkisstjórnar, sem enn er ekki fengið. Gert er ráð fyrir að liækknnin komi til framkvæmda 1. apríl n. k. Þessi ákvörðun mun engin á- hrif hafa á farg.jöld Loftleiða milli íslands, Bretlands og meg- inl. Norður-Evrópu, en hinsveg- ar leiðir hún til þess, að smá- vægileg hækkun er fjTÍrhúguð á fiugförum Loftleiða milli 1 s- ] lands og Bandaríkjanna. Hækk- ] ar Jlugfarið aðra. leiðina í kr, ■ 4352 úr kr. 3393 an báðar leiðir úr 17836 i kr. 8088, Fargjöld, sem í gildi eru á vesturleið frá Rvik 4 frá 1. okt til 30. júni og_ á aust- urleið frá New Yonk frá 15. ág. I til 16. maí hækka úr kr. 67Ó4. i kr. 6796. Frádráttur fjölskyldufargjald ; ! anna á sama tímabili verður 2387 ‘ j aða elið en kr. 3398, ef farið er ! fram og aftur. Á þessu tímabili | ; greiðir fyrirsvarsmaður fjöi- i ' skyldufargjaldanna á sama tíma i bili verður 2387 aðra leið en kr 3398, ef farið er fram og aftur. : Á þessu tímabili greiðir fyrir- i ’ svarsmaður f jölskyldu fullt verð ! fyrir farmiða sinn, en verð! hvers farmiða, sem hann kaupir j að auki fyrir maka eða börn á j aldrinum 12—25 ára verður kr. 2106 aðra leið, en kr. 3398, sé farið fram og til baka. Hinar væntaniegu breytingar, sem Loftleiðir fyrirhuga að gera um næstu mánaðamót á flugtöxtum sínum milli Banda- rikjanna og íslands tii samræm- : is yið ákvarðanir IATA eru, að sjálfsögðu, háðar sámþyk.kí rík-i ■isstjórna Bandarikjanna og fs-, lendinga. Undanfarið hafa verið flutt- ar á tónlistarkynningum há- skólans allar sinfóníur Beet- hovens. Hefur þessu verið vel tekið og óskir borizt um, að slíkum kynningum yrði haldið áfram. Tvo næstu sunnudaga, 8. og 15. marz kl. 5 stundvíslega, verður flutt í hátíðasalnum af hljómplötutækjum skólans, tvískipt vegna lengdar, óperan Brottnámið úr kvennabúrinu (Die Entfuhrung aus dem Serail) eftir Mozart. Aðalhiut- verkin syngja Waltor Franck, Maria Stader, Rita Streich, Ernst Haefliger, Martin l'antin og Josef Greindl. Rias-kórinn og Rias-sinfóníusveitin j Ber- lín aðstoðar. Stjórnandi er Ferenc Fricsay. Róbert A. Oítósson hljóm- sveitarstjóri mun segja íiá gangi söngleiksins og skýra tónlistina. Aðgangur er ókeyois og óll- um heimill. ^ Amerísk flutiiingaíiugvél af Super-Constellotiongcrð leníi í erfiðleikúm yfir At- lantshafi í gær, en komst þó til Shannonflugvalar á írandi, Einn af hreyflunum bilaði og annar til virtist að -bilun kominn, er verst s'enfi'dí.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.