Vísir - 21.06.1961, Page 2
2
VlSIR
Jfrí&vikudagur 21.~Júní 1961
pnJ DP pli P t=s Dl
w//////m
KR keppir í kvöld
við Hollendingana.
í kvöld leika Hollendingarn-
ir annan leik sinn hér. Mæta
þeir Bikarmeisturum KR og
hefst leikurinn kl. 8.30 á Laug-
ardagsvellinum.
KR-ingar mæta ekki til leiks
með sitt sterkasta lið. Þórólfur
er skroppinn til Skotlands, eins
og kunnugt er, kemur ekki
heim fyrr en á laugardag — og
Þórólfur faðmar Gunnar,
Gunnar faðmar Þórólf. 1—0
fyrir tsland.
Helgi Jónsson leikur heldur
ekki með vegna anna.
Þá er Gunnar Felixson vafa-
samur, vegna meiðsla, sem
hann fékk í landsleiknum, KR
hefur að vísu sterka varamenn,
eins og í Ijós kom í fyrra, en
það hlýtur að segja til sín, þeg-
ar þrjá sterka menn vantar í
liðið.
Það verður t. d. fróðlegt að
sjá, hvernig liðinu reiðir af án
Þórólfs. En hvað sem úr verð-
ur, þá er hitti víst að KR-ingar
gefa ekki sinn hlut fyrr en i
fulla hnefana.
KR-Iiðið verður væntanlega
þannig skipað: Heimir Guð-
jónsson, Hreiðar Ársælsson,
Bjami Felixson, Garðar Árna-
son, Hörður Felixson, Reynir
Schmidt, Leifur Gíslason,
Sveinn Jónsson, Ellert Schram,
Gunnar Felixson, og Gunnar
Guðmannsson.
Erlendis frá.
ítalski spretthlauparinn,
Berutti, „sem sló í gegn“ í Róm
í fyrra, virðist vera í góðri æf-
ingu aftur. Hann hljóp fyrir
skömmu 200 metrana á sama
tíma og hann hljóp í Róm í
fyrra, en það var Olympíumet.
Tíminn, 20.5, er sá sami og
heimsmetið, hlaupið á braut
með beygju.
Brasiliska knattspyrnuliðið
Santos lék um daginn við Ev-
rópumeistarana Benefica frá
Portúgal og sigruðu þeir fyrr-
nefndu 6—3. Santos hafði yfir
Hefðum átt að vinna
segja Danir
Eins og frá var skýrt hér í
blaðinu í gær léku Danir og
Svíar landsleik í knattspyrnu
á sunnudaginn. Leikurinn fór
fram í Kaupmannahöfn og
sigruðu þeir síðarnefndu með
tveim mörkum gegn engu. Ole
Madsen skoraði fyrir Danina,
en Rune Börjesen annað mark
Svíanna. Hitt var sjálfsmark.
Dönsku blöðin eru öll sam-
mála um óréttmæt úrslit, tala
um himinhrópandi ranglæti og
slæman dómara. Fjórar víta-
spyrnur hefðu átt að vera
dæmdar á Svíana segir Póli-
tikeiíyí risafyrirsögn. Það mun-
ar ekki um það!
Framverðirnir Bent Krogh
og Bent Hansen, útherjinn Ole
Madsen og varnarleikmenn-
irnir Hans Chr. Nielsen og H.
Hellbrandt voru beztu menn
danska liðsins. „Svíar hafa
aldrei verið lélegri en nú“ og
R. Börjesen og B. Nyholm,
markvörðurinn eru þeir einu
sem fá góða dóma.
Athugun var gerð á því, hve
milcið dönsku landsliðsmenn-
irnir léttust við að leika í 90
mínútur. í Ijós kom, að þessir
ellefu menn léttust samtals um
I6V2 kg. Einn leikmannanna
missti 3 kg!
í kvöldverðarboði því, sem
KSÍ hélt hollenzku og ís-
lenzku knattspyrnumönnun-
um að landsleiknum loknum
á mánudagskvöldið
var Sveinn Teitsson verð-
launaður fyrir sína tuttugu
landsleiki. Afhenti Björgvin
Schram formaður knatt-
spyrnusambandsins honum
litla styttu af knattspyrnu-
manni, áletraða. Þakkaði
hann Sveini fyrir alla
góðu leiki fyrir ísland og lét
í ljós þá von sína, að þessi
20. leikur hans yrði ekki
seinasti. Undir það tóku all-
ir viðstaddir með dynjandi
lófataki.
Sveinn Teitsson hefur
leikið með Akranesliðinu
allt frá 1948 eða 13 ár sam-
tals. 1953 lék hann sinn
fyrsta landsleik gegn Aust-
urríki. Skoraði hann þá
mark, sem lengi mun vera
minnistætt, þeim sem sáu.
Sveinn einlék upp allan völl
inn og þegar andstæðingarn-
ir bjuggust við sendingu,
þrumaði hann af 30 metra
færi og knötturinn lenti í
bláhorninu — inni.
Sjö árum seinna skoraði
Sveinn aftur mark fyrir ís-
lcnzka landsliðið, þá gegn
Dönum í Kaupmannahöfn í
fyrra. Hann skoraði eina
mark fslendinga og leiknum
lauk 1—1, eftir einhvern
bezta leik íslenzks landsliðs.
Sex sinnum hefur Sveinn
orðið íslandsmeistari eða
jafnoft og lið Akraness.
Á leikvellinum hcfur hann
áunnið sér vinsældir og að-
dáun áhorfenda og leik-
manna, með- og mótherja,
fyrir drengilega framkomu,
snjallan leik og ódrepandi
baráttuhug.
í dag er Sveinn Teitsson
fyrirliði íslenzka Iandsliðs-
ins á leikvelli. Blaðið óskar
honum til hamingju með á-
fangann.
1
Hvað um knöttinn?
4—0 í hálfleik, en Benefica
minnkaði bilið niður í 4—3.
Það var ekki fyrr en undra-
maðurinn Pele, skoraði tvö
mörk, sem sigurdnn varð vís.
Rússland sigraði Tyrkland
í knattspyrnu 1—0, og Júgó-
slavar sigruðu Marokko 3—2,
eftir að Marokkóbúar höfðu
haft yfir 2—0 í hálfleik.
Nýlega léku Ítalía og Argen-
tína landsleik í knattspyrnu.
Ítalía sigraði 4—1 og þrjú af
mörkunum skoraði Argentínu-
maðurinn Lojacono. Þeir hika
ekki við það, þarna suður frá
að skipta um föðurland eftir
þörfum.
Mitt í öllum hávaðanum og
gleðinni, sem ríkti í búnings-
klefa íslenzka landsliðsins, tók
ég eftir honum 1 einu horni
klefans, skítugum og þreytt-
um. Enginn virti hann viðlits,
né gerði sér það ómak, að
þakka honum fyrir góðan leik.
Laun heimsins eru vanþakk-
læti varð mér að orði, um leið
og ég rölti yfir til hans og tók
hann tali.
„Ja, svona er það nú oftast
nær. Enginn hirðir um mig.
eftir að leiknum er flautað af.
Hér er ég nú búinn að vera
brennipunkturinn í 90 mínút-
ur, níu þúsund manns hafa
fylgzt með hverri hreyfingu
minni og allir þessir stæltu í-
þróttamenn, tuttugu og tveir,
hafa hlaupið og hamast á eftir
mér. Og svo ligg ég hérna, fyr-
ir hunda og manna fótum. Anri
ars verð ég að segja það, sem
íslenzkur fótbolti og eign
Reykj avíkurbæjar, að ég var
stoltur af sjálfum mér í kvöld.
Hollendingunum tókst svo illa
rið hemja mig. Eg reyni auðvit-
að alltaf að gera útlendingum
lífið eins erfitt og hægt er, en í
kvöld tókst mér það svo ljóm-
andi vel.
Og ég er þakklátur íslenzku
leikmönnunum. Þeir spörkuðu
mér ekki alltaf í eintóma vit-
leysu eins og ?vo oft áður og
furðu sjaldan til mótherja.
„Hvaða spark er þér minni-
stæðast úr leiknum?11
„Ja, minnistæðast. Það var
reyndar ekki spark, heldur
kállspyrna. Fjórða markið.
Steingrímur hitti mig ekki
nógu vel, mokaði mér hálfpart-
inn yfir vörnina, og ég sagði
við sjálfan mig, þarna er Þór-
ólfur — hann er í upplögðu
færi. Og sælutilfinningin,
maður, þegar ég small í netið
— henni verður ekki lýst!“
AxOl Andrésson,
18. þessa mánaðar var til
moldar borinn íþróttafröm-
uðurinn og æskulýðsleiðtog-
inn Axel Andrésson. Allir
þeir, sem kynnzt hafa Axel,
og unna íþróttum heilum
hug, sjá á bak góðum félaga
og ötulum leiðbeinanda.
Þeir kveðja hann með sökn-
uði en minnast um leið með
þakklæti allra þcirra ómet-
anlegu starfa og stunda, sem
hann hefur helgað íþrótta-
æskunni.
Benedikt G. Waage, for-
seti ÍSÍ, minntist þessa ást-
sæla og fórnfúsa brautryðj-
anda hér í blaðinu í fyrra-
dag.