Vísir - 16.06.1961, Blaðsíða 5

Vísir - 16.06.1961, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. júní 1961 V I S 1 H 3 KASSAGERÐIN KRAFÐIST LÖG- BANNS. Kassagerð Reykjavíkur hef- ur krafizt þess fyrir fógetarétti að lagt verði lögbann á aðgerð- ir verkamannafélagsins Dags- brúnar gegn vinnu starfsmanna Kassagerðarinnar. Lögfræðingur Kassagerðar- innar Páll S. Pálsson hrl. lagði kröfuna fram í gær ásamt greinargerð. Þar er bent á að aðgerðir Dagsbrúnar séu gerðar í fullkomnu heimildarleysi, að ekki sé nokkur fótur fyrir þeim í íslenzkum lögum. Lögfræð- ingurinn gat þess einnig að Kassagerðin væri að framleiða kassa utan um frystan fisk til útflutnings og það mundi verða mikið tjón fyrir frystihúsin ef sú framleiðsla yrði að stöðvast. Lögmaðurinn benti enn frem ur á að enginn starfsmanna Kassagerðarinnar væri í Dags- brún og sú vinna sem Dagsbrún stöðvaði hefði ekki verið fram- kvæmd af meðlimum Dags- brúnar. Með þessu máli er reynt að stemma stigu fyrir sífellt meiri áleitni verkfallsmanna við lög i og rétt. Þeir hafa tekið að sér löggæzlu í landinu í algjöru heimildarleysi, að því er lög- fræðingurinn álítur. Talmaður Dagsbrúnar Egill Sigurgeirsson hrl. fékk frest til kl. 16 í dag til að skila svari sínu og greinargerð. Einn af varaforsætisráð- herrum Sovétríkjanna, Mikhail Krumitjov, varð bráðkvaddur í síðustu viku, 60 ára gamall. Sýning um ævistarf Jóns Sicfurðssonar. — opnuð í BogasaEnum í dag. f dag verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins sýning sem fjallar um ævi og starf Jóns Sigurðssonar. Sýningin verður opnuð kl. 5 síðdegis í dag af Gylfa Þ. Gíslasyni, mennta- málaráðherra, og verða þá við- staddir boðsgestir, en sýning- in verður opnuð almenningi klukkustundu síðar. Að þessari sýningu standa Þjóðminjasafnið og Félag ísl. fræða, og þeir sem unnið hafa mest að undirbúningi sýning- arinnar af hálfu félagsins, eru þeir Árni Böðvarsson, Jón Að- alsteinn Jónsson og Þórhallur '‘Vilmundarson. ' Sýningin fjallar um sögu hinnar heilladrjúgu starfsemi og forystu Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttu 19. aldar, en auk þess er að finna þar sýnis- horn af bréfum hans og bréfum til ýmissa merkra manna, svo og bækur og útgáfur sem hann starfaði að. Á sýningunni eru einnig ljós- myndir, málverk og högg-, myndir af Jóni, auk húsgagna úr búslóð hans, ræðustóls úr þingsals Menntaskólans o. fl. Er þetta hin merkasta sýning, og vafalaust mun almenning- ur leggja leið sína í Bogasalinn þann tíma sem sýningin stend- ur. FULLTRÚIÍSLANDSI TOKYOFERD. Nýlega lagði flugvél upp frá Kastrup-flugvelli til Japans og var mjög dýrmætur „farmur“ í lienni. Meðal farþega voru nefnilega fimm yngismeyjar, þær feg- urstu, sem eigendum flugfé- lagsins hafði tekizt að finna til að bjóða í ferðalag til Tokyo í og nokkra daga dvöl í Japan. | Voru stúlkurnar valdar þannig.: að ein var frá hverju Norður- landanna, og fyrir fslands hönd fór Ragnheiður Jónasdóttir (Sveirissonar læknis) þessa för. Það er japanskt flugfélag, sem bauð stúlkunum í þessa för, og gerir. það vitanlega í auglýsingaskyni, ekki aðeins gagnvart Japan, þar sem það verður að keppa við mörg út- lend flugfélög, heldur og með! tilliti til væntanlegra farþega J á Norðurlöndum. Kagstœðir tæjar- reikningar 1960. Eignir jukust en skuldir lækkuðu. Nokkur atriði úr ræðu Geirs Hall- grímssonar borgarstjóra í gær. Reikningar Reykjavíkurbæjar 1960 lágu fyrir bæjarstjórnarfundi í gær til fyrri umræðu. Niðurstöður bans sýna að áætlanir og rekstrarútgjöld hafa staðizt svo til nákvæmlega, skuldir bæjarsjóðs hafa lækkað mjög verulega, bætt hefur verið úr fjárskorti ýmissa fyrirtækja bæjarins, og að greiðslujöfnuður bæjar- sjóðsins er hagstæðari nú en um langt skeið. Jafnframt varð mikil eignaaukning þrátt fyrir óvenju miklar af- skriftir. Geir Hallgrímsson borgar- stjóri skýrði reikningana í ítarlegri ræðu. Hann hóf mál sitt með því að þakka þeim starfsmönnum Reykjavíkur- bæjar, sem gengu frá reikning- unum, þeim Gunnlaugi Peturs- ( syni borgarritara, Guttormi, Erlendssyni aðalendurskoðanda og Karli Á. Torfasyni aðalbók- ara. Síðan ræddi borgarstjori reikningana. í fjárhagsáætlun fyrir árið 1960 voru rekstrartekjur áætl- aðar kr. 261.882.500,00, en urðu samkvæmt reikningikr. 2 7 Q.— 624.494,03 eða að^ins kr. 8,7 millj. hærri en gert var ráð fyrir í áætluninni. Rekstrargjöldin voru áætluð kr. 219.882.500,00 og á árir.u voru gerðar viðbótarsamþj’kkt- ir af bæjarstjórn kr 311 þús., þannig að áætlunin er alls kr. 220,0 millj. Samkvæmt reikn- ingum urðu rekstrargjöldir. kr 220.5 millj. eða tæpum 300 þús. kr.hærri en áætlunin. Hrein eign bæjarins í árslok 1960 var 688.8 millj. kr. og hafði aukist um 58.4 millj. á árinu. Hafa eignir bæjarins auk- ist mjög ört á undanförnum árum, enda þótt þeirri reglu sé Loftleiðir t Frh. af 16. síðu: árið og Saga unz hún var seld. Ein léíguflugvéi frá Braathen var i förum allt árið og önnur hluta árs. Á þessu ári var Þor- finnur Karlsefni keyptur 4. marz, en Hekla seld og afhent 11. marz. í gær voru nákvæm- lega 14 ár síðan Hekla kom fyrst til landsins. Starfsmenn Loftleiða eru nú um 300, þar af helmingur í Reykjavík. Á árinu skilaði félagið tæpum 24 Vextirnir sköpuðu jafnvægi í peningamálunum. Framsóknarmenn og kommúnistar hafa þrásinn- is gagnrýnt vaxtahækkun- ina og kveðið hana mesta mein fyrir efnahagslíf- ið og afkomu almennings. Sannleikur málsins er allur annar. Vaxtahækkunin í janúar 1960 átti sinn ríka þátt í því að loks eftir mörg ár er komið jafnvægi á í pcningamálunum og útlán bankanna og sparifjármynd- unin stenzt að mestu á. Við vaxtahækkunina tóku sparifjárinnlög mjög að auk- ast. Síðustu níu mánuðina 1959 voru þau aðeins 226 millj., cn á sama tímabili 1960 höfðu þau axið upp í 380 millj. Er það aukning um hvorki meira né minna en rúmar 150 millj. kr. Á sama tímabili 1959 voru út- lán bankanna 350 millj. kr. meiri en innlögin. Árið 1960 var loks fengið hér jafnvægi. Þá nam aukning sparifjár- innlaga nær 16 millj. kr. meiru en útlána. Sparifjárinr.lög eru und- irstaðan undir fjárfesting- unni og blómlegu efnahags- lífi. Jafnvægi milli innlána og útlána er hér höfuðnauð- syn og það náðist fyrst eftir gengisbreytinguna. Á þessa Iilið málsins minnast komm- únistar og framsóknarmenn aldrei. Þeir láta sig engu varða þótt sparifé fólks rýrni óhæfilega og fólkið tapi svo trausti á srjaldmiðlmum, að það hætti að leggja fé í banka. it yfirleitt fylgt að afskrifa fast- eignir í fasteignamat Skuldir bæjarsjóðs lækkuðu um 9.4 millj. kr. á árinu. Af- borgunarlán hækkuðu um 12 millj., skuldabréfalán lækkuðu um 1.4 millj., lausaskuldir lækkuðu um 9.4 millj. og skuldir við ýmsa lánardrottna lækkuðu um 14.6 millj. kr, — Skuldir við sjóði bæjarins hækkuðu um 4 millj. í lok ræðu sinnar gat borg- arstjóri þess að skuldir ríkis- sjóðs við Reykjavikurbæ hefðu lækkað um 6.1 millj. á árinu éða úr 20 9 millj í 14 millj. kr. Greiðslujöfnuður bæjarsjóðs- ins sjálfs varð hagstæður á árinu um 4.6 millj. króna. Hann hafði á undanförnum á árum mest ■orðið hagstæður um 2 milljónir. millj. kr. í erlendum gjaldeyri til bankanna. Á þessu ári hafa verið fluttir 15,412 farþegar, 18'*?' meira en á sama tíma í fyrra, flutningur á vörum aukizt um 15%, pósts um 62%. Farþegabókanir hafa aldrei verið meiri en nú. Heildarvelta félagsins nam s. 1. ár kr. 227,167,242. Afskrifað- ar voru kr. 11,153,610, rekstrar- afgangur kr. 1,141,388. Stjórnin var öll endurkjörin, og samþykkti fundurinn að fé- lagið réðist í kaup á fjórðu Cloudmastervélinni. Sjómenn — Framh. af 1. síðu. sem var skorinn upp strax. Hon um líður nú vel. Tveir bátar eru nú farnir héð an og norður á síld, eru það Sæborg og Sigurfari, sem fóru norður í gærkveldi. lyrsta \- skip þýzka. í frétt frá Hamborg segir, að fyrsta vestur-þýzka kjarnorku- skipið verði 16 þús. lesta vöru- flutningaskip. Skipasmíðinni verður lokið í fyrsta lagi í árslok 1964. Frá þessu var skýrt á fundi í Ham- borgar-senatinu fyrir skömmu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.