Tölvumál - 01.04.1986, Blaðsíða 9
tölunetið Digital DECnet. Aðalerindi flytur Peter
Engsiq-Karup frá Digital Equipment I Danmörku. Auk
erindis hans verður fjallað um reynslu innlendra
aðila af DECneti og þá möguleika, sem virðast höfða
mest til okkar aðstæðna.
Ráðstefnustjori verður Páll Jensson forstöðumaður
Reiknistofnunar Háskölans. Dagskráin verður þannig í
höfuðdráttum:
kl. 9.30-12.00
kl. 12.00-13.30
kl. 13.30-17.00
kl. 17.00-19.00
Skráning þátttakenda, setning ráð-
stefnunnar, tölvusýning og kynning
hugbunaðar.
Hádegisverður
Erindi um upplýsingaskipti á milli
tölva, tölvunet. Umræður.
Ráðstefnuslit - veitingar.
A tölvukynningunni verða mættir erlendir sérfræðingar
frá Digital og tæknimenn Kristjáns ó. Skagfjörð hf.
Þeir munu utskýra tækin og hugbönaðinn og svara
fyrirspurnum. Meðal gesta á ráðstefnunni verða
aðalforstjori Digital Equipment í Danmörku, Niels
Birkemose-Möller, DECUS fulltröi Digital Axel Donsby
og formaður DECUS Danmark Mogens Dahlin.
Ráðstefnan gefur DECUS félögum einstakt tækifæri til
að kynnast því nýjasta á sviði Digital tölva, ræða
við sérfræðinga og forsvarsmenn Digital og KOS og
skiptast á skoðunum í sönnum DECUS Symposium andal
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna verða sendar til
félagsmanna I DECUS Island I fréttabréfi þeirra.
Áhugamönnum um tölvur, sem áhuga hafa á að taka þátt
I starfi DECUS er bent á að það er ekki skilyrði
fyrir þátttöku að eiga Digital tölvu eða starfa við
slíka. Upplýsingar um ráðstefnuna og DECUS fást hjá
ritara DECUS, Guðrlði Jðhannesdðttur, Kristjáni Ö.
Skagfjörð hf, síma 24120. Einnig veita stjðrnarmenn
DECUS upplýsingar, en þeirra er getið I marsblaði
TÖLVUMÁLA. —si.
9