Vísir - 16.06.1961, Blaðsíða 2
2
VÍSIR
Föstudagur 16. júni 1961
—J Li—
my//m
Islenzka landsliðið.
Meðalaldnr rúin 22 ár.
Yngvar Elíasson, hægri úther'ji.
Yngvar er aðeins 20 ára og
leikur með I.A. Hann var
markhæstur í fyrstu deild í
fyrra og varð þá Islandsmeist-
ari. Þetta er briðji landsleikur
Yngvars.
Gunnar Felixsson, hægri inn-
herji er eini nýliðinn í liðinu.
Gunnar er í K.R., 21 árs gam-
all. Hann hefur ekki leikið sem
fastur maður í K.R. liðinu fyrr
en í sumar.
Sveinn Teitsson vinstri fram-
vörður, er elzti og reyndasti
maður liðsins. Sveinn er 30 ára
og leikur á mánudaginn, sinn
20. landsleik. Hann hefur leikið
með Akranesi frá því 1951
og er sexfaldur fslandsmeistari.
Þórólfur Beck, miðframherji,
21 árs gamall í K.R. Hefur
verið sjálfsagður maður í
landsliðið síðastliðinn þrjú ár
og er nú kenndur við atvinnu-
mennsku. 7 landsleikir.
Heimir Guðjónsson, markvörð-
ur. Hann er 24 ára gamall og
hefur leikið með K.R. frá 1955.
Þetta er 2. landsleikur Heimis,
en hann lék gegn Dönum 1959.
Þess má gcta, að í dag gengur
Heimir í hcilagt hjónaband og
og ástæða til að óska honum og
brúðinni til hamingju.
Árni Njálsson, hægri bakvörð-
ur, verður 25 ára í dag og hef-
ur leikið með Val síðan 1954.
Þetta er tíundi landsleikur
Árna.
Liðið er að mestu skipað
sömu mönnum og unnu Skot-
ana á dögunum. Heimir er sett-
ur í markið í stað Helga o'g
Steingrímur er á vinstri vængn
um í stað Guðjóns Jónssonar.
Ungir menn eru í flestum stööð-
um, t. d. er Ellert elztur þeirra
framlínuspilara, 21 árs! Elzti
maður liðsins er fyrirliðinn
Sveinn Teitsson, þrítugur. Mcð
Helgi Jónsson, vinstri bak-
vörður. Helgi er nýorðinn 25
ára og hefur leikið með K.R.
síðan 1956. Oftast nær sem
framvörður. Hann er fyrirliði
K.R.-liðsins á leikvelli og leik-
ur nú sinn annan Iandsleik.
Helgi er lögfræðingur að
mennt.
Garðar Árnason, hægri fram-
vörður. Garðar er 25 ára gam-
all ogleikur með K.R. Hann lék
fyrst með landsliðinu 1959 á
móti Dönum og hefur verið
fastur maður í liðinu síðan,
nema hvað hann missti úr leik-
ina gegn Þjóðverjum og írum
í fyrra, vegna meiðsla. Samtals
5 landsíeikir.
Landsliðsnefnd hefur tekið
lokaákvörðun. Liðið er valið.
Margir . gagnrýna vafalaust
skipanina, vilja fá hinn mann-
inn í staðinn fyrir þennan. En
hver hefur sína skoðun, og hlut-
verk nefndarinnar er erfitt.
Það, verða menn að hafa í huga.
Nú verðum við aðeins að óska
þessu endanlega liði góðs geng-
s í leiknum.
alaldur liðsins er rúmlega 22
ár. í liðinu eru 6 KR-ingar, 2
Akurnesingar, og einn maður
frá hverju félaginu, Fram,
Val og Akureyri.
Athyglisvert er, að í fram-
Iínunni eru þrír miðherjar
Yngvar, Þórólfur og Steingrím
ur og í liðinu fimm framverð-
ir, Garðar, Sveinn, Rúnar,
Helgi og Gunnar Felixsson.
Rúnar Guðmannsson, miðfram-
vörður. Hann er 22 ára að aldri,
og er í Fram. Þar hefur hann
leikið sem miðvörður í 4 ár og
er nú fyrirliði liðsins. Hann er
cini maður liðsins, sem einnig
er landsliðsmaður. í liandknatt-
Ieik. Þetta er 6.- landsleikur
Rúnars, og er hann einn eftir
af liðinu, sem Ick gegn írum
1958.
Ellert Schram, vinstri innherji,
21 árs gamall, er í K.R. Hefur
leikið með K.R, síðan 1957 og
cinn landslcik, móti Noregi
1959.
Steingrímur Björnsson vinstri
útherji. Steingrímur er Akur-
eyringur, 20 ára gamall og leik-
ur oftast sem miðherji með liði
sínu f.B.A. Þetta verður hans 3.
landsleikur.
Armenningar!
Ármenningar ungir sem gamlir.
í sambandi við íþróttaviku
F.R.Í. verður íþróttasvæði
Glímufélagsins Ármanns við
Sigtún opna í dag kl. 5 til 11
e. h. Þar geta allir þeir sem
vilja reynt við greinar þær sem
keppt er í. Keppt er í fjórum
greinum karla 100 m hlaupi,
800 m hlaupi, langstökki og
kringlukasti, en hjá konum í
100 m hlaupi, langstökki og
kúluvarpi. Lágmarksafrek er
meðal annars að hlaupa 100 m
á 16 sek og gefur það eitt stig.
Allir félagar, ungir sem
gamlir, eru hvattir til að
spreyta sig í greinum þessum
og mæta á svæði félagsins í
kvöld (föstudag).