Vísir - 25.03.1959, Síða 3
Miðvikudaginn 25. marz 1959
VÍSIR
9
SiJömMlsá©:
EH.EEK
Stjörnubíó hefur valið fyrir
páskamynd einkar skemmti-
lega dans- og söngvamynd, sem
nefnist á ensku „My sister Ei-
leen“ (Ella systir), sem Janet
Leigh, Jack Lemmon og Betty
Garrett leika aðalhlutverkin í.
Kvikmyndin er gerð eftir sam-
nefndu leikriti. Það er mjög
létt yfir öllu hér, mikið um söng
og dans og Janet Leigh heill-
andi í hlutverki Ellu.
---•---
tVrja iBíá:
Kóngurinn og ég.
Nýja Bíó sýnir kvikmyndina
„Kóngurinn og ég“ (The King
and I), sem fjallar um Síams-
kóng og kennslukonu hans.
Kvikmyndin gerist á sjöunda
tug aldarinnar sem leið. —
Þetta er mjög athyglisverð og
vel leikin mynd, sem þau
ÐEBORAH KERR og YUL
BRYNNER leika aðalhlutverk-
in í. — Þessi kvikmynd hefur
hvarvetna vakið mikla athygli
og mun svo einnig reynast hér.
— Um ýms önnur hlutverk en
þau tvö, er nefnd voru, skiptir
miklu, og hefur tekizt vel val
þau öll. — Leikstjóri er Walt-
er King.
Hemlngwsy, gairJ
urinn og hafið.
Eins og mörgum mun nú
kunnugt um, hefur verið gerð
kvikmynd eftir sögu Heming-
ways, „Gamli maðurinn og haf-
ið“. Sagan var á sínum tíma á-
litin hafa fært höfundinxun
Nóbelsverðlaunin, og var mynd
arinnar því beðið með allmik-
illi eftirvæntingu.
Margir lýstu yfir því, þegar
er myndin hafði verið frum-
sýnd vestan hafs, að hér væri
sennilega á ferðinni eitt mesta
meistaraverk kvikmyndanna.
Þó voru ekki allir á sama máli,
og töldu fram ýmislegt er drægi
úr áhrifum sögunnar.
Sá fyrsti gafst upp.
Það er því ekki úr vegi að
rifja upp nokkur atriði um gerð
myndarinnar og dóma þá sem
hún hefur fengið. Eins og kunn
ugt er fjallar.saga Hemingways
um viðureign gamals fiski-
manns við gríðarmikinn fisk,
*
viðureign sem stendur marga
daga og nætur. Sá sem fyrstur
var fenginn til að stjórna töku
myndarinnar, Fred Zimmer-
mann nokkur, gafst upp eftir
nokkurra mánaða erfiðleika, og
þá tók við John nokkur Stur-
g'es, og tókst honum að ljúka
írando er að skilja,
iíærður fyr.ir eð valda
hugaraugri m. m.
Hin fagureyga Anna Kashfi,
eiginkona Marlons Brando, 24
ára, hefur ákært maka sinn
fyrir alls konar illa meðfcrð á
sér og krafizt skilnaðar frá hon-
um. Hann á að hafa valdið
henni hugarangri, alls konar
vandræðum og margs konar
tjóni og meiðslum,
Marlon, sem er 10 árum eldri
en hún, mun sennilega ekki
láta málið hafa sinn gang fyr-
ir dómstólunum, því að hann
mun standa mjög höllum fæti
í deilunni.
■ Hann hefur reynt að komast
að samningum við Önnu. Nú
nýlega munu samningar hafa
tekizt: Anna á að fá allar tekj-
ur hans af myndinni, sem hann
er nú að leika í, Orpheus í und-
irheimum. Þær tekjur eru áætl-
aðar 1 milljón dollara.
Anna' er sem stendur á
Hawaii með son þeirra Christi-
an, sem er fæddur 11. maí 1958.
Hún segist vona, að hún geti
nú braðum. farið að leika aftur.
• Anna og Marlo Brando giít-
ust í kyrrþei 11. okt. 1957 í
Los Angeles. En vandræðin
byrjuðu snemma, þegar Anna
fullyrti að hún væri alindversk.
Foreldrar hennar, hjónin Willi-
gm O’Gallaghan og kona hans
í Cardiff, sögðu hana vera dótt
ur sína, Jóhönnu.
Þegar hún gistist Marlon lét
hún skrá, að hún væri fædd í
Darjeeling á Indlandi og að
faðir hennar héti Devi Kashfi.
O’Callaghan staðfesti að hún
væri fædd á Indlandi, þar sem
hann hefði starfað, „en hún er
dóttir mín og í minni fjölskyldu
er ekkert indverskt blóð,“ seg-
ir Bretinn. Anna þrætir fyrir
þetta og segist vera fædd af
indverskum foreldrum og O’-
Callaghan hafa seinna kvænzt
móður hennar.
Þetta reið .Marlon að -fullu,
1 myndinni. Upphaflega hafði
verið gert ráð fyrir að taka
myndarinnar myndi kosta tvær
milljónir dollara, en áður en
lauk var kostnaðurinn orðinn
5 milljónir. Þegar tökunni var
lokið lýsti Sturges yfir því, að
hér væri sennilegá um að ræða
lélegustu mynd, frá tæknilegu
sjónarmiði, sem hann hefði
nokkurn tíma gert. Litirnir
væru óeðlilegir og ýmis önnur
tæknileg atriði myndu hafa
verið talin úrelt 1939. Þrátt fyr-
ir það voru þó hinir tæknilegu
erfiðleikar taldir smámunir
einh í samanburði við túlkun
efnisins.
Sumir segja nefnilega að
Hemingway hafi ætlað að
skrifa nýjan „Moby Dick“.
Þannig hafi höfundinum verið
efst í huga hin táknræna hlið
sögunnar, þ. e. fiskurinn stóri
er lífið sjálft, en fiskimaðurinn
ímynd mannsins. En svo virtist,
segja sumir gagnrýnendur, að
til þess að túlka söguna rétt
hafi kvikmyndagerðarmanninn
skort kunnáttu. Þannig er mik-
ill hluti myndarinnar af Spen-
cer Tracy (sem leikur gamla
manninn) í bátnum, þyljandi
hugleiðingar Hemingways.
Þeir voru ekki á veiðum.
Eitt má þó segja um mynd-
ina, sem óvenjulegt má teljast.
Hún fylgir bókinni sem næst
út í æsar„ Þannig hefur stjórn-
andi'myndarinnar lagt sig fram
við að reyna að ná því and-
rúmslofti, sem í bókinni er yf-
ir samskiptum manns og fisks,
og skilningi gamla mannsins á
sigrurn sínum og tapi. Skiln-
ingur sá sem Ti;acy er sagður
hafa lagt í hlutverkið er þó af
mörgum talinn annar en stjórn-
anda. Þar við bætist, að Tracy
fékk aldrei tækifæri til að fara
á veiðar meðan á myndatök-
unni stóð, þannig að sjálfur
sést hann hann aldrei í viður-
eigninni við stóra fiskinn,
heldur sjást þeir til skiptis,
Tracy og svo fiskurinn. Þetta
mun hafa dregið nokkuð úr
þeirn eðlilega blæ sem margir
bjuggust við að sjá.
En hvað sem öllurn neikvæð-
um dómum um myndina líður,
er hún af mörgum talin meist-
ara verk, eins og áður var
minnzt á, og vonandi verður
hún sýnd hér á landi innan
tíðar svo að kvikmyndahúss-
gestir hér geti dæmt fyrir sig
sjálfa.
hann fór að hverfa að heiman
dögum saman. Þegar hann kom
heim dag og dag talaði hann
ekki um annað en trúarbragða-
deilur, hljómlist og negramálin
í Little Rock. Þetta, sagði Anna,
„var ekkert umræðuefni við
konu.“
Svo kom að því að Anna gaf
manni sínum utanundir í einu
rifrildiskastinu,- og þá sauð upp
úr.
Hann fer úr jakkanum. HÚN sparkar af sér skónum. Hann er
James Mason, liún er Junia Cravvford og þau eru albúin til
ástaratlotnt á sófanum í „A Touch of Larceny“, sem nú er verið
að taka í Elstree. — En þetta fór öðru vísi en til var stofnað:
Maðurinn liennar kemur heim og -— kemur þeim að óvörum,
Það varð uppi fótur og fit og
Bardot hér og Bardot þar
— Bardot allsstaðar.
Það er sama hvað hver segir
um Roger Vadim og uppfinn-
ingu hans, Brigitte Bardot, hún
er sízt dalandi stjarna og má
segja að hún standi nú á eigin
fótum og þurfi ekki lengur á
uppfinningamanninum að
halda.
Um fáar myndir hefur verið
talað eins mikið, áður en þær
komu á tjaldið, og „Babette
fer í stríðið“, þar sem Brigitte
leikur aðalhlutverkið. Babette
er ung stúlka, sem lendir í
Dunkirk og kemst þaðan yfir
til Englands. Þar skúrar hún
gólf hjá NAAFI og svo er hún
send aftur yfir sundið til þess
að annast njósnir fyrir Breta í
Norður-Frakklandi. Hún sést í
mörgum gervum í myndinni,
en mesta eftirtekt vekur þó
klæðnaður hennar þegar hún
er í hreingerningunum: stuttur
bómullarkjóll og svunta, höf-
uðklútur um hárið og hvítar
ullarhosur við svarta, háha.ú-
aða skó. Svo skiptir hún um og
klæðist herklæðum, stálhjálmi,
hermannastígvélum og öðru til-
heyrandi.
Christian-Jaque, fyrrverandi
eiginmaður Martine Carol, seg-
ir um myndina: — Flestir hafa
talað um Brigitte sem kyn-
bombu, ég vil vekja athygli á
1
Lou Costello og
Eric Blore látnir.
Við könnumst öll við Abbott
og Costello tvfstirnið. Nýlega
er Lo’.i Costello látinn á fimmt-
ugasta og fyrsta aldursr.vi. —
Iíann lézt úr hjartaslagi og
hafði fengið tvö áföll á einni
viku. Honum dugði ekki létt-
lyndið og gamanseminn til
langlífis.
Eric Blore lézt 1 marz, 71
árs að aldri. Banamein hans
var einnig hjartaslag. Hann
var þekktur fyrir leik sinn sem
„gentleman genteman" og
helztu myndirnar sem hann lék
í „Flying down to Rio“, „Dia-
mond Jim“ og „Top Hat“.
henni sem leikkonu, fyrst og
fremst leikkonu. Margir undr-
ast það einna mest, að hún skuli
aldrei svipta klæðum í mynd-
inni ....
Sjálf segir hún: „Eg er orðin
leið á þessu kynbombutali og
ég trúi ekki öðru en að leikhús-
gestirnir séu líka orðnir leiðir á
því. Mig langar ekki til að vera
alltaf eins og fólk býst við að
ég sé. Og get ekki hugsað til
allra þessara Bardota, sem eru
að hringsnúast í kringum mig.
Þær apa efiir hárgreiðslu
minni og göngulagi — þær apa
allt eftir. Maður getur séð þetta
í hverri einustu götu í öllu
Frakklandi. Látið ykkur ekki
detta í hug að ég gangist upp
við þetta eða stæri mig af því.
Það fer í taugarnar á.mér!“
Ef þetta er ekki líka eintóm-
ur leikur og uppgerð þá kemur
það ef til vill á daginn, að nú
komi fram á sjónarsviðið önn-
ur Bardotgerð — það væri ekki
svo vitlaust, ef hún reyndist
ekki vera svo vitlaus þegar allt
kemur til alls, stúlkan sú arna.
„Dekki5 flýtiir í bíóöi."
„The Declcs Ran Red“, heitir
ein nýjasta mynd James Mason
og Brodericks Crawford.
í íslenzkri þýðingu myndi
myndi nafnið hljóða eitthvað á
þá leið, að skipsdeljkið fljóti í
blóði. Myndin er talin frekar
óvenjuleg hrollvekja, en hún
segir frá manni nokkrum
(Broderick Crawford), sem
hefur áhyggjur þungar af
fólksfjöldanum í heiminum og
féleysi sínu. Þar sem hann er
staddur um borð í skipi, sér
hann sér leik á borði, og hyggst
slá tvær flugur í einu höggi
með því að drepa alla um borð
og stela síðan skipinu. Myndin
kvað vera nokkuð æsandi á
köflum, þótt nafnið sé talið
nokkuð villandi, þar sem mynd
in er ekki í litum.