Vísir - 11.07.1961, Síða 16
VISIR
Þriðjudagur 11. júlí 1961.
Timbri stolið.
Eftirlitsma'ður við hina miklu
viðbótarbyggingu Landsspítal-
ans hefir kært til rannsóknar-
lögreglunnar þjófnað á þó
nokkru magni af timbri.
Telur eftirlitsmaðurinn, að
300 borðum, flestum 12 feta
löngum, hafi verið stolið. Eru
borðin merkt með stöfunum
HV. Er þetta tirnbur um 10.000
kr. virði.
Sameiginlegi
markaðurinn..
Framh. af 1. síðu.
sagði ráðherrann. í kjölfar við-
skiptaeinangrunar myndi fylgja
einangrun á öðrum sviðum.
Ef við gerumst aðilar að við-
skiptaheild Evrópu þá myndi
afnám tollverndar á 10 árum
valda miklum erfiðleikum, hélt
ráðherrann áfram. Hvort við
yrðum færir að mæta þeim færi
eftir því, hvaða vaxtaskilyrði
aðild að slíku viðskiptasam-
starfi skaðaði sjávarútveg-
inum vegna frjálsari viðskipta-
hátta og öðrum atvinnugreinum
vegna greiðari aðgangs að er-
lendu fjármagni.
Þá gat ráðherrann þess að
ef til aðildar okkar að sam-
ciginlega markaðnum kæmi
þá gætum við ekki leyft
bandalagsþjóðunum að
veiða í íslenzkri fiskvciði-
landhelgi þótt slík jafnrétt-
isaðstaða allra þátttakenda
virðist felast í Bómarsamn-
ingnum.
„Hins vegar kæmumst við
ekki hjá að athuga stefnu okk-
ar varðandi réttindi útlendinga
til löndunar á fiski og reksturs
fiskiðjuvera, ef til aðildar ætti
að koma, enda yrði sú stefna
sem nú er fylgt okkur sjálfum
ekki lengur nauðsynleg, ef
tryggja mætti með öðru móti
að breyting á henni leiddi ekki
lil ofveiði“, sagði ráðherrann.
Þá skýrði hann einnig frá
því að undanfarið hefðu sjónar
mið okkar íslendinga verið
kynnt fyrir fríverzlunarbanda-
laginu í Genf (EFTA) en ekki
hefði verið leitað formlega eft-
ir aðild að því „enda veldur
hin hraða atburðarrás sl. mán-
mánuði og sú óvissa, sem ríkir,
því að álitamál er hver vinn-
ingur væri að slíkri aðild að svo
stöddu".
Innbrotsþjófar stálu skart-
gripum fyrir 20,000 dollara
í heimili skopleikarans
Jimmy (Schnozzle) Durante
í Hollywood í síðustu viku.
Geysilegt síldarmagn er vi5 Austíirii.
Óslitin röð skipa frá Héraðsflóa til
Raufarhafnar öll fullfermd af síld.
Uni 80 skip Iiaia tilkyimt 05 |>iis.
1 ii ii ii iii* i nóll.
Meiri síld er nú út af Aust-
fjörðum en dæmi munu vera
til um þó nokkurt árabil. Er
allur þorri veiðiskipaflotans
við Digranes og suður af því.
Má geta þess að hið nafntog-
aða skip, Víðir II. fékk þarna
900 mál að morgni þess 10. og
í morgun kom Víðir II. með
1600 tn. sem verða saltaðar
hjá Haföldimii, hinni nýju
söltunarstöð Sveins Bene-
diktssonar. Það fylgdi þess-
ari fregn, að síldin væri vað
andi á stóru svæði.
Fréttaritari Vísis á Raufar-
höfn skýrði blaðinu svo frá í
morgun að 42 skip hefðu til-
kynnt afla sinn til Raufarhafn
ar í morgun með samtals 35
þúsund tunnur, og 35 skip
höfðu tilkynnt komu sína til
Seyðisfjarðar með 28 þús.
tunnur.
Klukkan hálffjögur í nótt
var ákveðin sólarhrings lönd-
únarbið á Vopnafirði og 10 skip
biðu eftir löndun undir krana
á Seyðisfirði kl. hálftíu í morg-
un. Óslitin röð skipa er á leið
með fullfermi til hafnar allt frá
Héraðsflóa til Raufarhafnar
og skipin streyma stanzlaust til
Raufarhafnar.
í dag verður saltað á hverri
einustu höfn á Austfjörðum,
þar sem síldarsöltun verður á
annað borð við komið. Á nokkr
um stöðum á Norður- og Aust-
urlandi er tunnuleysi og farið
að bera á saltskorti.
Verksmiðjan á Raufarhöfn
er aftur að taka til starfa og er
þar landað með fjórum lönd-
unartækjum og þróarpláss er
þar fyrir 70 þúsund mál.
Veður er gott eystra, logn en
dumbungur og þoka.
Fanney fann mikla síld
40—50 mílur austur af súðri
frá Seyðisfirði, en þar voru
engin skip komin í morgun.
Voru ekki færri en 10 síldar-
torfur á asdic-glugganum í
einu.
167 ára
þurrkur
enda
Allt komst á annan end-
ann í stórborginni Fíladelfíu
um síðustu helgi. Voru sum-
ir ofsakátir og töldu mikinn
sigur unninn á steinrunnu
afturlialdi, en aðrir álitu
menningunni nú hættara en
áður. Orsökin var sú, að þá
var leyft í fyrsta skipti, að
hafa vínveitingastofur opnar
á sunnudögum. Það hefir
verið bannað undanfarin 167
ár!
Islenzkur doktor
í erföafræöi.
Dr. Sturla Friðriksson erfða-
fræðingur kom fyrir skömmu
síðan frá Kanada eftir að hafa
varið doktorsritgerð við há-
skólann í Saskatoon um kyn-
blöndun á ákveðnum hópum
belgjurta.
Dr. Sturla sagði í stuttu
símtali í morgun að hann hefði
byrjað á ritgerðinni árið 1957,
eftir að hann kom til Kanada
í boði kanadíska rannsóknar-
ráðsins til ársdvalar, fram á
árið 1958. Síðan kom hann
heim og' vann sl. vetur við
rannsóknir og skriftir þar til
hann fór aftur til Kanada í
þeim tilgangi að verja ritgerð
sína.
Andmælendur voru 7, þar á
meðal einn af íslenzkum ætt-
um, T. Árnason, Eyfirðingur
og skylddr Steindór.i Stein-
dórssyni yfirkennara á Akur-
eyri, eftir því sem dr. Sturla
taldi sig vita bezt.
Dr. Sturla kvaðst hafa valið
háskólann í Saskatoon, því að
hann stendur fremst í Kanada,
þeirra háskóla, sem fást við
rannsóknir og tilraunir í sam-
bandi við korn- og grasrækt,
enda stendur skólinn í einu
helzta gras- og kornræktarhér-
aði Kanada. Dr. Sturla kynnt-
ist skólanum er hann var við
Dr. Sturla Friðriksson.
nám í Cornell-háskólanum í
Bandaríkjunum en þaðan lauk
hann magisterprófi 1946.
Dr. Sturla Friðriksson naut
styrkja frá Kanadastjórn svo
og íslenzka Vísindasjóðnum,
við undirbúning sinn að rit-
gerðinni.
Málflutningi
frestaö.
Málflutningi í kærumáli
Vinnuveitendasambands fs-
lands á hendur Verkamannafé-
laginu Dagsbrún hefir verið
frestað til liaustsins.
Málið er sem kunnugt er
sprottið af töfum sem urðu við
afgreiðslu ms. Laxá í sl. viku.
f gær lagði málsvari Dags-
brúnar fram greinargerð félags-
ins fyrir Félagsdóm. Áður hafði
fulltrúi Vinnuveitendasam-
bandsins lagt fram sina grein-
argerð með kærunni.
Afgreiðslu skipsins er nú
lokið og skipið farið úr Reykja-
víkurhöfn.
Það hefir verið borið
brezk tryggingafélög, a
þau vilji ekki tryggja bif
reiðar blökkumanna.
★ Fjögur hundruð nienú, sem
gruna'ðir eru um að vera
kommúnistar, hafa verið
handteknir í Tyrklandi.
Júri Gagarin, geimfari, var í morgun á leiðinni flugleiðis til London. Hann mun koma
fram á stórri rússneskri vörusýnngu þar í borg. Nú bíða menn bess hvernig hann muni
standa sig á blaðamannafundinum í dag.
Veðurhorfur:
A og NA gola
Úrkomulaust.
Hiti 8—11 st.