Tölvumál - 01.04.1986, Side 12
stöðlun er grundvallarþáttur I allri uppbyggingu
iðnaðar, tölvuiðnaður innifalinn.
Innan Skýrslutæknifélags Islands eru margir
sérfræðingar á ýmsum sviðum tölvumála, margir þeirra
hafa tekið þátt í störfum á sviði stöðlunar eins og
hér hefur komið fram. Þar er einnig að finna
áhrifamenn I okkar þjððfélagi. Allir þessir aðilar
geta haft bein eða ðbein áhrif á stjðrnmálamenn
okkar, komið þeim í skilning um hversu mikilvægan
þátt er að ræða og hversu nauðsynlegt er að veita
fjármagni til stöðlunarmála. Það þýðir ekkert annað
en að gera verulegt átak og koma einhverjum skikk á
þessi mál. Að öðrum kosti verður tölvuiðnaður á
Islandi ekki sá vaxtarbroddur, sem menn hafa gert sér
hugmyndir um, í komandi framtíð.
Helgi Jðnsson, RHl.
PANTIÐ I HÓPFERÐINA Á NORDDATA 86 FYRIR 1. MAÍ
Eins og fram kemur 1
fréttaskoti
Ferðaskrifstofunnar ÖRVALS,
sem félagsmenn
Skýrslutæknifélagsins fengu
sent fyrir nokkru, þá er
undirbuningur hðpferðar á
NordDATA 86 I fullum gangi.
Félagsmenn, sem vilja
tryggja sér far í hðpferð-
ina þurfa að hafa samband
við Dröfn Björnsdóttur £
slma 28522 hjá ÚRVAL eigi
síðar en 1. mal n.k.
Von er á dagskrá ______
ráðstefnunnar fljótlega og
er félagsmönnum bent á að — ^ ^ '
hafa samband við skrifstofu . ^ - v
SI I slma 82500 óski þeir C*\
eftir að fá hana senda. kþ. ' ( *
12