Vísir - 25.07.1961, Blaðsíða 2

Vísir - 25.07.1961, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 25. júlí 1961 VISIK JTJ-gTTp BMa teo^ & —Lf“ i - - * i.. ■■■ pi 1mmm jmmm Línumar skýrast í 1. deíld Valsmenn sækja — Geir ver. FRAM FÉKK KÆRKOMID STIG. Frawn — Yulur 1 — 1 Fram og Valur léku á Laug- ardalsvclilinum í gærkvöldi. — Valur sinn sjöunda leik í ís- landsmótinu — Fram sinn átt- unda. — Leikurinn endaði með jafntefli 1:1, en í rauninni var það sigur fyrir Fram. Ekki gegn Val heldur gagnvart fallhætt- unni, því Hafnarfjörður, sem nú hefir eitt stig, verður að vinna tvo leiki, til þess að halda sér uppi í deildinni Úrslitin voru nokkuð sann- gjörn eftir gangi leiksins. Fram sótti meira í fyrri hálfleik og átti hættulegri tækifæri, en Valur hafði aftur á móti yfir- höndina í seinni hálfleik. í heild var leikurinn þófkenndur og samleikurinn allur óná- kvæmur. En baráttan var mik- il, sérstaklega til að byrja með. Taugóstyrkur virtist há leik- mönnum nokkuð fyrsta stund- arfjórðunginn, aðall. Framur- pm, enda mikið í húfi fyrir þá. En smám saman hvarf hann, og þá náðu Framarar oft á tíðum dálaglegum upphlaupum. Guð- jón komst inn fyrir eftir skemmtilegan samleik við Guðmund, en skaut illilega framhjá. Guðmundur átti opið færi, en gaf knöttinn í stað þess að skjóta sjálfur og þá komst Dagbjartur algerlega frír inn fyrir. Hann komst meira að segja svo langt að leika á markvörðinn, en þegar markið virtist liggja opið fyrir, brást honum bogalistin, og bezta tækifæri Fram til að ná yfir- höndinni í leiknum fór forgörð- um. Skömmu seinna ná Vals- menn upphlaupi, en þegar hættunni hefir verið bægt frá, hrindir Hinrik, framvörður Fram, Matthíasi illilega innan vítateigs og dómarinn, Guðbj. Jónsson, dæmir viðstöðulaust vítaspyrnu. Margir voru furðu lostnir yfir svo hörðum dómi, þar sem knötturinn var víðs fjarri, „én það á alltaf að dæma vítaspyrnu, ári tillits til þess hvar knötturinn er, ef brot sem þetta er framið innan vítateigs, jafnvcl þótt knötturinn sé hinum megin á vcllinum“, sagði Guðbjörn eftir leikinn. Björgvin Daníelsson skoraði örugglega úr spyrnunni. 1:0 fyrir Val, var ekki sanngjörn tala eftir gangi leiksins, og það var eins og forlögin v.iður- kenndu það, því litlu síðar skoraði Þorsteinn bakvörður Vals, sjálfsmark, 1:1. Seinni hálfleikinn byrjuðu báðir af miklum krafti og leik- urinn var um stund íifandi og skemmtilegur. En hvorugu lið- inu tókst að skapa sér veruleg tækifæri, og brátt varð þófið í algleymingi. Valsmenn réðu öllu á miðjunni og sóttu mun meira utan örfárra upphlaupa Frams, sérstaklega undir lokin. Valsframlínan var sundur- laus og léleg, mest fyrir þá sök, að tveir menn, Gunnlaugur og Halldór, áttu alls ekki heima þar. Aftasta vörnin var sem fyrr sterkasti hluti liðsins, jafnvel eftir að Árni Njálsson fór út af seint í fyrri hálfleik. Framliðið barðist nú, ekki kannske af krafti, en af mesta mætti, og þeir báru úr býtum ágætar sóknarlotur í fyrri hálfleik, Með örlítilli heppni hefðu þeir getað krækt í bæði stigin. Ragnar Jóhannsson var beztur Framara, og eins átti Sigurður bakvörður góðan leik. c.b.s. íslenzka íþróttafólkið, sem keppt hefur á Landsmóti skot- fimleika og íþróttafélaga í Dan mörku, hefur staðið sig mjög vel. Litlar og slæmar fréttir hafa borizt frá mótinu en vitað er, að. íslénzki karlaflokkurinn sigraði og stúlkurnar urðu í 2. sæti. Stig.in urðu. Karlar: 1. ísland 7830 stig. 2. S-Slésvík 6136 stig. Svo bregðast krosstré... Hinn heimsfrægi ástralski millivegahlaupari Herb. Elli- ott, hefur undanfarið ár, dvalið í Oxford við nám, Hefut hann því hlaupið þar í landi en náð misjöfnum árangri. Um daginn hljóp hann í Brighton, hljóp 880 yarda hlaup og varð aðeins 7. Sigur- vegarinn, Kilford hljóp á 1:51, 1, en Elliott á 1:59,9. Eftir hlaupif' sagðist Elli- ott vita, að áhorfendur hefðu orðið fyrir vonbrigð- um, en ég hefði ekki getað hlaupið sekúndu fljótar. Línurnar í yfirstandandi fs- Iandsmóti eru nú að skýrast. Ljóst er, að baráttan um efsta sætið mun eingöngu standa milli K.R. og Akranes, cn þessi félög tók strax forystu í mót- inu en K.R. hefur fylgt fast eftir. Akranes hefur nú tapað þrem stigum, en K.R. einu, en Akranes hefur leikið tveim Ieikjum meira. Liklegt er, að leikirnir milli þessara liða inn- byrðis ráði algjörlega úrslitum mótsins, en þeir verða ekki leiknir fyrr en í september, þá báðir í sömu vikunni. Valur og Akureyri eru bæði í „no man’s land“, bæði úr fall- hættu en þó án möguleika til sigurs, a.m.k. lítilla. Aftur á móti eru Framarar, sem fyrirfram voru taldir sig- urstranglegir í mótinu, enn að verjast falli, hafa aðeins hlotið 4 stig úr átta leikjum. — Þó vænkaðist hagur þeirra að mun, í gærkveldi er þeir náðu dýr- mætu stigi gegn Val, en Hafn- firðingar eiga þó eftir fjóra leiki og allt getur skeð í knatt- 3. Noregur 6080 stig. Konur: 1. Randers-amt 7836 stig 2. ísland 7797 stig. 3. Vejle 7778 stig. 4. Noregur 7548 stig, Þessi árangur flokksins er mjög ánægjulegur, en ekki svo óvæntur, þar sem í honum eru ýmsir allþekktir íþróttamenn. Má þar nefna spretthlauparann Ólaf Unnsteinsson, stökkvar- ana Þórð Indriðason og Ingólf Bárðason, og kastarana Ágúst Ásgrímsson og Brynjar Jens- son. Björk Ingimundardóttir vann 80 m. hlaup kvenna. Ihí/i* oístur Norðurlandaskákmótið hélt áfram í gær. Þá var fjórða um- ferð tefld. í landsliðsflokki sigraði Ingi R. Gaumhold i 34 leikjum, en aðrar skákir fóru í bið. Ingi er því efstur með 3V2 vinning, en ngestu menn hafa tvo vinning'a. í meistaraflokki A er Reimar spyrnu. Á morgun, miðvikudag leika þeir fyrri leik sinn við K.R., en auk þess eiga þeir eft- ir leiki við Val og Fram í Hafnarfirði. Hér er staðan í mótinu eftir leikinn i gær: Akranes 7 5 1 1 11 st. 13—6 K.R. ..5 4 0 1 9 st. 16—5 Valur .7 3 2 2 8 st. 12—8 Akureyr 7 3 3 1 7 st. 17—20 Fram .8 1 5 2 4 st. 6—10 Í.B.H. .6 0 5 1 1 st. 3—18 í fyrradag fór fram úrslita- leikur II. cleildar, ísafjörður og Keflavík léku. Eins og frá var skýrt í blaðinu í gær, sigruðu þeir fyrrnefndu, 7:3. Tilkoma ísfirðinga í fyrstu deild, er vissulega gleðileg, og sýnir að geta utanbæjarliðanna og knattspyrnuáhuginn yfirleitt í landinu fer vaxandi. ísfirð- ingar hafa þrjú síðastliðinn ár, leikið til úrslita í annarri deild, og ekki verið nema hársbreidd frá takmarkinu. Sigur þeirra í ár var verðskuldaður, enda „höfðu þeir gert sér háar vonir um sigur í þessum leik.“ í liði þeirra eru margir prýðis knatt- spyrnumenn, og ber þar hæst landsliðsmanninn Björn Helga- son. En um leið og ísfirðingar fagna sigri, þyngist brúnin á sunnanmönnum og eru nú jafnvel uppi raddir um það, að hin tvöfalda umferð fs- 'landsmótsins leggist niður. Ástæðan fyrir því yrði þá hin gífurlegi og óviðráðan- legi ferðakostnaður, sem samfara yrði keppnisförum til ísafjarðar. Nógu er hann bágborinn samt. Við skulum vona, að svo verði ekki — að hin tvöfalda umferð, sem gcfið hefur svo góða raun, keppnislega séð, haldi áfram velli, og svo verði frá gengið, að hvorki fsfirðingar né aðrir beri skarðan hlut frá borði. Sigurðsson efstur með 3 v. af 4 mögulegum, en næstur er Jónas Þorvaldsson með 2% v. af 3 mögulegum. í meistaraflokki B er Jónas Kr. Jónsson efstur með IVz v. Norski unglingameistarinn Zwaig er efstur í unglinga- flokki með v. en næstir koma Guðmundur Þórðarson og Bragi Kristjánsson með 3 vinninga hvor. íslenzkir sigra. IMorðurlandaskákmótið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.