Vísir - 06.09.1961, Blaðsíða 2
I
VÍSIR
Miðvikudagur 6. sept. 1961
III. £1. K.R.B. hefur sigrað bæði Rvk og Miðsuniarsmót. Þjálfari flokksins er Guðm. Haraldsson.
Grettir tók á móti Axel
í DrangeyjcifjöriE
frásögn Árnu E*orbjjörn ssunur uf
sundi Æxels hrurun.
Eins og lesendum Vísis er
kunnugt, hefir Axel Kvaran nú
þrcytt Drangeyjarsund á nýjum
mettíma. Hann hafir dvalið hér
nyrðra síðan á þriðjudag ásamt
Eyjólfi Jónssyni sundkappa, en
hann var með sem ráðunautur
og hjálparhella. Eyjólfur hefir,
eins og flcstir vita, tvívegis
synt Drangeyjarsund og cr því
öllum hnútum kunnugur.
Eftir þessa löngu bið og óhag-
stætt veður freistuðu þeir gæf-
unnar á sunnudagsmorgun og
var eg undirritaður einn fylgd-
armannanna.
Ráðgert var að leggja af stað
kl. 7 um morguninn og stóðst
sú áætlun að mestu. Farkost-
urinn var allstór oj góð ,,trilla“.
Formaður á henni var Sveinn
Nikódemusson, reyndur sjó-
sóknari og þaulvanur Drang-
eyjarferðum,
Þegar að Reykjum kom var
fenginn að láni léttabátur, því
Leiðrétting.
í VIÐTALI því sem haft var
við Gunnar Felixsson hér á
síðunni á mánudaginn, var
sagt frá því að knattspyrnu
flokkur Fram væri fyrsti
íslenzki íþróttaflokkurinn,
sem sótt hefði Rússa heim.
Þetta mun þó vera rangt,
því árið 1957 fór íþrótta-
flokkUr frá ÍR'til Rússlands.
Eru ÍR-ingar hér með beðn-
ir afsökunar á þessu rang-
hermi.
trillan flaut ekki alveg að
fjöru. Dumbungsveður var og
næstum logn og sjólaust, en rétt
þegar leggja átti af stað var
kominn snarpur þvervestan
vindur.
Varð það að ráði, að Axel
skyldi synda frá Reykjadiski
(nes) fram til eyjar. Voru nú
föggur borr.ar í kænuna og Ax-
el, Eyj ilfur og eg fórum í henni
til lands. Skyldu bátsverjar aðr-
i ir bíða eftir að Axel hæfi sund-
ið, en við Eyjólfur róa kænunni
fram í trillu, er sundið væri haf-
ið. Héldui við nú til Reykja
og þáðum hinn bezta beina hjá
frúnni og síðan smurði Eyjólfur
Axel allan í heldur óhrjálegt
efni, sem þeir sögðu að væri
ullarfeiti og ómissandi þeim,
er mikið svamla í köldum sjó.
Vnr klístrað 8 kg. af efni þessu
á kroppinn á manninum. Síðan
var haldið til sjávar og gekk
„hinn smurði“ í fararbroddi.
Veður fór versnandi. Var orðið
allhvasst af vestri og töluvert
brot við „Diskinn". Lofthiti var
10 stig, en sjávarhiti 9. Setti
hroll"að sumum er þetta vitnað-
ist, en Kvaran tók öllu rólega.
Virtist aldrei kvika að honum
að hætta við þetta, að mér
fannst fífldjarfa fyrirtæki. Nú
og E.yjólfur og Gunnar bóndi
voru hinir bjartsýnustu. Klukk-
an 11.40 lagði Kvaran til sunds,
þótt mér, lítt syndum land-
krabbanum, sýndist þetta -vera
hreint sjálfsmorð.
Með föstum og rólegum
bringusundstökum komst hann
heilu og höldnu í hreinan sjó.
Við höfðum auga með honum
um stund og sýndist honum
skila mjög vel. Síðan héldum
við Eyjólfur af stað í kænunni
eftir að Gunnar bóndi hafði
lagt blessun Guðs og sína yfir
okkur. Hrundum við Eyjólfur
fram kænunni og settumst und-
ir árar. Ekki virtist okkur far-
kosturinn mikill í sjó að leggja
sem líka kom á daginn. Þegar
við vorum rétt komnir úr land-
vari hvessti til muna a. m. k.
6 vindstig og gerði krappan og
vondan sjó. Fór svo að við Eyj-
ólfur náðum trillunni aldrei, en
tókum Drangeyjarfjöru við ill-
an leik tveimur og hálfum tíma
síðar. Var eg staðráðinn í því
ef illa færi, þótt ekki hefði eg
nú orð á því við Eyjólf, að
bregða á sama ráð og Sæmund-
ur heitinn við selinn forðum.
Sem betur fór, slapp Eyjólfur
vel við þá raun. Er við komum
á fjöruna sá um við okkur mik-
illar furðu, að trillan var undra
skammt undan og þá myndi
Kvaran einnig vera á næstu
grösum. Satt að segja höfðum
við Eyjólfur talið. meðan verst
lét á kænunni, að sundið væri
vonlaust. En það var engum
blöðum um það að fletta, trill-
an færðist nær og brátt komum
við auga á Kvaran er hann kom
á öldutoppa. Veður fór nú frek-
ar batnandi og færðist sund-
maðurinn óðfluga nær. Síðasta
spölinn brá hann fyrir sig skrið-
sundi, en upp að‘fjörunni synti
hann sömu öruggu og fimlausu
: Steinsen meíl KR,
*
Nröur og Donni meh I*?
Vísir hefir haft spurnir af
því eftir áreiðanl. heimild-
um, að hinn góðkunni lands-
liðsmaður Örn Steinsen, út-
herji í KR, sé væntanlegur
heim nú í vikunni og muni
leika með KR-Iiðinu gegn
Akranesi á sunnudaginn.
Varla þarf að kynna Örn
nánar fyrir lesendum, því
hann hefir leikið með KR og
landsliðinu undanfarin
sumur með góðum árangri
og er fyrir löngu landskunn-
ur knattspyrnumaður.
Nú í sumar hefir hann
hinsvegar dvalizt í Danmörku
og starfað fyrir Flugfélag
fslands þar. Mun Örn hafa
æft þar í sumar bæði með
KB og eins með litlu félagi
nærri Kastrup flugvelli.
Varla er að cfa, að þátt-
taka Arnar í Iciknum mundi
verða KR-Iiðinu mikill styrk-
ur.
Ofan af Skaga hafa þær
fréttir borizt, að Þórður
Þórðarson og Halldór Sigur-
björnson (Donni) æfi báðir
af krafti. Akurnesingar hafa
ennþá ekki ákveðið lið
sitt, en ekkert er líklegra en
að þessir tveir menn verði
báðir með. Kristinn Gunn-
laugsson hefir einnig náð sér
fullkomlega eftir meiðsli þau
sem hann átti við að stríða í
sumar.
Örn Steinsen.
Með hann sem bakvörð,
Gunnar Gunnarsson sem
miðframvÖrð og Þórðana
báða, Yngvar og Donna í
framlínunni, gæti Akranes-
liðið orðið með sterkasta
móti.
Væntanlega munu bæði fé-
lögin tilkynna sín endan-
legu lið á föstudagsmorgun.
tökunum, sem hann hóf þetta
frábærlega sund með. Klukk-
an 14.53 reis hann á fætur og
óð í land óstuddur og hlæjandi.
Veifaði hann til okkar Eyjólfs
og spurði hvar Gunnar væri.
Við stóðum eins og glópar.
Jú hann sagðist örugglcga
hafa séð þrjá menn í fjörunni,
þegar liann synti seinustu
metrana, Kannskc gamli Grett-
ir hafi staðið þarna til þess að
veita þessum unga nútímagarpi
liollustu og velþóknun sína.
Ekki var þreytu að sjá á
Kvaran svo sem áður er sagt,
kvað hann sér hafa liðið vel all-
an tímann sem hann var á
sundi, utan þess að nokkur ó-
þægindi voru af sjógangi.
Samfylgd hafði hann haft
nokkra á sundinu er selur kom
og fylgdist með honum spotta-
korn. Einnig hafði hnýsa eitt-
hvað verið að gefa honum hýrt
auga. Trúi eg að sú hafi verið
fulltrúi hafmeyjanna og átt
að glepja Kvaran í djúpið.
Hafi þeir félagar beztu þökk
fyrir komuna hingað. Slíkir
menn eru líklegir til þess að
geta vakið löngun til dáða í
hugum æskumanna okkar, og
það miklu frekar en ýmsir sið-
ferðisprédikarar, sem því mið-
ur virðast oftast vinna fyrir
gýg.
Árni Þorbjörnsson.
YALUR ÍSL.MEISTARI
i
í gærkvöldi fór fram á Mela-
vellinum úrslitaleikur fslands-
mótsins í III. flokki. Til úrslita
léku KR og Valur og urðu úr-
slit þau, að Valur sigraði með
3:2.
Leikurinn var hinn fjörug-
asti á köflum vel leikinn. f
báðum liðum eru skemmtilegir
og bráðefnilegir piltar.
KR. skoraði fyrst, en Valur
| hafði 2:1 í hálfleik. KR jafnaði,
en rétt fyrir leikslok skoruðu
Valsmenn úr vítaspyrnu.
Fengu þeir að sigurlaunum
forkunnarfagran og glæsilegan
bikar, gefinn af Lúðvík Þor-
geirssyni kaupmanni.