Tölvumál - 01.04.1986, Page 5
I stjórnarsáttmála nuverandi rlkisstjórnar segir að
stefnt skuli að því að leggja niður tekjuskatt.
Færist sö skattheimta þá væntanlega yfir á ðbeina
neysluskatta. Álagning tekjuskatts gerir meiri kröfur
til upplýsinga um hagi manna, en álagning flestra
annara tekjubundinna álaga.
óbeinir neysluskattar byggjast á annars konar upplýs-
ingasöfnun en beinir skattar, 1 stað þess að rannsaka
einstaklingana og hagi þeirra er unnið með upplýsing-
ar um vöru og þjónustu. Skattyfirvöld þurfa að fylgj-
ast með framleiðslu varnings, fylgjast með honum
gegnum dreifingaraðila þar til neytandi kaupir hann.
Fyrirtæki eru nö þegar bðkhaldsskyld og þær upplýs-
ingar, sem þau gefa eru miklu hættuminni en upplýs-
ingar um þegnana. Með því að lækka eða jafnvel
afnema tekjubundna skatta má draga stðrlega ur upp-
lýsingasöfnun hins opinbera um einstaklingana.
Bergur Jðnsson.
5