Vísir - 25.07.1961, Blaðsíða 10
10
V ISIR
Þriðjudagur 25. júlí 1961
SMÍDA 6 EVRÚPULð::0 KJARN-
ORKUKAUPFAR í SAMEININGU?
Máli5 rætt á fundi kjarnfræðinga
í París í haust
Horfur eru á, að Noregur og
fimm lönd önnur geri með sér
félag um að smíða kjarnorku-
kaupfar. Rætt hefir verið um,
að smíðað yrði 65.000 lesta
olíuskip, en til greina kemur
einnig minna skip til flutninga
á „lausaförmum“, olíu, kolum,
korn eða þess háttar.
Það er Gunnar Randers,
f ramkvæmdast j óri kjarnorku-
fræðinefndar Noregs, sem hefir
látið hafa þetta eftir sér og
hann hefir ennfremur upplýst,
að málið muni verða rætt á
fundi kjarnfræðinga ýmissa
Evrópulanda í haust.
Annars er það mála sannast,
að eins og verðlagi er nú háttað
og öllum kostnaði við útgerð
venjulegra skipa miðað við
fjárfestingu í kjarnorkuskipum,
er mun dýrara að starfrækja
kjarnorkuskip, svo að fyrsta
skip Norðmanna af þessu tagi
verður að öllum líkindum
smíðað á vegum hins opinbera
og verður fyrst og fremst til-
raunaskip. Áætlaður kostnaður
mun vera um 150 milljónir
norskra króna, en það svarar til
um 800 milljóna ísl. króna.
Norðmenn eiga gjarnorkuofn
í Halden, og þeir hafa á undan-
förnum árum athugað endur-
bætur á honum. Það er ofn af
slíku tagi, sem einkum kæmi
til greina, sagði Randers, ef
Norðmenn leggja í að smíða
k j arnorkukaupf ar.
En það eru fleiri Evrópu-
þjóðir, sem hyggja á að smíða
slík kaupför. Þjóðverjar hafa
þegar tilkynnt, að þeir séu
komnir út í sjálfan undirbún-
inginn og ítalir virðast ekki
mjög langt á eftir þeim. Þá
er haft fyrir satt, að Danir, Eng-
lendingar og Belgar sé að velta
því fyrir sér, hvort þeir eigi að
afla sér reynslu á þessu sviði
með því að smíða sjálfir kjarn-
orkukaupfar, eða láta sér nægja
að fá allar upplýsingar frá
öðrum, þegar málin verða kom-
in á þann rekspöl, að það getur
farið að borga sig að smíða
slíkt skip.
Fulltrúar allra þessara þjóða,
auk Frakka, Hollendinga, Aust-
urríkismanna, Finna og Svía,
munu koma saman á fund þann
í París, sem getið er hér að
ofan.
Bandaríkjamenn hafa orðið
fyrstir með flota kjarnorku-
báta, Rússar leggja áhezlu á
kjarnokuísbrjóta, svo að þessar
þjóðir segja sem svo: Hvers
vegna eigum við ekki að verða
fyrstir með flota kjarnorku-
kaupskipa.
Kennedy Bandaríkjaforseti
hefir nú fengið nýjan bíl til
umráða, og cr sá ekki dóna-
legur, eins og menn geta
gert sér í hugarlund. Kunn-
áttumenn hafa nefnilega
komizt svo að orði, að bif-
reið þessi sé undratæki í alla
staði. — Hér er um að ræða
Lincoln Limousine, 3990 kg.
á þyngd, sem verið hefir í
smíðum í fimm mánuði sam-
kvæmt fyrirmælum örygg-
islögreglunnar, en annars
var byrjað að undirbúa
smíðina fyrir hvorki meira
né minna en fjórum árum.
Einna mesta eftirtekt vekur
aftursæti bílsins (sjá mynd-
irnar), því að fyrirkomulag
þess er þannig, að með því
að þrýsta á hnapp er hægt
að hækka það um 25—30
sentímetra, svo að forsetinn
sjáist betur, til dæmis þegar
hann ekur fremst í skrúð-
fylkingu. Þá er hægt að hafa
þrennskonar þak á bílnum
og fer það eftir veðri og
öðru hvaða þak er notað, en
eitt er úr gegnsæu plasti. —
Sérstök þrep eru utan á bif-
reiðinni handa öryggislög-
reglumönniun, og er hægt að
draga þau inn í bílskrokk-
inn með einu handtaki, J»eg-
ar þeirra er ekki þörf, og
svo mikið er af allskonar
raftækjum í bifreiðinni, að
hanzkahilla er engin frammi
í henni heldur er allt fullt
af öryggjum og rofum, þar
sem hún ætti að vera. —
Loks eru tvær talstöðvar í
bílnum, og önniu: þannig,
að hún er með „þvæli“, svo
að úr henni kemur einungis
„þvæla“, sem skilst aðeins, ef
notað er sérstakt viðtæki.
IMÝJUIMGAR
á tæknisviðinu.
mmmmmpmmmm
í-.
llii
■ :
-
Þeir segja í Buffalo í Banda-
ríkjunum, að þeir noti
„Rock’n’Roll” til að finna
aðferðir til að bjarga manns-
lífum. Þeir taka skrokk af
bíl — eða yfirbygginguna —
og velta honum sitt á hvað
með brúðum innanborðs, og
svo er athugað, hvernig
þeim hefir vegnað í „slys-
inu“, sem þannig er útbúið.
Mcðan yfirbyggingin er að
veltast og snúast, eru alls-
konar niælitæki í gangi til
að fylgjast með því, hvernig
brúðurnar kastast til, hversu
langt þær fara, hversu mikið
aflið er, þegar þær skella á
gluggum, hurðum eða lofti
bílsins. Þá er einnig hægt að
Iáta bílinn snúast öðru vísi
en um lengdaröxul sinn.
Einnig er hægt að snúa hon-
um eins og hann endasteyp-
ist á jafnsléttu eða niður
brekku. Loks er þess að geta,
að hraðvirkar myndavélar
fyl&jast nákvæmlega með
hreyfingum bílsins og brúð-
anna. — Myndin hér að ofan
er af slíkri veltu og má sjá
tvær brúður í bílnum.
Vélin hreinsar stonti-
U3Í-3U ur
Rannsóknamiðstöð Bandaríska kvæmum athugunum í
landbúnaðarráðuneytisins er að
prófa vél, sem á að geta hreins-
að „strontium 90“-helryk, sem
myndast við kjarnorkuspreng-
ingar — úr mjólk.
Tilgangurinn er vitanlega áð
tryggja, að mjólk skemmist
ekki, þótt helryk hafi fallið til
jarðar í bithögum eftir kjarn-
orkurásir. Jafnframt hafa em-
bættismenn ráðuneytisins bent
á, að strontiúm það, sem fallið
hefir til járðar í sambandi við
kjarnorkusprengingar, sé ekki
svo mikið, að mönnum geti
stafað hætta af.
Fyrsta vélin í þessum til-
gangi, sem nú er verið að prófa,
var smíðuð að loknum ná-
rann-
sóknastofu. Þær athuganir
leiddu í ljós, að kleift er að ná
þessum geislavirka ísótóp úr
mjólkinni með því að hleypa
henni gegnum leiðslur með
smákúlum með vissum efnum.
Ef sýrumagn mjólkurinnar er
aukið meðan á þessu stendur,
er unnt að ná 98% af strontium-
innihaldinu úr mjólkinni. Eng-
in breyting hefr komð fram á
bragð mjólkur, sem farið hefir
gegnum vél þá, er að ofan get-
ur.
Til fróðleiks má geta þess í
þessu sambandi, að jurtir íaka
til sín dálítinn hluta þess stront-
íum 90, sem til jarðar fellur,
Framh. á bls. 5.