Vísir - 05.03.1962, Blaðsíða 9
V I S I R
9
Mánudagur 5. marz 1962
byggja flugvöll á Álftanes-
svæði og ef fjármagn fæst til
þess, ber að stefna að því.
2) Það er augljóst að ó-
hagkvæmt er að flugfarþegar
til og frá höfuðborginni fara
um Keflavíkurflugvöll, og á
þetta sérstaklega við innan-
landsfarþega. Auk þess ber
að hafa i huga stór-aukin út-
gjöld fyrir flugfélögin. Eins
og nú er ástatt, hafa ís-
lenzku flugfélögin ekki at-
hafnamöguleika á Keflavík-
urflugvelli. Getur því Kefla-
víkurflugvöilur. um óákveð-
inn tíma, ekki fuhkomlega
sinnt flugvallarþörf höfuð-
staðarins.
3) Unz endanlega fæst úr
því skorið hvar framtíðar-
flugvöllur Reykjavíkur verð-
ur staðsettur, er sjálfsagt að
halda núverandi flugvallar-
mannvirki við. endurbæta
það bæði hvað flugbrautir
snertir og nýbyggingar. Haga
ætt; nýbyggingum þannig.
að þær séu varanlegar, not-
hæfar almennt og falli inn í
væntanlegt skipulag ef flug-
völlurinn verður lapður nið-
ur, sem ég fæ ekki séð að
komi til greina fyrst um sinn
(10—20 ár).
Alfreð Elíasson.
Fyrir nokkru lagði Vísir spurningu varðandi framtíð Reykja-
vikurflugvallar fyrir þrjá kunna borgara — Örn Ó. Johnson, fram-
kvœmdastjóra Flugfélags íslands, Aðalstein Jóhannsson vélfrœðing
og Alfreð Elíasson, framkvœmdastjóra Loftleiða. Hafa nú borizt svör
þeirra við spurningunni, sem var svohljóðandi:
„Teljið þér rétt, að hafizt sé handa um byggingu flug-
stöðvar á Reykjavíkurflugvelli og hann hafður til frambúðar í
flugsamgöngum okkar eða hann verði lagður niður svo fljótt
sem auðið er?”
^ Wm
Svar:
ÆT
Arnar 0.
Johnson
i
■ :
Spurningin er í rauninni
tvíþætt, annarsvegar „hvort
rétt gæti talizt að hafizt sé
handa um byggingu flug-
stöðvar á Reykjavíkurflug-
velli“, og hinsvegar, „hvort
rétt sé að flugvöllurinn sé
hafður til frambúðar (á
þessum stað) eða hann lagð-
ur niður svo fljótt sem auð-
ið er“.
Ég kýsa að svara fyrst síð-
ari lið spurningarinnar, enda
tel ég hann skipta megin
máli. Honum verður þó ekki
að sinni svarað með afdrátt-
arlausu „jái“ eða „neii“, til
þess þyrftu að liggja fyrir
niðurstöður nákvæmra rann-
sókna, sem enn hafa ekki
verið framkvæmdar, á að-
stöðu og kostnaði við flug-
vallargerð á öðrum stöðum í
nágrenni Reykjavíkur, sem
til greina koma og til saman-
burðar, kostnaðaráætlun um
nauðsynlegar breytingar og
lagfæringar á núverandi
Reykjavíkurflugvelli. Ég
tel þó miklar líkur fyrir því,
að flugvöllur höfuðstaðarins
væri til frambúðar betur
staðsettur á Álftanesi, en þar
sem hann er nú, og tel höfuð-
nauðsyn, að athugunum og á-
kvörðunum í þessu mikil-
væga máli sé hraðað svo sem
kostur er. Ég tel fráleitt að
nota Keflavíkurflugvöll í
þessum tilgangi og tel því.
að ekki komi til greina að
„leggja niður" núverandi
Reykjavíkurflugvöll fyrr en
Loftmynd af Reykjavíkurflugvelli.
annar fullkomnari hefir ver-
ið gerður í næsta nágrenni
bæjarins.
Varðandi byggingu flug-
stöðvarinnar vil ég segja
þetta: Vissulega hljóta bæði
flugfélögin að fagna þeirri
bættu aðstöðu og aðbúnaði
fyrir starfsemi sína og far-
þega, sem hin nýja flugstöð
hefði í för með sér. Hinsveg-
ar er nauðsynlegt að bygging
flugstöðvarinnar verði
hvorki til þess að hindra né
seinka því að tekin verði
frambúðar ákvörðun í flug-
vallarmálinu. Slíkt mundi
hefna sín fyrir alla aðila,
enda mun þess skammt að
bíða að flugfélögin þurfi á
fleiri býggingum að halda
fyrir starfsemi sína, svo sem
flugvélaskýlum, og hvar á að
ætla þeim stað?
Loks tel ég, að ekki megi
skerða fjárveitingu til flug-
valla úti á landi vegna flug-
stöðvarinnar. Þar er svo
margt, sem kallar að.
Örn Ó. Johnson.
Svar:
Alfreðs
Elíassonar
Að mínu áliti er aðeins um
þrjú svæði að ræða fyrir
flugvöll Reykjavíkur og ná-
grennis. Þau eru, á Álftanesi,
Keflavíkurflugvöllur og
Reykjavíkurflugvöllur. Með
þeim takmarkaða orðafjölda
sem ég hefi til að svara þess-
um spurningum tel ég því
heppilegast að skipta svarinu
í þrjá aðalkafla.
1) Rannsaka þarf tafarlaust
allar aðstæður og ákveða
síðan staðsetningu Reykja-
vikurflugvallar framtíðarinn-
ar. Ef rannsóknir leiða í
ljós að tiltækilegt er að
Svar:
Aðaisteins
Jóhannssonar
Ég tel ekki rétt að byggja
vandaða flugstöðvarbygg-
ingu á Reykjavíkurflugvelli
og held að reynslan hafi
sýnt, að flugvelli eigi að
fjarlægja frá bæjum, vegna
hávaða og slysahættu. Flug-
stöðvarbygging, sem gerð er
Frh. á 10 síðu.