Vísir - 16.06.1961, Blaðsíða 1

Vísir - 16.06.1961, Blaðsíða 1
 IrisiB 51. árg. — Föstudagur 16. júní 1961. — 133. tbl. Enn deilt um 1%. I nótt stóð sáttafundur með vinnuveitendum og Dagsbrún til kl. 1. Höfuð- efni fundarins var deilan um hvort 1% hækkunin skyldi renna beint sem kauphækkun til verka- manna eða í styktarsjóð Dagsbrúnar. Dagsbrún kvað vinnuveit- endum heimilt að skipa annan endurskoðanda styrktarsjóðs- ins. Vinnuveitendur lýstu því yfir að bað breyti engu þeirra fyrri afstöðu. í morgun hafði enginn fund- ur verið boðaður í dag. Verk- fall Þróttar hófst á miðnætti og hittast deiluaðilar á fundi í dag. Erlendir sjó- menn slasast. Frá fréttaritara Vísis. Patreksfirði í morgun. f gærdag kom hingað þýzki togarinn Frederick Buff, frá Bremerhaven. Einn skipsmanna hafði orðið fyrir „bobbingum“ og fengið heilahristing og á- verka á höfuð. Hann var fluttur hingað í sjúkrahúsið. En þýzki togarinn var ekki þar með laus allra mála. Þegar togarinn var að leysa festar og á leiðinni út úr höfninni vildi það slys til, að einn skipsmanna festist með fingur undir vír á tromlu. Fór togarinn togarinn þegar að bryggju aftur og var maðurinn fluttur til lænis, sem varð að taka fingurinn af. Mönnunum báðum líður nú vel eftir atvik- um. í gærmorgun kom hingað brezki togarinn Velia frá Fleet- wood með botnlangasjúkling, Framh. á 5. síðu. 99 stúdentar Þorgeir Pálsson stærðfræðideild hlaut hæsta einkunn 9,20. Þær gengu fyrstar út úr skólanum eftir að stúdent- um hafði verið afhent skír- teinin. Yndisþokkinn leynir sér ekki né ánægja þeirra í fríðum andlitunum. En þær voru hógværar og var ekki um að fjölyrða. Mennetaskólanum í Beykja- vík var slitið í gær. Brautskráð- ir voru 99 stúdentar. Kristinn Ármannsson rektor hélt ræðu og gaf yfirlit yfir starfsemi skólans á skólaárinu. Þá minnt- ist rcktor látinna starfsmanna skólans: Jóhannesar Áskelsson- ar yfirkennara, séra Friðriks Friðrikssonar, Björns Jokobs- sonar íþróttakcnnara, dr. Þor- kels Þorkelssonar veðurstofu- stjóra og Karls Kristjánssonar húsvarðar. Síðan afhenti rektor nýstúd- entum verðlaun og skírteini. Alls gengu 107 undir stúdents- próf, þar af 8 sem eru að taka prófið í áföngum og geyma nokkur próf til haustsins. — Hæstu einkunnir hlutu Þorgeir Pálsson stærðfræðideild, 9.20 og var það jafnframt hæsta einkunn í skólanum á árinu, Þorsteinn Gylfason, máladeild, 9.16 og Gunnar Benediktsson 9.10. Þetta eru allt ágætiseink- unnir. Margir eldri nemendur skói- ans voru viðstaddir skólaupp- sögnina. Nokkrir árgangar af- hentu skólanum gjafir. Stein- dór Gunnlaugsson lögfræð- ingur talaði fyrir hönd 50 ára stúdenta og Tómas Guðmunds- son fyrir hönd 40 ára stúd- nta. Báðir afhentu peninga- gjafir til Bræðrasjóðs. Þá tal- aði Gylfi Þ. Gíslason mennta- málaráðherra fyrir hönd 25 ára stúdenta og færði skólanum málverk af Kristni Ármanns- syni rektor, gert af Sigurði feig. urðssyni. Ráðherrann mælti á latínu. Loks talaði Aðalsteinn Guðjohnsen fyrir hönd 10 ára stúdenta og afhenti skólanum smásjá að gjöf. Að lokum þakkaði rektor sýndan vinarhug og sagði skól- anum slitið. Aðeins ný frímerki 17. júní. Bréfapóststofan verður op- in laugardaginn 17. júní frá kl. 8—13. Verða þá eingöngu seld ný frímerki, sem gefin eru út í tilefni af því að liðin eru ár frá fæðingu Jóns Sig- urðssonar. Danska ríkisstjómin ekki sammála um frestunina. Einkaskeyti frá fréttaritara Vísis í Khöfn í morgun. — Viggo Kampmann for- sætisráðherra Dana gekk í gær á fund ambassadors Islands í Danmörku Stefáns Jóhanns Stefánssonar og tilkynnti honum formlega þá ákvörðun dönsku ríkis- stjómarinnar að fresta af- hendingu handritanna. I yfirlýsingu dönsku ríkis- stjórnarinnar segir að hún líti ekki á lögin um afhend- inguna, sem eignarnám. Hún kveðst þó ekki vilja eiga á hættu illdeilur sem kunna að leiða af því að ekki sé virt krafan um frestun afliendingarinnar. Ríkisstjórnm tók jafnfiamt fram að hún mundi jafn- skjótt og nýtt þing kemur saman leggja frumvarpið fyrir það til samþykktar. Það er einnig ætlun dönsku ríkisstjórnarinnar að láta hraða Ijósmyndun þeirra handrita, sem væntanlega verða afhent Islendingum. Enda þótt ríkisstjórnin komi fram sem ein heild er hún gef- ur út þessa yfirlýsingu er vitað! að innan hennar voru mjög skiptar skoðanir um það hvort taka ætti tillit til kröfunnar um frestun. Eftir að skeyti fréttaritarans hafði verið sent í gær barst enn eitt skeyti til danska þingsins með kröfu um frestun. Hafa þá 61 þingmaður undirrita kröf- una. — Þingmaður Færeyja, 'Johan Poulsen, hefir lýst því yfir að hann muni ekki rita undir slíka kröfu. Vísir og 17. júní. Það hefir ekki verið venja, að Vísir kæmi út 17. júní, en að þessu sinni verður brugðið út af þeirri venju, þar sem dagur- inn er að mörgu hátíðlegri en endranær. Blaðið kemur út eld- angjaA So ‘qijbuibjjXj i eunuaus að kalla eingöngu helgað minn- ingu Jóns Sigurðssonar, birtar greinar um hann með myndum og þar fram eftir götunum. Móttaka ríkisstjórnar 17. júní. Ríkisstjórnin tekur á móti gestum í Ráðherrabústaðnum, Tjarnargötu 32, þjóðhátíðar- daginn 17. júní, kl. 4—6. Forsætisráðuneytið, 15. júní 1961.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.