Vísir - 05.03.1962, Side 2
1
V I S 1 R
Mánudagur 5. marz 19.62
mmm
W//Æ
Ekki óalgeng sjón í hinum oft harkalega leik Víkings og Fram, er Víkingur gerði svo óvænt
jafntcfli við Reykjavikurmeistarana 22:22. Það er Erlingur Kristjánsson sem skýtur af línu,
en Steinar Halldórsson hefur „fylgt með“.
Vftakastið ga1
út um leikinn
— en jafntefEi varð er
dómarinn dæmdi jiað ógilt
Víkingur náði jafntefli í gær
við Reykjavíkurmeistara Fram
í handknattleik. Víkingarnir
áttu þetta fyllilega skilið eftir
að hafa sýnt hinum mörgu á-
horfendum mun betri hand-
knattleik en Framararnir, sem
voru yfirleitt of grófir, og hefðu
átt að fá mun harðari dóma hjá
Frímanni Gunnlaugssyni, sem
þó dæmdi þennan vandasama
leik mjög vel.
Á laugardaginn skoraði
Bettý Ingvarsdóttir úr Víking
1500. naark yfirstandandi Hand-
knattleiksmóts íslands. Var
það skorað í leik Víkings og
Vals í meistaraflokki kvenna.
Bettý skoraði þetta sögulega
mark af allöngu færi og var það
eina mark hennar í ósigursleik
Víkiniís
Það var Víkingur, sem náði
yfirhöndinni í byrjun, og Fram-
arar ná ekki að jafna fyrr en
6—6, og ná ekki yfirhöndinni
fyrr en Ingólfur Óskarsson birt-
ist á gólfinu, en hann hafði ekki
sézt meðal skiptimanna utan
vallar, og var ekki laust við að
hlakkaði í sumum Víkingsaðdá-
endum, er þessi mikli skotmað-
ur sást ekki. Ingólfur breytti
taflinu nú talsvert Fram í hag,
skorar nú 3 næstu mörk, 11—8
og Guðjón og Ágúst bæta við,
13—8. Var nú komið hálfgert
vonleysi í leik Víkings, og ekki
voru tvö stangarskot þeirra
beint til að örfa þá upp. í hálf-
leik var staðan þó orðin 13—11
fyrir Fram, eftir að Víkingar
höfðu komið nokkurri ró á leik
sinn, leikið fyrir utan vörnina
og skorað eldsnöggt.
í síðari hálfleik skoraði Rós-
mundur, 13—12 og upp frá
þeirri stundu var leikurinn all-
ur mjög harður og spennandi
svo að sjaldan í vetur hafa á-
horfendur fengið annað eins
tækifæri til að æsa sig, og má
segja að enginn 1 húsinu hafi
legið á liði sínu í hrópunum.
Víkingarnir fengu meiri hlut-
ann af þessum hrópum með sér.
Fram leiddi leikinn eftir sem
áður, en aldrei kom vonleysið
frá í fyrri hálfleiknum fram í
leik Víkings í þeim síðari, oft
jöfnuðu Víkingar, en alltaf tókst
Fram að halda forystunni, yfir-
leitt eitt mark en stundum tvö.
Fram hafði yfir, þar til er fimm
mínútur voru til leiksloka, hafði
skorað 22 gegn 20 mörkum Vík-
ings. Rósmundur skorar 22—21
mjög laglega og þrátt fyrir
merki þess að Fram ætlaði að
tefja með seinum -leik, tókst
Steinarri Halldórssyni að jafna
er 3 mínútur voru eftir. Það
sem eftir var leiksins var álíka
'að líta yfir völlinn eins og horfa.
á ólgusjó.
Víkingar töpuðu knettinum
út af og Fram hefur leiftursókn,
þetta er síðasta mínútan og
jafnvel seinni hclmingur henn-
ar. Það er brotið á línuspilara
Fram og réttlátlega dæmt víta-
kast. Ingólfur Óskarsson fram-
kvæmir þetta mikilvæga víta-
kast, skorar örugglega, Fram-
arar fagna ofsalega, en dómar-
inn hefur bent á vítapunktinn
og fram á völlinn, markið ólög-
legt, Ingólfur steig á línuna, og
Fram því ekki hlotið bæði hin
dýrmætu stig, scm gera þá
Fram heldur vonminna í bar-
Frh. á 7.
„Hann er harður og
erfiður leikmaður"
— sagðí BBC um Þórólf
Um helgina keppti St. Mir-
ren við hið ágæta lið Mother-
well á útivelli. Leikur lið-
anna var mjög góður að sögn
BBC- Scottish Home Ser-
vice, og margt mjög fallega
gert. St. Mirren tapaði enn
deildarleik, nú með 1:2, en
sigurinn gat fallið hvorum
aðilanum sem var í skaut.
Motherwell var heppnara að
þessu sinni.
Þórólfur fekk mikið lof
hjá íþróttaþul BBC, sem
sagði hann „fljótan og erfið-
an hvaða varnarleikmanni
sem væri. Sagði þulurinn, að
eftir svo góða knattspyrnu,
sem St Mirren sýndi að þessu
sinni, væri eins gott fyrir
Úrslit yngri
fbkkanna
f Valshúsinu urðu úrslit
í Handknattleiksmóti fslands
á laugardagskvöld:
2. fl. kv. B Vík—Árm. 8-4
2. fl. kv. B KR—Fram 3-3
3. fl. k. B Víkingur—ÍR 11-7
— B Fram—ÍBK 12-7
— B KR—Ármann 8-7
— B FH—Haukar 11-4
2. fl. k. B FH—KR 18-3
— B Fram—Valur 9-6
Vegna rúmleysis bíður um-
sögn um meistaraflokksleik
kvenna til morguns, en úrslit
þar urðu þessi:
M.fl. kv. Valur—Víkingur 14-5
M.fl. kv. FH—Ármann 916
1. fl. k. Fram—Þróttur 18-13
2. fl. k. Valur—ÍR 19-13
Staðan í 1. deiíd
L U I T St. Mörk
FH ....... 33006 109- 60
Fram .... 3 2 1 0 5 83- 62
Víkingur ..3 1 1 1 3 60- 58
ÍR ....... 2 10 12 41-60
KR ....... 4 1 0 3 2 85- 92
Valur .... 3 0 0 3 0 58-104
Markahæstu einstaklingar:
Ragnar Jónsson, FH.......... 32
Ingólfur Óskarsson, Fram, 29
Reynir Ólafsson, KR, .... 28
Birgir Björnsson, FH.......24
Karl Jóhannsson, KR........22
Kristján Stefánsson, FH, .. 18
Örn Ingólfsson, Val ........ 17
Bergur Guðnason, Val.......17
Dunfirmilne að gera sér
ekki of miklar vonir, er þeir
leika við St. Mirren í bikar-
keppninni um næstu helgi.
Önnur úrslit urðu þau, að
Dundee tapaði enn úr stigum
og Rangers græddu tvö, og
- eru nú 3 stigum á undan
Dundee með 42 stig en ein-
um Ieik fleira. Rangers unnu
Third Lanark, en Celtic
vann Dundee með 3:1.
í ensku deildinni urðu þau
úrslit merkust og óvæntust,
að það enska liðið, sem að
undanförnu hefir unnið sér
hvað mest álit fyrir góða
frammistöðu í Evrópubik-
arnum, Tottenham, Iá með
2:6 í Manchester fyrir Man-
cester City.
Áimann — IS
74:40
Ármann vann stúdenta í
körfuknattleik á föstudags-
kvöldið með 74—40 og var sá
sigur vonum meiri, einkum er
haft er í huga að í lið Ármanns
vantaði tvo af beztu mönnum
liðsins, þá Birgi Birgis og
Lárus Lárusson.
Sigurinn varð þó mjög stór
og jafnframt verðskuldaður.
Guðmundur Ólafsson, Davíð
Helgason og Ingvar Sigur-
björnsson skoruðu flest stig
Ármanns, en stigahæstir stúd-
entar voru Jón Eysteinsson og
Hafsteinn.
f 1. flokki unnu ÍR-ingar
Ármann með 51—46. Var bar-
átta liðanna mjög jöfn og það
reið baggamuninn að ÍR-ingar
höfðu innan sinna vébanda vel
þjálfaðan leikmann, Ragnar
Jónsson, hinn kunna hand-
knattleiksmenn úr FH, og
hann bjargaði stigunum tveim
frá því að falla Ármanni í
skaut. í hálfleik var staðan 23
'—22 fyrir Ármann.
Askrifta-
sími VÍSIS
er 1-16-60