Vísir - 16.02.1960, Side 1

Vísir - 16.02.1960, Side 1
W. árg. Þriðjudaginn 1G. febrúar 19G0 Óltiíítr Thtprs í fgevM'k vibítliz „Á þessari braut getum við ekki gengið áfram". Efnahagsmálafrumvarp rikissfjórnerinnar samþ. í Wd. „Hvað sem menn segja hlýtur öllum að skiijast, að á þessari braut getum við ekki gengið áfram. Við verðum að stöðva okkur, byrja að greiða eyðsluskuld- irnar, í stað þess að auka þær og létta með því af okkur ofur- þunga vaxta og afborgana. Þetta vita allir og vilja flestir hafa að leiðarljósi. En þá rekum við okkur á Jjá óþægilegu staðreynd, að það er ekki hægt, nema gerbreyta öllu efnahagskerfinu, vegna þess að bótakerfið hefur einmitt byggst á erlendum lántökum til kaupa á hátollavörum. Þetta er kjarni málsins.“ Þannig fórust forsætisráð- herra, Ólafi Thors m. a. orð í útvarpsumræðunum í gser- kveldi, en ræða hans er birt á öðrum stað hér í blaðinu. í síðari umferð talaði dóms- málaráðherra, Bjarni Bene- Benediktsson f. h. Sjálfstæðis- flokksins. Ræddi hann um þró- un efnahagsmála og lífskjara almennings, og leiddi rök að því að núverandi öngþveiti væri vinstri flokkunum að kenna — þeir hefðu haldið æ lengra eftir foraut verðbólgu, uppbóta og lántöku, sem leitt hefði af sér beina verðfellingu krónunnar, en þeir aldrei þorað að viður- kenna það. „Það dugar ekki hvað eftir annað, með fárra ára millibili að taka afleiðingunum af því að búið er að fella gengið, en gera ekki jafnframt ráðstafanir til! að koma í veg fyrir að gengis- fellingin haldi áfram, heldur leggja jafnvel grundvöll að framhaldi hennar með ráðstöf- unum, sem gerðar eru, jafn- skjótt og viðurkennd er afleið- ing hins fyrri ófarnaðar. Það er sú stefnubreyting að koma í veg fyrir síendurteknar ráðstafanir ár frá ári, fyrst bráðabirgðaráðstafanir og síðan viðurkenningu undanfarinna gengisfellinga á nokkurra ára fresti, sem hér er ætlunin að gera.“ Aðrir ræðumenn í gærkveldi voru: Gylfi Þ. Gíslason, Sig- urður Ingimundarson, Eðvarð Sigurðson, Lúðvík Jósefsson, Einar Olgeirsson, Skúli Guð- Raftnagnslaust í stundarf jérðung í morgun varð ráfmagns- laust í Reykjavík, Hafnar- firði og um Suðurnes í um það bil stundarfjórðung. Astæðan fyrir biluninni var ekki komin í ljós, en hún mun hafa verið einhvers- staðar á línunni sunnan- fjalls. Öröggisrofinn í Ell- iðaárstöðinni slóst út og rauf strauminn á kerfinu. Var tal- ið að um smávægilega bilun liafi verið að ræða. mundsson, Gísli Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson. Að umræðum loknum var gengið til atkv.gr. í deild, og það samþykkt með 22 : 18 atkv., og vísað til efri deildar. Innbrot var framið í þrjár verzlanir í sama húsi í nótt er leið og stolið á öllum stöðun- um meira eða minna, ýmist peningum eða öðru verðmæti. Innbrotið var framið í verzl- anirnar Kjötborg, Eyjabúð og sælgætisverzlun sem er á milli þeirra í Herskálahverfi. Var skiptimynt stolið á öll- um stöðunum, en auk þess hafði iýófurinn á brott með sér nokk- ura sviðakjamma, nokkuð af blönduðum ávöxtum í dósum og af blönduðu grænmeti niður- soðnu og loks 4 pakkalengjur af| Camel- og Chesterfield-vindl- ingum. Það eru vinsamleg tilmæli raninsóknai'lögreglunnar til þeirra, sem kynnu að hafa orð- ið mannaferða varir á þessum slóðum í nótt, eða hafa grun um sölu þessa varnings t. d. vindl- inganna, að láta hana vita þeg- ar í stað. ■pr Tilkynnt er í Peking, að allt sé í bezta gengi í Tíbet og þjóðin hafi aðhyllzt komm- únismann! Hagur Frakka liefur batnað stórlega sl. ar. litflutnlngurlnn meirí en Innflutnmgur í fyrsta skipti um langt skeið. Hagur Frakka er betri nú en hann hefir verið um áratuga bil, segir í fregnum frá París. Hagskýrslur, sem gefnar hafa verið út fyrir skemmstu, sýna, að utanríkisviðskipti Frakka jukust um 28% — eða meira en fjórðung — á síðustu fjórum mánuðum síðasta árs, miðað við meðaltal alls ársins 1958. Iðnaðai’framleiðslan í landinu jókst á sama tíma um 8% — átta af hundraði. Þessar framfarir hafa orðið til þess, að verzlun Frakka við aðrar þjóðir varð meiri á sL ári en nokkru sinni fyrr. Verðmæti útflutningsins í „þungum frönkum11 varð 1.900 milljónir í október, 1810 milljónir í nóv- ember og 2060 millpónir í des- ember. (Þungi frankinn sam- svai'ar um það bil 80 ísl. kr„ eins og gengi hér er nú). Innflutningurinn var minni en útflutningurinn í október og nóvember, en aðeins meiri í Frh. á bls. S. 38. tbl. Bandarískir vísindamenn hafa fengið aðstoð til að framkvæma rannsóknir á geiingeislum. Senda þeir gríðarstóra loftbelgi upp í háaloft til mælinga, og er myndin tekin af einum, sem sendur var upp í 35 km. hæð fyrir nokkru. Geimgcislaáhrifin koma fram á mjög næmum filmum. Enn óvissa um kaf- bátana á Nuevoflóa. Argenflnustjólrrs sendir 25 þjóðuim fyrirspurnir. Argeníuustjórn hefúr sent 25 þjóðum fyrirspurnir um það hvort kafbátar frá þeim séu við strendur Argentínu. Herskip og flugvélar eru áfram á verði á Nuevo-flóa. — Talið er víst, að tveir kafbátar hafi verið á sjávarbotni á fló- anum í gær, en ekki er talið fyrir það girt með öllu, að þeir komist undan, a.m.k. sá, sem talinn er ólaskaður. Flokkur manna frá Banda- ríkjaflotanum er sagður vænt- anlegur til leiðbeiningar sjóliði Argentínu um notkun tækja þeirra, sem Argentínufloti fékk í Bandaríkjunum og flogið hef- ur verið til Nuevoflóa. Bornar hafa verið til baka fregnir, sem birtar voru í gær þess efnis, að lík froskmanns hefði rekið við Nuevoflóa. Var sagt, að ekki yrði séð á líkinu af hvaða þjóðerni maðurinn hefði verið. Getgátur voru um, að hann hefði beðið bana, er djúpsprengjum var varpað. — Ymsar lausafregnir eru á kreiki, sem menn eru varaðir við að trúa. • Heimsækir ekki Norðurlönd. Mjög ólíklegt er talið, að því er hermt er í fregnum frá Washington, að Eisenhower for- seti heimsæki Morðurlönd á þessu ári. í Finnlandi, Noregi Sviþjóð og Danmörku hafa ríkisstjórnir látið í ljós vonir um, að Eisen- hower gæti komið í slikar heimsóknir, fyrir eða eftir fund æðstu manna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.