Vísir - 06.09.1961, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 6. sept. 1961
V ISIK
13
Storm P.
Krossgáta
>•••«•
— Hvað, er þetta forngripur ?
— Já, frá nítjánhundruð og
fjórtán.
Útvarpið
f kvöld:
20:00 Tónleikar: FiSlukonsert
nr. 8 í a-moll op. 47 eftir Lud-
wig Spohr. 20:20 Frásöguþátt-
ur: Farið í fjárréttir; fyrri
hluti (Þormóður Sveinsson á
Akureyri). 20:50 Einsöngur:
Richard Tauber syngur. 21:15
Tækni og vísindi; VTI. þáttur:
Klukkur (Páll Theódórsson eðl-
isfræðingur). 21:35 Islenzk tón
list: Tónverk eftir Kristin
Ingvarssön og Árna Björnsson.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Smyglar-
inn“ eftir Arthur Omre; IV.
(Ingólfur Kristjánsson rith.).
22:30 I léttum tón; Larry Adler
leikur á munnhörpu og Franco
Molinari á harmoniku. 23:00
Dagskrárlok.
Humóoidt-styrkir
bjóðast
SENDIRAÐ Sambandslýðveld-
isins Þýzkalands í Reykjavík
hefur tjáð íslenzkum stjórnar-
völdum, að Alexander von Hum
boldt-stofnunin muni veita
Styrki til rannsóknarstarfa við
háskóla- og vísindastofnanir í
Þýzkalandi háskólaárið 1962—
1963. Styrkirnir eru tvenns kon
ar: —
1. A-styrkir, sem nema 800
þýzkum mörkum á mánuði um
10 mánaða skeið frá 1. októ-
ber 1962.
2. B-styrkir, sem nema 1100
'þýzkum mörkum á mánuði um
6—12 mánaða skeið. Styrktíma
bilið getur þá hafizt hvenær
sem er á árinu.
Umsækjendur um hvora
tveggja styrkina skulu hafa
lokið fullnaðarprófi við há-
skóla í vísindagrein þeirri, er
þeir hyggjast leggja stund á.
Þeir skulu vera að minnsta
kosti 25 ára og að öðru jöfnu
ekki eldri en 35 ára. Umsækj-
endur um A-styrki skulu hafa
starfað að minnsta kosti tvö
ár við háskólakennslu eða rann
sóknarstörf. Umsækjendur um
B-styrki skulu annað hvort
hafa kennt við háskóla í að
minnsta kosti fimm ár eða
stundað sjálfstæð rannsóknar-
BERJAMÁNUÐURINN er
runninn upp. Þeir sem eiga
bíla taka tínur sínar og berja-
ilát og aka upp í sveit, en þeir
sem ekki þurfa að borga bíl-
skatt og viðgerðir veita sér
stundum þann munað að taka
leigubíl einn fagran dag og lofa
börnum sínum og öðru skyldu-
liði að njóta þessa unaðar.
En margs ber að
gæta. Berjalestur heyrir til
hlunninda, enda oft talin í forn
um og nýjum jarðmötum og
þessi hlunnindi eru eign þeirra
manna, sem jarðirnar eiga. Hitt
er annað mál, að með því fá-
menni sem nú er í sveitum kom
ast fæstir yfir að nýta ber úr
landi sínu, og engum koma
þau ber að notum sem verða
útideyða. Það er því þjóðhags-
legur ábati að þessi hollu gæði
verði nýtt sem bezt.
irir'k En Reykvikingar og
allir kaupstaðabúar, hvar á
landi sem er, verða að minn-
ast þess, að þeim ber að fara
heim til bænda og fá leyfi til
þess að tina í landi þeirra, og
bjóða greiðslu. Hún mun sjaldn
ast vera það há, að neinn ein-
stakan muni, en fyrir bóndann
getur þetta safnast þegar sam-
an kemur. Þó mælir öll sann-
girni með því, að börn séu und-
anþegin slíku gjaldi. Fólk verð
ur ennfremur að gæta þess,
að skemma ekki girðingar, það
kostar erfiði að bæta þær aftur,
ennfremur er það menningar-
skylda að skilja ekki bréf,
sviðakjamma, niðursuðudósir,
fiskroð og annan óþrifnað eftir
á almannafæn.
Þeir sem í sveitum
búa, eru ekki nein sérstök mann
tegund, heldur nákvæmlega
sama fólkið og kaupstaðabú-
ar, þeir ætlast líka til að mæta
kurteisi og tillitssemi og munu
þá greiða i sömu mynt.
En tíminn er naumur á ein-
um degi, og æskilegast væri
að skrifleg leyfi til berjalest-
urs á vissum landsvæðum væru
seld á vissum stöðum í kaup-
stöðum, rétt eins og veiðileyfi
fyrir lax og silung.
yu, 'um margi'a ára skeið og
ritað merk vísindarit. — Fyrir
alla umsækjendur er nægileg
þýzkukunnátta áskilin.
Innritunargjöld styrkþega
greiðir Alexander von Hum-
boldt-stofnunin. Til greina get-
ur komið, að hún greiði einnig
ferðakostnað styrkþega til
Þýzkalands og heim aftur, svo
Eg veit fullvel, að síminn
minn er alltaf á tali, það
er vegna þess, að ég tók
tólið af, áður en ég fór
í bað.
og nokkurn viðbótarstyrk
vegna eiginkonu og barna.
Eyðublöð undir umsóknir um
styrki þessa fást í menntamála
ráðuneytinu, Stjórnarráðshús-
inu við Lækjartorg. Umsóknir
þurfa að vera i þríriti og skulu
hafa borizt menntamálaráðu-
neytinu fyrir 5. október n.k.
HINN 1. september hófst inn-
ritun nemenda í Kvöldskóla
K.F.U.M., og fer hún fram í
verzluninni Vísi, Laugavegi 1.
Kvöldskóli KFUM er fyrst og
fremst ætlaður piltum og stúlk
um, sem stunda vilja gagnlegt
nám samhliða atvinnu sinni. —
Inntökuprófs er ekki krafizt,
en skólavist geta þeir hlotið,
sem lokið hafa skyldunámi.
M FRÍMERKI
a
1 TILEFNI af 50 ára afmæli
Háskólans mun póst- og síma-
málastjórnin gefa út hinn 6.
október n.k. þrjú ný frimerki
með verðgildunum 1,00 kr. (upp
lag 2.000.000), 1,40 kr. (upp-
lag 1.500.000) og 10 kr. (upp-
lag 750.000).
Einnar krónu merkið verður
brúnt að lit með mynd af Bene
dikt Sveinssyni, sem á Alþingi
var einn helzti talsmaður fyr-
ir stofnun háskóla á Islandi.
Einnar krónu og fjörutíu
aura merkið verður blátt að
lit og með mynd af Birni M.
Olsen, fyrsta rektor háskólans.
Tíu krónu merkið verður
grænt og með mynd að háskóla
byggingunni.
Jafnframt mun sama dag
verða gefin út minningarblokk
í 500.000 eintökum og verða í
henni ofangreind þrjú frímerki.
Söluverð blokkarinnar vei'ður
samanlagt verð frímerkjanna
eða kr. 12,40.
Prentun annast Courvoisier
S. A. í Sviss.
Skýringar við krossgátu
nr 4472:
Lárétt: — 1 Drykkjarílátin.
6 iða. 7 í teppi. 9 samhljóðar.
10 kvikmyndaleikari, enskur
(eftirnafn). 12 nokkuð. 14 sér-
hljóðar. 16 einkennisstafir. 17
á fé. 19 nízkupúki.
Lóðrétt: — 1 Tala. 2 sam-
hljóðar. 3 hrós. 4 kona. 5 ekki
efnishyggjunnar. 8 tveir eins.
11 skordýr. 13 félag. 15 óarga-
dýr. 18 ósamstæðir.
Lausn á krossgátu nr.
Lárétt: — 1 Barkinn. 6 Mön.
7 ká. 9 sn. 10 krá. 12 aus. 14
fá. 16 MT. 17 ill. 19 norska.
Lóðrétt: — 1 Bakkinn. 2 RM.
3 kös. 4 inna. 5 Nausts. 8 ár.
11 áfir. 13 um. 15 áls. 18 Ik.
Trúlofanir
Nýlega opinberuðu trúlofun
sina ungfrú Sólveig Þóra Ragn
arsdóttir, afgr.stúlka, Vest-
mannaeyjum og Hafsteinn Guð
mundsson, rafvirki, Reykjavík.
2.J7. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 05:24.
Sólarlag kl. 19:27.
Árdegisháflœður kl. 03:14-
Síðdegisháflœður kl. 15:40.
Slysavarðstofan er opin all-
an sólarhringinn. Læknvörður
kl. 18—8 Sími 15030.
Næturvörður þessa vikur er
í Vesturbæjarapóteki.
Söfnin: — Arbæjarsafn opið
kl. 2—6. A sunnudögum kl. 2
—7. Lokað mánudaga. —
Minjasafn Reykjavíkur, Skúla-
túni 2, opið kl. 14—16, nema
mánudaga — Listasafn Islands
opið dagleg kl. 13:30—16. —
Ásgrimssafn, Bergstaðastr. 74,
opið þriðju-, fimmtu- og sunnu
daga kl. 1:30—4. — Listasafn
Einars Jónssonar er opið á
sunnud. og miðvikud. kl. 13:30
—15:30. — Þjóðminjasafnið
er opið á sunnud., fimmtud.,
og laugardögum kl. 13:30—16.
Bæjarbóksafn Reykjavíkur,
sími 12308 Aðalsafnið Þing-
holtsstræti 29A. Lokað sunnu-
daga. Lesstofa opin 10—10
virka daga nema laugardaga
10—4. Útibúið Hólmgarði 34.
Opið 5—7 nema laugard. og
sunnud — Útibúið Hofsvalla-
götu 16. Opið 5:30—7:30 nema
laugard. og sunnudaga.
GUNNAR GUÐJONSSON /
SKIPAMIÐLARI
SÍMI 22214 (3 línur)
WALA SISHEP; "I-I SUF’F’OSE
NOW VOU MUST LEAVE
A\E AGAIN?// TAKZAN SVMLE7
TEN7ESLV.v' l'AÁ SOZZY—"
Wala andvarpaði og sagði
við Tarzan: „Eg býst við, að
nú þurfir þú að yfirgefa mig
enn á ný?“ Tarzan brosti blítt
og sagði: „Mér þykir það leitt,
en ég kem aftur“, sagði hann
að skilnaði. „Og fyrr en þig
grunar, fallega stúlka, fyrr en
ANI7 SOONE&
THAN VOL)
THINIC, F’ELETTV |
SKL/ttOltELu'
AVJKÍAUK.E7 í
‘SOONEK :
THAN YOU
THINK.!"
þig grunar,“ muldraði Morelli
ánægður með sjálfum sér.