Tölvumál - 01.04.1986, Page 11

Tölvumál - 01.04.1986, Page 11
SPOR 1 RÉTTA ÁTT Notkun tölva hérlendis hefur aukist verulega undanfarin ár. Mikil grðska er á öllum sviðum, sem tengjast tölvum. Fyrirtæki, sem framleiða hugbunað, hafa sprottið upp og jafnvel haslað sér völl erlendis. önnur framleiða ýmis konar tölvustýrð tæki. Þá hafa almennir skolar og sérhæfðir tölvuskólar séð um grunnkennslu á þessu sviði og hafa sumir þeirra verið fljótir að tileinka sér nýjungar. Á síðastliðnu ári var sett upp íslenskt tölvunet um landið (X.25) á vegum Pðsts og Síma og í maí á þessu ári mun tenging erlendis komast á. Islendingar eru örugglega á réttri braut I tölvumálum þó eflaust megi finna einhver óæskileg hliðarspor. Hins vegar er eitt mjög mikilvægt svið, sem ekki hefur verið sinnt að verðleikum. Hér á ég við tölvustaðla og stöðlun. Frumkvæði hefur verið hjá Skýrslutæknifélagi Islands og nokkrar nefndir hafa starfað að stöðlunarmálum á vegum þess. Má nefna nefndir um lyklaborð, 7 bita tölvukóda og 8 bita tölvukóda. Tillögur frá þessum nefndum hafa náð fðtfestu hér á landi og árangur nefndar um lyklaborð kristallast í Staðli um lyklaborð. Þetta er eini xslenski tölvustaðallinn, sem til er. Ég endurtek, eini tölvustaðallinn. Sérstök deild er til hjá Iðntæknistofnun, sem ber nafnið staðladeild. Ofangreindar nefndir höfðu að sjálfsögðu samráð við starfsmann staðladeildar eins og kostur var. Jóhannes Þorsteinsson hðf nýlega störf sem deildarstjóri staðladeildar. Eftir kynni okkar er ég sannfærður um að hann hefur góðar hugmyndir um uppbyggingu á þessu sviði. Aftur á móti er mjög litlu fjármagni varið til stöðlunarmála hérlendis. Ástæða fyir þessu er mér ókunn, en svo virðist sem stjðrnmálamenn geri sér ekki grein fyrir hversu mikilvæg stöðlunarmál eru. Lög og reglugerðir beina mönnum á réttar brautir innan samfélags. Staðlar hafa mjög hliðstæð áhrif innan iðnaðar. Þegar þetta er haft í huga sést að 11

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.