Vísir - 16.06.1961, Page 3

Vísir - 16.06.1961, Page 3
I Fö'-trJagur 16. júní 1961 VlSIR » 4 I ♦ ,y: S55:::::::::::::íA:í:$»í^»:::: í.v.v.v.v.v.vmwav,;,;/ ............ Fegurstu I dag birtum við myndir af Marlene Dietrich, Marlene hinni eilífu, sem fyrir löngu er orðin amma, en er þó enn kvenna fegurst. Hér er hún fyrir nokkrum vikum í Hollywood, þar sem hún leikur í nýrri kvikmynd, „Niirnberg réttarhöldin“, með Burt Lancaster. Síðbuxurnar minna á að sagt er, að Marlene hafi verið fyrsta konan, sem klæddist þeim á al- mannafæri og vakti auðvitað hneyksli! Bróf: t ngadauðinn á Tjörninni. Bretar hjálpa til að finna Venusnik. Hefur verið týnd síðan um miðjan febrúar. Hér liggja fyrir framan mig á borðinu fjórir dauðir og hálf- dauðir andarungar sem segja sína sögu. Ungamæðurnar hafa komið með þá fyrir stuttu síð- an á Tjörnina, og vilja synda með þá á gamlar slóðir þar sem þeim er mest gefið, en veður breytist og bárur rísa á vatninu, : og brotna við steinkantinn sem hlaðinn hefir verið með Tjarn- argötunni. Slást þessir litlu vesalingar þá við grjótið en komast hvergi á land, blotnar þá dúnninn við litla brjóstið þeirra strax svo þeir verða ó- sjálfbjarga, og krakkarnir bera þá hálf og aldauða inn til okkar á slökkvistöðina, þar sem ekkert er hægt fyrir þá að gera. Eg er að segja frá þessu af því að eg veit að svo mörgum þykir bæði gaman og vænt um litlu ungana, þegar þeir koma með mæðrum sínum á Tjörn- ina fyrst á • vorin, og myndu sannarlega vilja að þeim væru sköpuð þar hin beztu uþpeldis- skilyrði, og að tillit yrði tekið til þess þegar lagfæring færi fram á umhverfi Tjarnarinnar. En eins og nú er háttað með frágang tjarnarbakkanna hér á heimatjörninni, þar sem unga mæður halda sig mikið með unga sína, er það hreinasta hending ef nokkuð af þessu ungviði heldur þar lífi. Vil eg því biðja yður, sem þarna ráð- ið vinnubrögðum, um smálag- færingu. Það er þá fyrst nokkr- ar steyptar uppgöngubrýr við grjótkanta Tjarnargötunnar, þar sem ungarnir ættu hægt um uppgöngu, og helzt að grjót- hnullungarnir í götuhallanum yrðu fjarlægðir á nokkrum stöðum, og grasþökur settar í staðinn. Ennfremur vil eg biðja um þrjá haglega útbúna flot- fleka, sem staðsettir væru nokkra metra frá landi, tveir meðfram Tjarnargötunni, og einn framan við Vonarstræti, og gætu ungamæður átt þar griðland með unga sína. Vona eg svo að góðvild yðar, og umhyggja fyrir aðþrengdu lífi, ráði því að þér gerið allt sem hægt er til að minnka ungadauðann á Tjörninni, því hann er okkur Reykvíkingum sízt til sóma. Kjartar. Ólafsson. Kannskc geta brezkir vís- indamenn í rannsóknarstöðinni á Jodrell Bank hjálpað Rússum til að finna Venusflaugina — Venusenik — þá sem þeir týndu 17. febrúar sl. Rakettunni var skotið á loft 12. febrúar sl. en radio-merki hennar dóu út fimm dögum síðar. Síðan hefur ekkert frá henni heyrst svo vitað sé með vissu. Rakettan á nú að vera komin eins nálægt Venus og henni var ætlað að fara. Rann- sóknarstöðin í Jodrell Bank hefur náð merkjasendingu ein- mitt úr þeirri átt sem rakett- ann ætti að vera í um þessar mundir. Rússar hafa beðið vís- indamennina þar að kanna mál- ið betur. Ei er vitað um nokk- urn annan hlut sem gæti sent frá sér radiomerki úr þessari átt. Tveir rússneskir vísinda- menn eru viðstaddir tilraun- irnar. I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.