Tölvumál - 01.04.1986, Side 10

Tölvumál - 01.04.1986, Side 10
FÉLÖG - NOTIÐ TÖLVUMÁL Við ítrekum að TÖLVUMÁL standa öllum félögum og áhugamönnum um tölvumál opin. Notið blaðið til að kynna starfsemi ykkar og höfða til nýrra félaga. Auglýsið fundi, ráðstefnur og ferðir erlendis. Það gera til dæmis tvö ðlík samtök í þessu blaði, DECUS og Félag ísl. iðnrekenda. TÖLVUMÁL koma út mánaðarlega 10. - 15. hvers mánaðar nema sumarmánuðina júní, júlí og ágúst. Blaðið berst hátt í eitt þúsund aðilum, sem allir hafa áhuga á tölvumálum. Margir þeirra eru auk þess í áhrifastöðum 1 fyrirtækjum og stofnunum og/eða áhrifamenn í þjððllfinu. Aðgangur að þessum miðli stendur ykkur opinn án endurgjalds. SKRIFIÐ GREINAR - VEKIÐ UMRÆÐU Villt þú vekja athygli hins almenna tölvunotanda á málefni, sem þú telur tímabært? Átt þú "erindi við ráðamenn þessa lands" um málefni, sem snerta upplýsingatækni? Ef svo er skulum við sem stöndum á bak við TÖLVUMÁL koma erindi þlnu á framfæri. TÖLVUMÁL eru send til tæplega eittþúsund aðila. Á meðal þeirra eru tölvunotendur, stjðrnendur tölvu- deilda, fyrirtækja og stofnana. Einnig fá embættismenn, borgarfulltrúar, alþingismenn og ráðherrar blaðið sent. TÖLVUMÁL eru málgagn Skýrslutæknifélagsins, sem eru stærstu samtök á sviði upplýsingamála á landinu. Það er gefið út 1 þeim tilgangi að efla umræðu um málefni, sem skipta máli á sviði tölvumála og upplýsingatækni. Blaðið er engum öðrum háð en stefnu félagsins og eigin sannfæringu. 1 blaðinu er rúm fyrir öll sjðnarmið innan þessa málaflokka. Skrifaðu grein og vektu umræðu. -si. 10

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.