Vísir - 07.03.1961, Qupperneq 6
VfSIR
Þriðjudaginn 7. marzr 1961
■ ..............— ■■■ ■ I ■!. I +-■
irisis.
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Ritstjórnarskrifstofur eru að Laugavegi 27, en aðrar
skrifstofur að Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofurnar eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm linur).
Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Félagsprentsmiðjan h.f.
5§l
Ferðafélagið efnir til
Þórsmerkurvöku.
Endurtekin kvöldvaka frá í fyrra
á fimmtudagskvöldið.
Fréttimar frá Bretfandi.
Þeir, sem hlustuðu á fréttapistil séra Emils Björussofiar
i útvarpiuu fyrir helgina, nnmu hafa lekið eftir því, að það
sem presturimi sagði um aí’stöðu hlaða í Englandi til sam-
komulagsins i fiskveiðadeilunni, stingur mjög í stúf við
I rásagnir Tímans og Þjóðviljans. Bæði blöðin hafa haldið
])\í fram, eins og ræðumenn stjórnarandstöðunnar í út-
varpsumræðunm, að Bretar væru mjög ánægðir með lausn-
ina, en létu hlöð sín segja þveröfugt, til þess að blekkja ís-
lendingal
Almenningur í Bretlandi, utan útgerðarborganna,
veit sáralítið uni bessa deilu, en að svo miklu leyti
sem hann hefur látið sig hana einhverju varða. mun
hann hafa óskað þess, að hún yrði leyst með friðsam-
legum hætti. En tcgaramennirnir og aðrir, sem beinna
hagsmuna hafa að gæta, óskuðu vitanlega eftir miklu
, hagkvæmari lausn fyrir sig en þeirri, sem samið hefur
verið um. Þetta stafar, eins og séra Emil sagði, ekki
af óvild til íslendinga, heldur er það aðeins skiljanleg
umhyggja fyrir eigin afkomu.
Frásagnii’ Iiinna brezku hlaða af afstöðuuui til sam-
komulagsins eru þvi fyrst og fremst um viðhrögð þeirra,
sem mest áttu undir því, hvernig lausnin yrði. Þær eru þvi
enginn tilbúningur hrezkra stjórnarvalda eins og stjórnar-
andstaðan hér vill vera láta, heldur sönn lýsing á \iðhorli
jieirra, sem lausnin bitnar á. Enginn vafi leikur á jjví, að
ínezkir togaraeigendur og sjómenn eru mjög óánægðir við
ríkisstjórn sína og að rétt er hal’t eftir jjeim, að jieir telji
hreytingu grunnlinanna mikið áfall fyrir sig og veiðileyfið
innan 12 mílnanna jæssi þrjú ár ófullnægjandi.
Það er engin uppgerð þegar Bretar segja, að sam-
komulagið sé stórsigur fyrir íslendinga. Þeir meina
það l’ullkomlega. Og hver sem íhugar hlutlausl, hvað
Islendingar láta af hendi í þessi þrjú ár fyrir fulla við-
urkenningu á 12 mílna landhelginni strax og einræði
yfir henni eftir það, hlýtur að sjá að þetta er mikill
sigur. Allar fullyrðingar stjórnarandstöðunnar um
það, að ekkert hefði þurft að gera eða átt að gera af
íslendinga hálfu, til þess að leysa deiluna, bera vott
um svo mikinn vanþroska og ábyrgðarleysi í stjórn-
, málum, að sambærileg dæmi munu tæplega verða
fundin hjá nokkurri lýðræðisþjóð, sem á skilið að
heita því nafni.
Hlutverk Framsóknarí'lokksins í þessu máli er eitt hið
ömurlegasta, scm nokkur lýðræðisflokkur hefur Icikið fyrr
og síðar. Allar móthárur hans gegn samkomulagiiui hafa
vcrið hraktar lið fyrir lið, enda nákvæmlega j>ær sömu og
rökleysur kommúnista. Aðal lögfræðiiigi flokksins var
jjröngvað til jicss að taka j>átt í útvarþsumræðunum, cn
íiánn treysti sér ekki til j>ess að taka mcð einu orði undir
J>au meginatriði, sem formaðurinn taldi lausninni til
foráttu!
Fcrðafélag íslands hefur á-
kveðið að endurtaka Þórsmerk-
ur-vökuna, sem félagið efndi til
í fyrravetur, þá fyrir troðfullu
húsi svo að fjöldi fólks varð frá
að hverfa.
Kvöldvakan verður næstk.
fimmtudagskvöld í Sálfstæðis-
húsinu, og húsið opnað kl. 8
eins og venja hefur verið í vet-
ur.
Efni kvöldvökunnar verður
nær óbreytt frá í fyrra. Jóhann-
es skáld úr Kötlum flytur Þórs-
merkurhugleiðingar, Sigurjón
Jónsson úrsmiður sýnir lit-
skuggamyndir eftir rjálfan sig
og fleiri. Hákon Bjarnason
skógræktarstjóri ræðir um
skóga í Þórsmörk, dr. Sigurður
Þórarinsson jarðfr. stjórnar
Þórsmerkursöngvum, en á eft-
ir verður myndagetraun með
verðlaunum og loks stiginn
dans til kl. 12 á miðnætti.
Kvöldvakan er endurtekin
vegna fjölmargra áskorana,
þar eð miklu færri komust að
í fyrravetur heldur en óskuðu.
Þórsmörk er líkl. einn mestur
dálætisstaður Reykvíkinga, og
enginn staður, sem Ferðafélag-
Ljósmyndarafélag íslands
opnar samsýningu.
Uvn 150 myndír sýndar í
Listamannaskálanum.
Ljósmyndarafélag íslands
opnaði Samsýningu á Ijósmynd
um meðlima sinna s.l. laugar-
dag í Listamannaskálanum.
Til sýningarinnar er efnt í
. tilefni 35 ára afmælis félagsins
jog er þetta fyrsta sjálfstæða
'sýningin sem Ljósmyndarafélag
íslands hefur haldið, en áður
hefur það tvívegis tekið þátt í
Samsýningum Ijósmyndara á
Norðurlöndum.
I Á sýningunni’ í listamanna-
skálanum eru um 150 ljós-
myndir sýndar, þ. á m. eftir
ýmsa kunnustu og helztu fram-
ámenn innan stéttarinnar. — [
Kennir þar margra grasa, ekki
aðeins mannamynda heldur og
landslagsmynda, — auglýsinga-
mynda, leikhúsmynda o. fl. Þar '
eru ennfremur sýndar litmynd-
ir og handlitaðar myndir.
j Á þeim hálfa fjórða tug ára
sem Ljósmyndarafélag íslands
hefur starfað hefur Sigurður
jGuðmundsson lengst af verið
formaður þess, en fyrsti for-
maður var Magnús heitinn Ól-
afssftn.
ið efnir til-ferða á er-jafn eft-
ii’söttúr. Það undrar engiyi sem
á Þórsörk hefur komið, því
hún ér eitt fegursta djásn sem
til er í íslenzkú landslagi, og
raunar þótt víðar sé leitað. Enn
má því búast við húsfylli á
Þórsmerkurkvöldvökunni á
fimmtudagskvöldið.
Liz Taylor hættu-
lega veik.
Kvikmyndaleikkonan Elisa-
beth Taylor liggur hættulega
veik á sjúkraliúsi í London.
Hún veiktist af inflúenzu og
fékk svo lungnabólgu og hefur
legið í sjúkrahúsi rúma viku.
Var gerð á henni aðgerð vegna
öndunarerfiðleika og eftir hana
var hún talin í lífshættu, en þó
heldur á batavegi í gær, en ekki
úi’ hættu. Bólga er í báðum
lungum.
Vestmannaeyjar —
Framh. af 1. siðu.
8 vindst. á Stórhöfða, og má því
búast við að ekki veiðist mikið
á línu á meðan. Hins vegar er
farið að verða vart fiskjar £ net,
og a. m. k. einn bátur fékk dá-
góðan afla í gær um 2000 kg.,
en aðrir minna.
Milli 10 og 20 bátar hafa ekki
komizt á sjó enn frá Eyjum
vegna fólkseklu, en nokkuð
kemur nú af aðkomufclki. og
er von til að brátt rætis úr. Von
mun á einhveriu af Færeying-
um með Gullfossi næst, en
hann er væntanlegur þann 9.
Útgerðarlíf í Eyjum ber enn
merki verkfallsins, þótt heldur
sé nú að færast líf í starfsem-
ina. Er það vön manna, að veð-
ur lagist og þót verði ráðin á
fólkseklunni innan tíðar.
BERGMAL
isEitíir foringjar.
Forystumcnn Framsóknarflokksins vita eins vel og
I’orustumenn hinna lýðræðisflokkanna, hvað fyrir kommún-
islum hefur vakað í landhelgismálinu frá uppháfi. Samt
sem áður tekur fonnaður flokksins og helztu áhrifamenn
hans á Aljnngi höndum saman við kommúnista um að
hindra j>ann stórsigur, sem ríkisstjórnin og þjóðin öll er nú
að vinna með þeirri lausn, sem samist hefm^ inn.
Þetta glæfraspil hlýtur að verða foringjum Fram-
sóknarflokksins örlagaríkt ævintýri. Hvaðanæva af
landinu berast fregnir um ánægju manna og þakklæti
til stjórnarinnar fyrir þennan mikla stjórnmálasigur.
Og sú ánægja nær langt út fyrir raðir stjórnarflokk-
anna. Fjöldi Framsóknarmanna um land allt íagr.ar
samkomulaginu og lýsir undrun sinni og vonbrigðum
yfir afstöðu foringjanna í Reykjávík.
Það er þó eim ekki komið í l.jós nema að litlu leyti, hver
dómur þjóðariunar yfir Hermanni Jónassvni verður fyrir
]>elta tiltæki hans. En líklegt er að J>að verði sá pólitíski
dauðadómur, sem liann hefði verðskuldað miklu fyrr.
ísak Jónsson, skólastjóri, hinn
kunni skólamaður hefur ritað
Bergmáli eftirfarandi bréf:
„Kæra Bergmál.
Miðvikudaginn 1. marz s.l.
birtist hjá þér frásögn eftir ein-
hvern ,,Ó. E.“ um heimsókn
hans á Landspítalann, og er
[ ritsmíð þessi svo ósvífin og ó-
sanngjörn, að ég get ekki orða-
bundizt.
Kom utan heim-
sóknartíma.
„Ó E.“ kveðst hafa verið að
sækja konu sína á lyfjadeild
sjúkrahússins og það kostaði
þessar líka dylgjur um einstak-
ling og „einkunn" um stofnun-
ina auk neikvæðs samanburðar
við aðrar hliðstæðar stofnanir.
En þegar betur er að gáð, þá er
þetta greinarkorn býsna athygl
isverð upplýsing um manninn
sjálfan, höfundinn. Hann virð-
ist koma utan heimsóknartíma.
Hann bíður ekki.eftir að ná tali
af „vakthafandi" hjúkrunar-
konu til að segja erindi sitt,
sem honum bar að gera, sam-
kvæmt sjúkrahúsreglum, held-
ur vippar hann sér fyrirvara-
laust inn í sjúkrastofu.
„Hraust að sjá.“
Þar gerist hann atháfnasam-
ur og upphefur neyðarhring-
ar. Honum verður skapbrátt,
; þegar hringingunni er ekki
j svarað fyrirvaralaust Aðrir
j vita þó, að sjúkrarúm skipta
tugum á þessari deiid, og sú
■ sem svara á, getur verið í þjón-
■ ustu, þegar kallið berst. Enda
| getur „Ó. E.“ þess — svo sem
: til afsökunar fyrir „innrásinni"
’ — að sér hafi virzt stofufélagi
| konu sinnar „hraust að sjá“. Og
| vitanlega hefur hjúkrunarnem-
I inn vitað betur en „Ó. E.“ að í
þessari stofu voru ekki sárþjáð
ir sjúklingar.
I ,
: Hogværð og
stilling.
| Loks hefur ,,Ó E.“ sterk orð
. yfir það, að hann skuli ekki fá
viðhlæjandi hjúkrunarnéma,
þegar hún sér í stofunni að-
sk-otaaðila, sém hún hvorki
þekkir, né veit, í hvaða erind-
um er. Enginn skyldi lá hjúkr-
unarnemanum, þó að hún
kynni að hafa talið sér naúð-
syn, að maður ekki segi skvldu,
að sýna nokkurn myndugleik
við slíkar kringumstæður. En
samkvæmt reynslu minni gæti
ég samt bezt trúað því, að
hjúkrunarneminn heíði tekið
þessu með einskærri hógværð
og stillingu. j
Skotið hæfir
„Ó. E.“ sjálfan
Já, það eru ekki allar ferðir
til fjár, jafnvel þó að minnst
sé á „hunda“, eins og „Ó. E.“
gerir af svo sérstakri háttvísi.
1 Þeir sem senda skeyti með
fullum vilja til að skaða einstak
linga og stofnanir, verða oft
fyrir þeim ósköpum, að skotið
hittir þá sjálfa Og'svo hefur
farið hér.
j Eg vil leyfa mér að ráðleggja
„Ó. E.“ að gefa sér tíma til að
taka nokkra reynslutíma hjá
hjúkrunarnemum til að læra
mannasiði. Teldi ég það ekki
sök leiðbeinenda, þó að það
kynni að bera lítinn árangur.
Þakkir fyrir tvær
legur.
En fyrst ég er á annað borð
farinn að skrifa um Landspít-
alann, vil ég nota kærkomið
tækifæri til að bera fram þakk-
ir og árnaðaróskir þeirri stofn-
un til handa. Eg hef tvisvar leg-
ið þar, öðru sinni (fyrir 17 ár-
um) um sex vikna skeið,, og nú
um s.l. áramót í rúma viku.
í sem fæstum orðum sagt er
þetta einstök stofnun að mynd-
arbrag og til jafns við það bezta
sem ég þekki til vesturs og aust
Framh. á 7. síðu.