Tölvumál - 01.04.1986, Síða 4

Tölvumál - 01.04.1986, Síða 4
UPPLÝSINGASÖFNUN VEGNA SKATTHEIMTU Flestir landsmenn hafa nú eytt gððri kvöldstund til að koma á pappír þeim upplýsingum, sem krafist er árlega, svo hægt sé að innheimta opinber gjöld. Undirritaður telur að upplýsingaþörfin hafi heldur aukist með árunum. Að minnsta kosti þekkir hann sjálfan sig betur eftir að hafa fyllt samviskusamlega út þær skýrslur, eyðublöð, fylgiblöð og framtalsblöð, sem lög gera ráð fyrir. Skattstofan notar þessar upplýsingar í tvennum til- gangi. Annars vegar eru þær notaðar til að reikna út allar þær álögur, gjöld, afslætti, frádrætti, undan- þágur, styrki og bætur, sem skattar samanstanda af. Hins vegar eru upplýsingar notaðar til að sannfæra skattayfirvöld um að rétt sé fram talið. Nú kann einhver að spyrja af hverju undirritaður er að reifa þessa hluti I TÖLVUMÁLUM. Svarið er einfalt. 1 inngagninum hefur orðið "upplýsingar" komið fyrir fjórum sinnum. Við stöndum nú á þröskuldi upplýsinga- aldar. Stórkostlegar framfarir hafa orðið I búnaði til að vinna upplýsingar. Betri tækni og öflugri vélar gera löggjafanum mögulegt að nýta enn ýtarlegri upplýsingar við að reikna álögur á þegnana. Afleið- ingin er sú að sífellt safnast fleiri gögn um okkur 1 gagnasöfn hins opinbera. Margir hafa varað við of mikilli upplýsingasöfnun hins opinbera og óttast að þær auki vald þess. Má þar frægastan telja Georg Orwell, en I sögu hans, 1984, er þekking Stóra Brðður á þegnunum hornsteinn að algjöru einræði hans. öflugri tölvutækni gerir æ auðveldara að ránnsaka persðnulega hagi. Þess má og geta að ýmsar opinberar stofnanir renna hýru auga til upplýsinganna, sem skattstofurnar hafa safnað. Lána- stofnanirnar eru gðð dæmi. Það eru forsendur fyrir álagningu tekju- og eignar- skatta að heimta alls konar upplýsingar um hagi fölks, hverjar eru tekjur þess og hvers eðlis, hverjar eru eignir þess, hverjum skuldar það og á hvaða kjörum, hver á barn með hverjum o.s.frv. 4

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.