Vísir - 06.09.1961, Qupperneq 4
4
VÍSIR
Miðvikudagur 6. sept. 1961
Stutt heimsókn að Reykjum þar, sem
ræktun kjötfugla er að hefjast
Hvað er eðlilegra, en
að við sem fáumst við
búskap hér á lancjj
reynum að hagnýta
okkur reynslu og þekk-
ingu hinna háþróuðu
landbúnaðarþjóða, að
svo miklu leyti sem sfíkt
fellur inn í hérlenda
staðhætti, sagði Jón
Guðmundsson á Reykj-
um í Mosfellssveit, er
hann um daginn sýndi
ljósmyndara og blaða-
manni Vísis álitlegan
hóp af hvítum hænum
og rauðbrúnum. Þetta
voru nýir landnemar í
hinu stóra hænsnabúi
hans, Fuglakynbótabú-
inu að Reykjum eins og
það heitir í símaskránni.
Á undanförnum árum hafa
blöðin sagt mikið frá holda-
nautum, jafnvel „holdaönd-
um“, sem Þorvaldur í Síld
og Fiski ræktar í stórum stíl
á búi sínu suður á Vatns-
leysuströnd. En þessi hvítu
og rauðbrúnu hænsni, sem
Jón sýndi okkur upp hjá
Reykjum á dögunum, eru
„holda“-hænsni, — kjötfugl-
ar, sem eingöngu vegna hins
Ijúffenga og holla kjöts eru
ræktuð í stórum stíl í Dan-
mörku og Bandaríkjunum,
svo eitthvað sé nefnt.
★
Ekki skluð þið í blaðinu
segja, að þetta séu hin fyrstu
kjöthænsni hér á landi, því
mér er kunnugt um að Magn-
ús Stefánsson, húsvörður í
Stjórnarráðinu, átti slík
hænsni í eina tíð. Þessi kjöt-
hænsnahóur er um 100 fugl-
ar. Þeir eru nú um 13 vikna
gamlir. Eggdn keypti ég frá
Danmörku. Að vísu voru all-
miklu fleiri egg keypt, en
þau eyðilögðust af völdum
verkfallsins í júnímánuði sl.
Þessar hvítu hænur sem þið
sjáið 'heita Plymouth Rock.
Rauðbrúnu hænurnar heita
New Hampshire. Þetta eru
nöfn sem fræg eru þegar
um er að ræða holda-hænsni
eins og þið sögðuð áðan.
Þessar hænur ná slátur-
þroska á 10 vikum, en þá
þykir kjötið bezt, Eru hæn-
urnar þá rúmlega kíló, en
hanarnir aftur á móti um
hálft annað kg. Ef þær
fengju að lifa og taka út vöxt
sinn, þá myndu hænurnar ná
3 kg. þyngd eða þar um bil
og hanarnir um 4 kg. Venju-
leg varphæna, 14 vikna
gömul, eða skulum við segja
kjúklingur eins og það heitir
á máli matsveina veitingá-
húsanna, er kringum 1 kg.
Tíu vikna kjöthæna ætti að
hæna t. d. öll miklu stærri
og líkamsbygging hennar öll
miklu meiri en venjuleg
varphæna. Sjáið t. d. lappirn.
ar á þessari hænu og berið
þær saman við lappirnar á
varphænunum. Það er mik-
ill munur á hve lappir kjöt-
hænunnar eru sverari og
sterklegri. Bringan er þykk,
falleg og kjötmikil á þessari
hænu. Finnið bara sjálfir!
• *
Þessar hænur mínar eiga
að mynda stofninn að því
kjötfuglabúi, sem eg hyggst
koma hér á fót á næsta ári.
Jón sagði, að miðað við út-
reikninga í vinnulaunum við
rekstur slíks bús, fóðurþörf
og fleira, myndi verðið á
hænsnakjötinu verða milli
50 og 60 kr.. Það verður ó-
svikið hæsnakjöt það.
Já, þeir sem bragðað hafa
kjöt af þessum holdahæns-
um, fá jafnan vatn í munn-
inn þegar þeir heyra á þau
minnzt, skaut I. M. ljósmynd
ari inn í samtalið.
Við höfðum orð á því við
Jón, að okkur virtist sem
hænurnar lægju við opið.
Kvaðst hann gera það til
Jón á Reykjum með eina Plymouth Rock hænu.
Lappirnar eru sterklegar.
duga 3—4 manna fjölskyldu
í máltíð.
★
Eins og þið sjáið sagði Jón
Guðmundsson, og krækti
með hænsnakrók í eina fal-
lega, hvíta hænu, þá er þessi
Þessi stóru og stæðilegu systkini eru orðin 3 mánaða. Eftir
aðra þrjá verður haninn orðinn um 4 kg., en hænan um 3 kg.
þess að stofninn yrði sem
heilsuhraustastur, en að
sjálfsögðu er það undirstöðu-
atriði að góðum árangri, að
stofninn sé hraustur.
Hvenær koma svo hæn-
urnar á markaðinn?
Það verður ekki á þessu
ári svo neinu nemi að
minnsta kosti. En talaðu við
mig um páskana næsta ár,
þá verð eg sennilega aflögu
fær.
Síðan skoðuðum við
hænsnabúið, en þar eru nú
líklega 900—1000 hænsni,
þau elztu eins árs, en yngstu
aðeins nokkurra daga gamlir
ungar. Uppi á loftinu eru út
ungunarvélarnar og opnaði
Jón eina þeirra og sýndi
okkur allmörg egg. Þeir eiga
að koma út á morgun. — Já
þeir ætla ekki að láta á sér
standa, því fyrsti unginn er
búinn að brjóta gat. á skurn-
ina og lokaatlaga við að
brjótast út í heiminn er haf-
in. —
Við vesturhlið hænsnahúss-
ins var jarðrask nokkurt.
Kvaðst Jón vera búinn að
grafa þar fyrir álitlegri við-
bótarbyggingu. Þar verður
m. a. fullkomið sláturhús
fyrir búið, með tilheyrandi
kæli- og frystiklefum. Nauð-
synlegt er fyrir búið að vera
búið að koma sér upp slíku
sláturhúsi þegar kjotfram-
leiðslan hefst í stórum stíl.
I
Hanarnir voru í svaka
stuði og göluðu mikið.
Sumir báru þess órækt vitni,
að þeir höfðu slegizt upp á
líf og dauða út af einhverri
hænunni. En nú voru þeir að
gleyma óförum sínum, þó
kamburinn væri blóðstork-
inn. Reigðu þeir sig og gól-
uðu á hænsnaprikunum fyrir
sjarmerhvítar hænur, sem
voru með kamba sem höfðu
yfir annað augað eins og
ungu stúlkurnar báru Gretu-
Garbo-Alpahúfurnar í gamla
daga.
Moskvubúar vilja
kynnast Frökkum.
Þrátt fyrir allar tilraunir j selja bækur með óhróðri og níði
stjórnarvalda kommúnista til um Frakka úti fyrir dyrum sýn-
að draga úr aðsókn að franskri
sýningu í Möskvu, sprengir að-
sóknin af sér öll bönd.
Sýning þessi fjallar um dag-
legt líf í Frakklandi í dag, og
sjá kommúnistar mjög eftir
að hafa leyft hana, því að þótt
hvers kyns áróðurstækjum sé
beitt til að sannfæra almenning
um, að þarna sé ekki um rétta
mynd af Frakklandi að ræða, er
aðsóknin um 75.000 manns á
degi hverjum. Yfirvöldin hafa
reynt að takmarka aðsóknma
við 40.000 manns á dag, en að-
göngumiðasalan hefur verið
næstum tvöfalt meiri.
Þá hafa stjórnarvöldin einn-
ig reynt að hamla gegn áhrif-
um sýningarinnar með þvi að
ingarhallarinnar, en salan ekki
borið árangur.
MAFIA sýnt í
tvo heimana
ftölsk stjórnarvöld hafa sent
herlið til PartinicQ fyrir sunn-
an Palermo á Sikiley.
Þar hefur bófafélaginu
MAFIA haldizt uppi í 10 ár
að hindra gerð fyrirhleðslu til
myndunar lóns fyrir orkuver.
Var ákveðið að láta til skarar
skriða og hafa hervörð á vinnu
svæðinu til þess að sýna
MAFIA í tvo heimana.