Vísir - 22.01.1960, Síða 6
e
Föstudaginn 22. janúar 1960
VÍSIR
VÍ8IE
D A G B L A Ð
Útgeíandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Aígreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði,
kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Ráðstefnan í Genf.
Nú eru aðeins tveir mánuðdr
þangað til alþjóðaráðstefn-
an um stærð landhelgi á að
' hefjast. Er þegar farið að
i segja frá undirbúningi ráð-
stefnunnar í erlendum blöð-
um og spá um niðurstöðu
, hennar. Fulltrúar 86 ríkja
, munu koma þarna saman, og
aðalmálið verður ákvörðun
um stærð fiskveiðilandhelg-
innar.
Búist er við að tillögurnar frá
1958 komi fram aftur nú, ó-
breyttar, þ. e. a. s. tillaga
Kanada um 12 mílna fisk-
veiðilandhelgi og tillaga
Bandaríkjanna um 6 mílna
landhelgi og 6 milna belti,
þar sem strandríki hafi
einkarétt til veiða, með
þeirri undantekningu, að
þjóðir sem lengi hafa stund-
/ að fiskveiðar við strendur
hlutaðeigandi landa, hafi
rétt til þess framvegis á
ytra 6 milna svæðinu.
‘Talið er að tillögu Kanada
hafi aukist fylgi síðan 1958
og jafnvel að hún hljóti nú
, - tilskilinn meirihluta at-
kvæða. Framkoma Breta
1 ■ gegn íslendingum, eftir að
vér færðum út fiskveiði-
! landhelgina, hefur orðið til
þess að sumar smáþjóðirnar,
sem studdu bandarísku til-
löguna 1958, hafa nú áttað
sig betur á eðli málsins og
nauðsyn þess, að standa æv-
inlega saman gegn ágangi
stórvelda, þegar lífsafkomu
einhvers smáríkis er ógnað.
Slík samstaða hinna smáu er
sterk, eí enginn skerst úr
ieik.
Fregnimar um aukið fylgi
kanadisku tillögurnar eru
mikið gleðiefni fyrir oss ís-
lendinga. Ekki aðeins vegna
þess, að þær auka líkui’nar
fyrir sigri í miklu hagsmuna-
máli, heldur einnig, og ekki
síður, vegna hins, að sigur
vor væri siðferðilegur stór-
sigur, sem myndi marka
mikilvægt spor í áttina til
jafnréttis þeirra smáu í sam-
skiptum við hina stóru.
Bíði Bretar ósigur í þessari
deilu, sém réttlátt og mak-
legt væri, er ósennilegt að
þeir eða önnur stórveldi
myndu stíga hliðstæð spor
aftur í ágreiningsmáli við
aðra smáþjóð, sem ætti lífs-
afkomu sína að verja.
Ríkisstjórn Bretlands er eflaust
orðið það ljóst fyrir löngu,
að þetta herhlaup inn í land-
helgi fslendinga hefur magn-
egn Bretum víðs-
vegár um heim. Þess vegna
er nú talið að þeir myndu
helzt kjósa að ná einhverjum
bráðabirgðasamningum, áður
en ráðstefnan í Genf hefst,
en ósennilegt er að þeim
verði að þeirri ósk. Þó
má gera ráð fyrir að her-
skip þeirra hafi sig lítt i
frammi í íslenzkri landhelgi
meðan á ráðstefnunni stend-
ur, því ekki myndu fregnir
um ofbeldisverk hér við
strendurnar, þá dagana, létta
róðurinn fyrir bandarísku
tillögunni.
Allir íslendingar hljóta að bíða
þessarar ráðstefnu og þeirra
samþykkta, sem þar verða
gerðar, með mikilli eftir-
væntingu. Sigri málstaður
vor þar, véi’ður það bæði
efnahagslegur ávinningur og
vegsauki fyrir þjóðina.
Reykvíkingar rækta kartöflur
fyrir hátt á 4. miilj. króna.
Er um 10. hluti af heildarkartöflu-
uppskeru landsmauna.
Láta mun nærri, að kartöflu-
uppskera Reykvíkinga á sl.
hausti hafi verið sem næst
12.375 tunnur eða um 10% af
heildar kartöfluuppskeru lands-
manna á árinu, og að verðmæti
hennar nemi hátt á 4. millj. kr.
Samkvæmt upplýsingum frá
garðyrkjustjóra Reykjavíkur-
bæjar var uppskera garðávaxta
á bæjarlandinu vel í meðallagi.
Lítið bar á sjúkdómum, og hnúð
orms í kartöflum varð hvergi
vart svo vitað væri, hinsvegar
bar talsvert á skordýrum, en
með úðun vai’narlyfja tókst að
bægja þeim frá. Áburðareitrun-
ar varð vart í nokkrum garð-
löndum, þar sem áburðurinn
leysist ekki upp vegna skorts á
raka.
Leiguhæf garðlönd voru 1,789
en nytjuð lönd á árinu 1.204, og
er það 52 löndum færra en árið
1957. Nauðsynlegt var að taka
úr leigu 846 garðlönd.
Garðlöndin í Vatnsmýri, við
Þvottalaugar, Sogamýri og í
j Borgarmýri hafa reynzt mjög
| blaut og var því gerð tilraun til
| að bæta úr því með því að kýl- ]
I ræsa löndin, þannig, að 8—10
m. voru milli kýlræsa. Aðal-
skurðir þessara- svæða voru
jafnhliða stórlega endurbættir.
| Aðalverkefnin við matjurta-
garðlöndin voru viðhald á veg-
um og girðingum.
Teknar voru uppskeruskýrsl-
ur hjá um það bil 10. hverjum
ræktanda, svo unnt yrði að fá
sem gleggsta mynd af ræktun-
arstarfi bæjarbúa.
Þessar skýrslur gefa til
kynna, að kartöflurækt fari
fram á 49.5 ha. í bæjarlandinu.
Útsæðiskartöflur nema um
990 tunnum.
Af tilbúnum áburði var notað
um 250 tonn, en húsdýraáburði
og öðrum áburði 150 tonn, og
virðist þessi áburðarnotkun ó-
hóflega mikil.
Meðal uppskera reyndist vera
250 tunnur af ha. og er það 50
tunnum meira en meðaltal af
ha. 1957.
Heildar kartöfluuppskeran
hefir því verið 12.375 tunnur og
mun það vera nálega 10. hluti
af heildar kartöfluuppskeru
landsmanna.
Eins og kunnugt er, eru kart-
öflur verðbættar til framleið-
enda og sé gert ráð fyrir að
uppskera Reykvíkinga lendi í I.
flokki (sem er II. verðflokkur)
þá er verðmæti þessarar upp-
skeru kr. 3.836.250.00, en út-
söluverð kr. 1.831.500.00 frá
Grænmetisverzluninni. Gera
má ráð fyrir, að tiltölulega mjög
lítið magn af kartöfluuppskeru
Reykvíkinga sé selt til Græn-
metisverzlunarinnar, og mætti
trúlega ætla, að þessi tómstunda
ræktun bæjarbúa spari því rík-
issjóði um 2 millj. kr.
Geimfiaug Rússa fór 13 þtís.
km. vegarSengd.
Bandaríkjamenn senda apa í 14
km. geimferð.
Enn bóta Rússar.
Samkvæmt síðustu fregnum
ætla Rússar ekki að flana að
fækkuninni í hernum. Þeir
hafa að sönnu ákveðið fækk-
un, eftir því sem þeir segja,
en hún á þó ekki að vera
komin að fullu til fram-
kvæmdar fyrr en í árslok
1961. En mikil áherzla er
lögð á það, af valdhöfunum,
að eyðingarmátturinn verðd
óskertur og haldið áfram að
smíða æ kraftmeiri sprengj-
ur. Þegar fregnin barst fyrst
um fækkunina í hernum, var
það haft eftir Krúsév, að
hann hefði vopn, sem væri
hægt að eyða óvinum Rússa
með, hvar sem þeir væru á
hnettinum. En við nánari at-
hugun mun þetta ekki hafa
þótt nægilega sterkt að orði
kveðið, því að í útvarpsfregn
í fyrrakvöld, var sagt frá
ummælum einhvers háttsetts
rússnesks embættismanns, á
þá leið, að þeir hefðu vopn
sem væru þess megnug, að
þurrka heil lönd út af yfir-
borði jarðar og hvar sem þau
væru á hnettinum.
Þetta hefur eflaust hljómað
sem fagur friðarboðskapur í
§yrum margra íslenzkra
kommúnista, og sjálfsagt á
Þjcðviljinn eftir að birta
margar hjartnæmar greinar
um friðarást Rússa. En
mundu ekki rnargir aðrir
telja það meiri sönnun fyrir
friðarvilja, að ónýta eitthvað
af þessum eyðingartækjum
og hætta framleiðslu þeirra,
heldur en þótt nokkrir tugir
þúsunda af hermönnum séu
látnir hafa fataskipti?
í Bandaríkjunum eru teknar
fyllilega til greina staðhæfingar
Rússa um geimflaugarskot
þeirra út á Kyrrahaf.
Rússar tilkynntu í gærkveldi,
að þeir hefðu skotið geimflaug
nærri 13 þúsund kílómetra veg-j
arlengd og hafi trjónan, sem
notuð var sem síðasta þrep
j
! flaugarinnar, komið mður inn-
an við 2 km. frá settu marki á,
Kyrrahafi.
Tekið er fram, að þetta sé
fyrsta tilraun af mörgum með
flaugar, er eigi að geta flutt
geimför.
Bandaríkjamenn segja, aðj
með tilliti til þess árangurs, sem ’
náðst hafi með Atlasflaugun-
um þurfi ekki að efa þetta, en
þeim hefur verið skotið 15 sinn-
um með þeim árangri, að þær
komu niður í námunda við sett
mark, eða m. ö. o. árangurinn
svipaður og hjá Rússum, en þeir
hafi að vísu skotið nærri 3000
km. lengri leið. Hins vegar sé
þetta fyrsta tilraun þeirra með
svo langdrægar flaugar og hér
um ræðir, en Bandaríkjamenn
15, sem að ofan segir með At-
lasflaugar.
raun. Þeir hafa sent flaug með
hylki, sem í var lifandi kven-
api, ungfrú Sam, 14 km. út í
geiminn. Þar var hylkið losað
með sams konar útbúnaði og
notaður verður, er mönnuð
geimför eru send út í geiminn,
og sveif hylkið, sem vegur um
1 smálest, til jarðar í fallhlíf,
en þar tókst einni af þyrlum
Bandaríkjaflotans að ná því —
og var ungfrú Sam bráðlifandi.
Var vel um hana búið í kassa
innan í geimhylkinu og virtist
henni ekk.i hafa orðið neitt
meint við ferðalagið. — Eld-
flauginni var skotið frá Wall-
ops-eyju í Virginiu.
Ungfrú Sam í 14
km. geimferð.
En Bandaríkjamenn hafa
samtímis gert merkilega til-1
ilætt 8i'sii Aisar'
i Paris.
Franska stjórnin hefur stað-
fest, að Iiún haldi fast við ó-
breytta stefnu í Alsír.
í dag hefst í París ráðstefna
um Alsír og verður De Gaulle
í forsæti. Helztu hershöfðingj-.
ar Frakka i Alsír sitja fundinn,'
fimm ráðherrar og tveir em-!
bættismenn.
Meðal hershöfðingjanna er
Massu, sem neitar að hafa átt
viðtal við þýzkan fréttamann
og gagnrýnt stefnu De Gaulle
í Alsír. í
Það hefur lítið verið minnst á
útvarpsdagsskrána í þessum
dálki í háa herrans tíð, en nú
Hefur einn af lesendum dálksins
skrifað honum pistil um dag-
skrárefni, og getur um sumt,
sem hann er ánægður með, og
annað, sem hann er óánægður
með, og viðurkennir jafnframt,
að smekkurinn sé misjafn, og
lengi megi um slíkt deila, en
fleiri ættu samt. að láta til sin
heyra um hversu þeim fellur
dagsskrárefni en gera það, og
er það alveg rétt, en við lestur
alls slíks beri þó að hafa i huga,
að sínum augum líti hver á silfr-
ið. í framhaldi af þessu segir
pistilshöfundur:
Sögurnar.
„Skáldsögurnar, sem hafa ver-
ið lesnar í útvarp í vetur, hafa
verið misjafnar, eins og geng-
ur, og sannast að segja virðist
mér, að það tilheyri liðnum tima,
að lesnar séu sögur í útvarpi
hér svo að menn heilíist af og
bíði óþreyjufullir framhalds. 1
fyrsta lagi eru sögurnar ekki vel
lesnar. Það er list fyrir sig, að
segja söguna eða lesa, svo að
áheyréndur liafi unun af. Það
fer t.d. alls ekki allt saman —
ef til vill sjaldan — að góður
skáldsagnarhöfundur lesi vrel sög
ur, en þá ætti að velja annan til
lestm-sins. Helgi Hjörvar las
allt af sögur ágæta vel og fleiri
mætti nefna frá liðnum árum.
Engum framúrskarandi lesanda
man ég eftir í vetur, nema síra
Sigurði i Holti, hann las afbragðs
sögu eftir Kielland fram
úr skarandi vel. Þar fór sam-
an snjöll saga og snjall lestur og
hafi klerkur þökk fyrir. — Stef-
án Júlíusson las sína sögu þokka-
lega en ekki meir en efni sögðú
hans var athyglisvert i fyllsta
máta. —
Valið.
Væri nú ekki hægt að vanda bet-
ur til vals á sögum og lesurum?
Væri ekki ráð að fá góðan les-
ara til að lesa Heiðarbýlissög-
ur Jóns Ti’austa, til dæmis að
taka, eða fleiri úrvalssögur eft-
ir noi’ska höfunda, Davíð skygna
eftir Jonas Lie eða Á guðs veg-
um eftir Björnstjerne Björnson,
svo að eitthvað sé nefnt af því
góða.Báðar eru tii i ágætum þýð-
ingum.
Tónlistin.
Mér finnst vera öllu minna en
áður af músik þeirrar tegundar
sem Björvin Guðmundsson segir
vera klám og vita allir hvað hér
er átt við. Mun mlkill meiri hluti
hlustenda þvi féglnn að þarna er
breyting til bóta. Enn heyrist
kvai’tað yfir, að of mikið sé af
háfleygri músik, sem fari fyrir
ofan garð og neðan hjá almenn-
ingi, sem alls ekki hlusti á sin-
foniurnar, en ekki ætla ég að
fylla flokk þeirra , sem stöðugt
nöldra út af þessu. Margt af
þessu lsétur þó vel i eyrum, ef
menn nenna að hlusta, jafnvel
þótt eitthvað skorti á um skiln-
inginn, en yfir hinu vildi ég
kvarta, að ekki skuli gert meira
að því er verið hefur, að útvarpa
alþýðusöngvum undir ljúfum lög
um 1 stuttu máli: Það vantar
meira af ljúfum lögum frá ýms-
um þjóðum mönnum til ununar
á hvíldarstundum, — og hefi ég
að vísu stundum heyrt slík lög
í útvarpinu, í miðdegistónleikum
og eftir kl. 7 fyrir auglýsinga-
lestur, en það er stór hópur
manna í landinu, sem ekki get-
ur hlustað á öll fallegu lögin 1
Framh. á 8. síðu.