Vísir - 22.01.1960, Page 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Litið hann færa yðnr fréttir og annað
leatrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
WXSXlt
Munið, að þeir sem gerast áskrifendor
Vísis eftir 10. livers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Föstudaginn 22. janúar 1960
Michiko tekur við fæðing-
arlindanum á morgun.
Hún er a$ byrja sí5asta mánuð
meðgönguiímans.
Þegar líður að jjví að drottn-
ingar eða drottningaefni verði
léttari, bíða þegnarnir óþreyju-
fullir fregna af því.
Nú er mikið símað um tvær
konur af ofannefndum ástæð-
um, og er önnur Elísabet II.
Bretadrotting, en hin „jap-
anska öskubuskan", sem fékk
prinsinn sinn, malaradóttirin
'Michiko, sem varð drottningar-
"efni í Japan. Michiko á von á
sér eftir mánuð, en Elísabet
mun verða léttari innan hálfs-
mánaðar, að því er Lundúna-
blöðin segja. Hún ætlar að eiga
barnið í höllinni, og verða þar
engar sérstakar sermóniur", en-
þegar barnið er fætt, verður
fest upp tilkynning á stólpa við
hliðið á hallargarðinum og
skotið 41 fallbyssuskoti.
Crönilum siðum
fylgt í Japan.
En í Japan er fylgt gömlum
„keisaralegum siðum“, þegar
fæðing er fram undam hjá
drottningarefni — og er fyrsti
hlekkur þeirrar siðakeðju, að
'drottningarefni lætur vefja um
isig belti eða linda, sem er gagn-
legur til stuðnings á erfiðásta
hluta meðgöngutímans, og .þar
að auki til aukinna hlýinda.
Það hefur þegar verið tilkynnt,
að þessi athöfn fari fram 23.
janúar, er 9. mánuðurinn geng-
tir í garð.
Háttsettur embættismaður
við hirðina sækir hinn keisara-
lega fæðingarlinda, sem er 10
—11 metrar á lengd, um 35 sm.
á breidd og gerður úr silki, og
færir drottningarefni á heimili
hennar i Tokiwamatsu-höll.
Drottningarefni fer þar næst
með hirðmeyjum nokkrum, er
aðstoða hana við að vefja um
sig lindanum Það eru um 20
i
ár síðan hann var seinast not-!
j
aður. 1
Heimskunnur vísindamað-
ur sakaður um morð,
Það var vinkona hans, sem
myrt var.
Hin myrta.
Kynning bandarískra skáida
og verka þeirra.
Fyrir forgöngu Yale-háskól-
ans geta skólar, bankasöfn, fé-
lög og einstaklingar fengið
keyptar grammófónplötur, sem
50 bandarísk skáld hafa lcsið á
verk sín. Nefnast þau „Yales
Series of Recorded. Poets“,
I rauninni kom fram hug-
myndin að þessu fyrir 10 árum
og átti hana skáldið Lee And-
erson, en fjárhagslegan stuðn-
ing veitti stofnunin Blue Hill
Foundation.
I þessum mánuði komu út
fjórar grammófónplötur, sem
Allen Tate, Robert Lowell,
Stanley Kunitz og Dudley Fitt
hafa lesið inn á. Hverri plötu
fyl^ir prentaður texti, ummæli
gagnrýnenda, listi yfir verk
höfunda, æviágrip, og stundum
athugasemdir höfunda.
Þetta er talin hin ákjósan-
legu aðferðir til þess að stofna
til nánari kynna milli nemenda
og almennings annars vegar og
höfunda hins vegar.
Þekkirðu landið hitt ?
8
☆
T
din er afí
Geymið svarið, þar til allar myndirnar hafa verið birtar.
Gæftír og afii
á Hiísavík.
Frá fréttaritara Vísis
Túsavík í gær.
Tíðarfar hefur verið ágætt á
Húsavík fram að síðustu helgi.
Róðrar hófust 2. janúar. 5. þil-
farsbátar og 7 trillur íóa. héð-
an og hefur af-li verið góður
og gæftir góðar. Þrír bátar fóru
héðan um- áramót tii Suður-
nesja og verða þar yfir vertíð-
ina. 2 nýir bátar eru væntan-
leigr til Húsavíkur, í vetur og
vor, báðir smíðaðir í Noregi.
Annar er smíðaðaur úr eik,
rúmlega, 100 tonn, og er eign
h.f. Svanur. Hinn er stál-
bátur 140 tonn,, eigandi. h.f.
Hreifi. Fjöldi manna fór héðan
frá Húsvík og nágrenni eftir
áramót til verstöðva sunnan-
lands.
I fyrri viku var framið hrylli-
legt morð í grennd við Baton
Rouge í Louisiana-ríki, Sanda-
ríkjunum. Flokkur vegavinnu-
manna kom þar að líki konu,
sem reyndist vera dr. Margaret
Rosamund McMillan, 38 ára.
Var líkið blóðugt og augljóst,
að hún hafði verið barin til
bana.
Morðið vakti hroll og furðu
í hugum manna, ekki sízt í
Louisianaháskólanum í Baton
Rouge og háskóladeildinni í
New Orleans, þar sem konan
var aðstoðarprófessor í líffræði.
En ekki vakti minni furðu
það, sem síðar komí ljós. Kona
þessi var ógift og lifði kvrrlátu
lífi í húsi sínu í New Orleans,
bjó þar ein og hafði tvo ketti
fyrir félaga. Eng'um varð að
sögn meira um fráfall liennar
en dr. George H. Mickey, 49
ára, heimskunnum vísinda-
manni og deildarforseta vi'ð há-
skólann. Kvað hann svo að
orði, að það væri von allra við
háskólann, að hinn seki ívndist
hið fyrsta. Fjórum dögum síðar
var hann sjálfur handtekinn,
sakaður um að hafa myrt kon-
ima.
Þessu virtist enginn ætla að
geta trúað í byrjun. Hér var
um kunnan vísindamann að
ræða,' kvæntan mann, föður
tveggja barna. Hann hafði
þekkt konuna árum saman,
hafði m. a. aðstoðað hana við
að fá starfið við háskóla Louisi-
ana.
Lögreglan sneri sér við rann-
sóknina til vina hennar svo sem
eðlilegt er og fyrst og fremst
| til hans, en grunur kviknaði
í fljótt um sekt hans,.Hann flækt-
ist í nét, sem vafðist þéttara og
þéttara um hann. Blóðhlettir
fundust á bíl hans, og bréf frá
honum á heimili hennar. Dr.
Mickey gaf rangar upplýsingar
um hvar hann var og með
hverjum, um það leyti, sem
morðið var framið.
Þrátt fyrir allt þetta neita
margir enn að trúa því, að dr.
Mickey sé morðinginn, en hann
neitar öllu. Fangaverðirnir
segja, að hann gráti mikið á
nóttum.
Samtök gegn
S. - Afríku.
Stjórn landssambands sam-
vinnufélagann á Bretlandi hef-
ur skorað á samvinnufélögin, að
taka ekki þátt ísamtökunum
um að kaupa ekki suður-afrísk-
ar vörur frá 1. marz ,að telja
um eins mánaðar bil.
Varar stjórnin við afleiðing-
um þátttöku þar sem samvinnu-
félögin kynnu þá að verða skot-
spónn í alvarlegum deilum.
Kunnugt er, að sumar sam-
vinnuverzlanir bjuggu sig und-
ir þátttöku í samtökunum, en
að þeim standa m.a. Verkalýðs-
flokkurinn og Frjálslyndi flokk-
urinn, auk ýmissa félagssam-
taka og einstaklinga. Til sam-
takanna er stofnað til að mót-
mæla kynþáttstefnu Suður-
Aríkustjórnar.
Nýtt stökk í radar-tækni.
í ným* bandarsskri
fSaugar handan
I fregn frá Washington segir,
að smíðuð hafi verið í Banda-
ríkjunum ratsjá, sem hægt sé
að greina í eldflaugar og flug-
vélar handan sjóndeildarhrings
ins eða í allt að 4160 km. fjar-
lægð.
Ratsjáin er smíðuð að undan-
gengnum rannsóknum og til-
Meial vikukaup
kr. 2250,00.
Atvinnuieisingjum fækkaði i
Bandaríkjunutn utn 93.000 í
desetniber.
Þeir voru í desemberlok
3.577.000. — Meðal vikulaun
starfsmanna .1 verksmiðjuhi í
Bandaríkjunum erá nú rúmiega'
2250 kr.
ratsjá má greina eid-
sjóndeiidarhrings.
raunum í Rannsóknarstöð
Bandaríkjaflotans (Naval Rese-
arch Labratory) og er litið svo
á, að hér sé um eitt hið stærsta
skref fram á leið í radar-tækn-
inni á undangengnum tíma.
Ratsjáin var smíðuð hjá Gen-
eral Electric. Hún er kölluð
Madre (þ. e. Megnetic Drum
Receiving Eauipment).
Verið er að koma upp Madre-
stöð fyrir 4 millj. dollara á
strönd Chesapeke Bay, Mary-
land.
Aðalhöfundur hinnar nýju
ratsjár er dr. Robert M. Page
forstjóri ofannefndrar stofnun-
ar. Hann var einn þeirra
manna, sem gat sér mest orð á
þessu sviði þegar fyrir síðari
heimsstyrjöld. Ratsjáin hefur
þegar verið reynd margsinnis,
er skotið hefur vérið eldflaug-
um frá Canaveralhöfða, og þarf
ekki að efa gagnsémi hennar.