Vísir - 25.07.1961, Blaðsíða 15

Vísir - 25.07.1961, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 25. júlí 1961 VISIR 15 okkur ef ég færi inn og hringdi bjöllunni og spyrði glaðlega þann, sem kæmi til dyra: — Afsakið þér, á nokk- ur Entwhistle heima hérna? Mér mundi ekki koma það að neinu haldi. Annað hvort mundi alls ekki verða opnað, eða einhver kæmi og svaraði: — Nei, Entwhistle hefur aldr- ei átt heima héma, og svo mundi hurðinni verða skellt aftur fyrir nefinu á mér. Meðan ég rölti þarna, kom kona út úr nr. 2 og hellti úr skjólu. Hún var hnellin og nett og horfði forvitnislega á mig um stund. — Afsakið þér, sagði ég. Hún stóð kyrr, horfði á mig og beið. — Mér var sagt að hér væri til leigu myndastofa, ég held að það hafi verið í númer 3, en ég er ekki alveg viss um það. Vitið þér nokkuð um það ? Ég brosti til hennar eins hlýlega og ég gat. Hún horfði á mig og svaraði: — Nei, ég veit það ekki. Hver hefur sent yður hingað ? — 1 rauninni hefur enginn sent mig. Ég kem ekki frá fasteignasala eða þess konar, á ég við. En kunningi minn sagði mér að kannske — ja, þér vitið hvernig maður frétt- ir svona, sagði ég. — Ég skal segja yður alveg eins og er. Ég frétti að maðurinn, sem bjó þar væri dáinn fyrir 29 skömmu, og að húsnæðið mundi vera laust. En kann- ske hef ég fengið skakkar upplýsingar ? — Þér eigið við hr. Sea- mon? — Já, ég held að hann hafi heitið Seamon. ■ Nú sýndist mér hún athuga mig enn betur. — Ég veit ekki hvort hús- næðið er til leigu eða ekki — en þér eruð ekki sú fyrsta, sem spyr um það. Þeir voru hérna eins og flugur kringum sírópskrukku fyrstu vikuna eftir að þetta gerðist. — Jú, það er ekki nema eðlilegt, sagði ég. — Það er svo erfitt að fá íbúðir núna. Maður er í hreinustu vand- ræðum. Vitið þér hvort nokk- ur er þar núna? Það mun ekki vera til neins að biðja um að lofa sér að sjá íbúð- ina? Ég hefði getað faðmað hana fyrir það sem hún sagði nú: — Ég get vel sýnt yður hana, ef þér viljið. Það hlýt- ur að vera leyfilegt, en sem sagt veit ég ekki hvort hún er til leigu eða ekki. Ég skal ná í lykilinn, ef þér viljið bíða á meðan. Hún hvarf inn úr dyrun- um hjá sér og kom eftir svip- stund og fór á undan mér upp stigann í nr. 3. Nú stóð ég þar sem Adam hlaut að hafa staðið þetta ör- lagaríka kvöld. Kannske hafði hann fyrst sezt í bríka- stólinn þama og snúið að skrifborðinu — það var ný- legt skrifborð með lampa, , sem hægt var að hækka og lækka. Seamon hlaut að hafa setið innan við borðið, bros- andi — er hann ýtti ljós- myndinni af Rosemary til gestsins. — Það er engin á- stæða til a ðæðrast — við skulum tala saman eins og siðaðir menn. Má ég bjóða yður glas? Þarna stóð vínskápurinn, alveg eins og Adam hafði lýst honum, aðeins eina alin frá horninu. Hvar hafði Sea- mon geymt filmurnar að ljós- myndunum ? 1 skrifborðs- skúffunni ? 1 peningaskáp ? Það gat hafa verið leynihólf í veggnum þarna við glugg- ann. Hvað var í stofunni að öðru leyti? Fleiri stólar — legubekkur. Sumt gamalt, sumt alveg nýtt. Þarna var mikið af Ijósmyndatækjum, sem virtust vera dýr, lampi og þrífótur. Svo var þarna skjalaskápur. 1 glugganum voru kaktusar, og klifurblóm upp með þilinu. Meðfram einum veggnum var þunnur rafmagnsofn, og við annan vegginn arinn með fallegri og óefað dýrri grind SKYTTtRIMAR ÞRJÆR 40 Orð Richelieu voru örugg vís- bending um, að hætta væri á ferð- um, en d’Artagnan vissi sjálfur, að hann gæti aldrei bundizt vin- áttuböndum við kardínálann. Fyr- ir utan biðu vinir hans spenntir að heyra hvað skeð hafði, en þegar þeir heyrðu það, voru allir sammála um, að hann hefði gert rétt i þvi að afþakka boð kardí- nálans. Næsta morgun sendi de Treville skyttuliða sína til konungsins, þar sem hann heiðraði þá: Það var hugmynd konungs að leggja af stað sama kvöld. I millítíðinni hélt d’Artagnan af stað til la Roc- helle með sína hersveit. Hann tók ekki eftir að Mylady reið þétt framhjá og sendi tvo menn inn í raðir hersveitarinnar til að at- huga hvort þar væri ekki áreið- anlega kominn d’Artagnan sjálf- ur. Þegar hún hafði fullvissað sig um það, gaf hún mönnunum merki og reið síðan í burtu La Rochelle var eitt stærsta pólitíska þrætueplið i tíð Lúð- víks 13. og eitt mikilvægasta hern. aðartakmark Richelieu. Þetta var siðasti staðurinn af þeim stöðum sem Hinrik 4. hafði gefið húgen- ettunum, og þennan stað urðu calvinistarnir að vinna. En það sem meira var, þá var höfn stað- arins opin fyrir Englendingunum. Ef Richelieu sigraði staðinn, sigr- aði hann Buckingham og auð- mýkti þannig hertogann í augum drottningarinnar. En Buckingham hafði þegar unnið fyrstu orrust- una: Eftir blóðugan bardaga hafði honum tekizt að ná landgöngu á strönd Frakklands. I fyrir framan. Ég vildi ekki sætta mig við skýringu Adams á því, sem I hefði gerzt þarna. Ég vildi ! heldur hallast að því, að Rose- mary hefði verið þarna þetta ! kvöld, og að hún . .. — Hérna er svefnherberg- ið, sagði stúlkan og sýndi ! mér inn í næsta herbergi. - j Og svo er hérna bað og vatns- | salerni. Þetta er vitanlega ekki stórt, en nægir fyrir ein- hleyping. Þetta er alveg nóg handa mér, — það er ágætt! sagði ! ég hrifin e rvið komum inn í stofuna aftur. Ég vona að mér verði fyrirgefið þó ég lygi blygðunarlaust: — Ég er tízkuteiknari, skiljið þér, og þessi íbúð mundi henta mér ágætlega. En vitanlega tekst mér ekki að ná í hana — það eru svo margir um boðið, eins og þér segið. En það var vel gert af yður að lofa mér að sjá íbúðina. Það eina sem mér finnsf að ... þegar ein- hver deyr... jæja, manni finnst eitthvað óhugnanlegt við staðinn. En auðvitað er það ekki nema kenjar. Var það hérna, sem maðurinn dó ? Og hann dó skyndilega? Hún horfði íhugandi á mig. — Morð gerast oftast skyndi- lega, sagði hún svo. — Morð ? Var Seamon my’rtur? Ég heyrði einhvern orðasveim, en ... Hörmung er að heyra þetta! — Ég hefði kannske ekki átt að segja frá þessu, sagði nágrannakonan og fór út áð dyrunum. — Hvers vegna ekki ? Þér vitið það auðsjáanlega. — Ég ætti að vita það. Það var ég sem fann hann. — Það hefur verið hræði- legt! — Já, ég var ekki burðug þá, það segi ég satt. Ég gerði hreint í íbúðinni hans, og eins og ég var vön kom ég um morguninn til þess að taka til morgunmatinn handa honum, og þá lá hann á gólf- inu, einmitt þar sem þér standið núna. Ég steig skref aftur á bak og horfði á gólfdúkinn við tærnar á mér, hann lá fyrir framan arininn. Það var tals- verður spölur frá arninum og að barskápnum, tók ég eftir — öll stofulengdin. — Mikil hörmung, sagði ég aftur. — Og var hann — steindauður? Hann hafði verið dauður í marga klukkutíma. Síðan kvöldið áður — ég gat sagt lögreglunni nákvæmlega til um það, því að ég sá morð- ingjann þegar hann fór. Ekki svo að skilja að ég vissi að hann var morðingi þá — vit- anlega. — Þetta hefur verið hræði- legt fyrir yður. Hxað gerðuð þér? — Ekkert, fyrst í stað. Ég vissi ekki hvað um var að vera, þó ég sæi að eitthvað væri að manninum sem fór út. Mér datt í hug að hann væri kannske fullur og að minnsta kosti var hann injög æstur. Það vildi svo til að maðurinn minn talaði nokkur orð við hann, hann er bílstjóri hjá einum nágranna okkar, og þegar hann var að setja bílinn inn, ók þessi maður fram hjá í stórum bíl — það var víst Monarch. Hann hafði látið hann standa í Fanshawe Street — og hann beyglaði hjólhlífina á bíl Sams. Sam varð auðvitað f júkandi vond- ur. Þetta var talsverð skemmd, og Sam lét hann hafa það óþvegið, eins og þér getið hugsað yður. En hinn tautaði eitthvað og ók sína leið. Það er í rauninni ekki undarlegt, þegar maður hugs- ar til þess, sem hann hafði aðhafzt inni í íbúðinni. En Sam náði númerinu á bílnum, og þess vegna gátum við hjálpað lögreglunni, sem bet- ur fór. — Hvað er að heyra þetta! En eruð þér alveg viss um að Þetta var einasta leiðin til að fá Herbert með mér til að horfa á stykkið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.