Vísir - 21.06.1961, Side 8

Vísir - 21.06.1961, Side 8
o J V1SI3 MiöviKudagur 21. júni 1961 ÚTGEFANDI: BLAÐAÚTGAFAN VlSIR Ritsfjórar: Hersteinn Pólsson Gunnar G Schronv Ritstiórnarskrifstofur: Laugavegi 27 Auglýsingar og afgreiðsia: Ingólfsstrœti 3. ^skriftargjald e» krónur 30,00 ó mónuði f lausorolu krónur 3,00 eintakið. - Slmi 11660 (5 llnui *. - Félags prentsmið}an h.f.. Steindórsprent h.f.. Edd* h.t. Einn árangur verkfallanna. Samkvæmt skýrslu Fiskifélags Islands, sem var gefin út í lok síðustu viku, var aflinn á öllu landinu mun minni á fyrsta fjórðungi þessa árs en á sama tímabili á síðasta ári. Nemur munurinn þriðjungi, að því er bátana snertir, þegar síldarafli er ekki meðtalinn, en hann hefir verið verulegur, eins og almenningi er kunn- ugt. Hinsvegar var afli togaranna öllu betri en á sama tíma í fyrra, enda þá meiri lægð í þeim efnum en dæmi eru til frá öndverðu. Menn gera að sjálfsögðu ráð fyrir, að fiskafli sé misjafn ári til árs. Það er hinn eðlilegi gangur þessarra mála. En hitt er ekki eðlilegt þegar menn gera sér bók- staflega leik að því að rýra þann afla, sem úr sjó er dreginn — koma í veg fyrir, að hægt sé að sækja verð- mætin í sjóinn. Það er hið alvarlega, sem læra má af að lesa þessar þurru tölur, sem Fiskifélagið hefir látið frá sér fara. I stærstu verstöð landsins, Vestmanna- eyjum, var ekki farið á sjó í tvo mánuði, fyrst vegna verkbanns, en síðan vegna verkfalla, sem stóðu marg- falt lengur. Um það verður ekki sagt, hversu mikinn fisk Vest- mannaeyingar hefðu getað fengið á þessum tveim mán- uðum, en mjög hefði það minnkað bilið mill þessa afla, sem fékkst á fjórðungnum í fyrra og nú. Kommúnistar þóttust víst vinna mikinn sigur í því verkfalli, þótt þeir semdu um síðir um það, sem þeim bauðst án verkfalls í byrjun, en mesti sigur þeirra er vitanlega sá, að þeir komu lengi í veg fyrir öflun og sköpun verðmæta. En um leið og þeir geta reiknað sér sigur að þessu leyti, verður þjóðin að telja sér ósigur, því að hver sigur kommúnista er ósigur hennar, en sigur hennar er ósigur fyrir kommúnista. Svo einföld er j rauninni sú barátta, sem þjóðin á í við skaðræðisöflin. Vinslitin fyrir 20 árum. A morgun eru liðin 20 ár frá því að Hitler rauf grið á Stalin vini sínum og lét herskara sína vaða inn í Rússland. Þeim leik lauk með ósköpum tæpum f jórum árum síðar, og er óþarfi að rifja hann upp hér. Hins má gjarnan minnast, að þenna dag misstu nazistar síðustu málsvara sína á íslandi, því að þá hættu kommúnistar að styðja og mæla öllu bót, sem þeir tóku sér fyrir hendur. Það var um þessi tímamót fyrir tuttugu árum, sem kommúnistar hættu á einni nóttu að tala um ,,landráðavinnu“ og fóru að tala fjálglega um ,,landvarnavinnu“, enda leið heldur ekki á löngu áður en skjóta mátti hér á landi, ef það kæmi Rússum að gagni, eins og einn foringinn sagði. Líklega nefna kommúnistar ekki þetta atriði á morgun, er þeir minnast innrásar nazista í Rússland fyrir 20 árum. Ein a£ mörgum uppstillingum Krúsévs á Parísarfundinuin fræga. J landi lífsgleðinnar* Sovézk áróðursstarf- semi hefir ávallt beinst allmjög að h þvj,^að lýsa Sovétríkjunum sem „paradís verkalýðsins“. Því er haldið fram, að í iðnaðinum hafi vinnustund- um á viku verið fækkað i 40.2 klst. Ennfremur er því haldið fram, að 50 af 55 milljónum manna, sem vinna í verksmiðjum og á skrifstofum, þurfi ekki að vinna nema 6—7 klst á dag. Þessum staðhæfingum og fleirum hefur verið útvarp- að um allan heim til þess að leggja áherzlu á, að komm- únistiska fyrirkomulagið og kerfið sé fullkomnara því, sem er í „auðvaldsríkjun- um.“ En þegar sovézki verka- maðurinn kvartar yfir því, að þegar vinnustundum sé fækkað beri hann minna úr býtum, heyrist lítið um það í sovézku útvarpi til annara landa. Og 7 klst. vinnudagur — alla virka daga — hefur ekki enn leitt til þess, að verkamaðurinn fái fleiri frí- stundir eða geti notað þær að eigin vild. í lýðræðislöndunum hefur verkamaðurinn full yfirráð yfir frítíma sínum. Hann getur notað hann til þess að vinna fyrir sjálfan sig, eða aðra, og haft hagnað af, án þess nokkur fáist um, til þess að fara i ferðalög með fjölskyldu sinni, til þess að sækja skemmtanir, í stuttu máli: Hann er alfrjáls og engar hömlur á hann lagðar varðandi notkun frístunda. En í Sovétríkjunum hafa valdamenn ímugust á sliku frjálsræði verkalýðsins. Þar er ætlast til þess, að verka- maðurinn noti frístundin.ar til þess að auka við þekkingu sína og tæknikunnáttu. í einni tilskipun sovét- stjórnarinnar er ákvæði um það, að húseiganda, sem á bifreið, og notar hana sér til tekjuaukningar, skuli stimpl aður sem „sníkjudýr“. — Ákvörðunina um útlegð get- ur „verkamannadómstóll“ tekið eða verkalýðsfélag, og áfrýjunarréttur er enginn. Tilskipunin nær til allra fullorðinna og vinnufærra manna, sem ekki „starfa heiðarlega, forðast félagslega nytsamt starf og lifa sem „sníkjudýr“ og bregðast þannig þeim skyldum, sem stjórnarskráin leggur sovét- borgurum á herðar.“ Tass lýsir þeim, sem hér er átt við, sem mönnum, ,,er hafi notið menntunar á kostnað ríkisins, neitað að láta þar nokkuð í móti koma, og að loknu námi í há- skóla eða tækniskóla, forðast að taka að sér það hlutverk, sem þeim er ætlað.“ Tass segir og sömu mann- tegundar og iðjuleysingja þá menn, sem nota. eignir sínar, m. a. einkabifreiðir, svo og eignir ríkisins með því að nota opinber farar- tæki, til þess að afla sér tekna, sem þeir hafa ekki unnið fyrir. Þá er stjórninni heimilt að gera upptækar eigur manna, sem þeir hafa kom- ist yfir, án þess að stunda heiðarleg störf. Er það nokkur furða þótt sovét-verkamaðurinn velti því fyrir sér hvers vegna verkalýðsfélag eða verka- mannadómátóll skuli hafa heimild til þess að dæma menn til 2ja—5 ára vinnu- þrælkunar í vinnustöðvum? Þessir dómstólar voru settir á stofn 1959, þegar af- numdir voru, eftir dauða Stalins, hinir alræmdu dóm- stólar (troikas) fram- kvæmdavaldsins. Enginn vafi er, að afleiðing þess, að verkamannadómstólarnir voru settir á stdfn, er að verkamenn hafa gert æ meira að því að njósna hver um annan. Fyrir nokkru var birt grein um verkamannadóm- stólana eftir höfund að nafni K. Keizerov (í Sotsialist- ichenskii Trud, nr. 3, marz, 1961). Þar segir, að leiða megi fyrir rétt þá, sem köma of seint til vinnu. Þar er því og haldið fram, að dóm- stólarnir eigi ekki að bíða eftir verkefnum, heldur taka sér þau, þótt engar Framh. á 9. síðu

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.