Vísir


Vísir - 14.03.1962, Qupperneq 8

Vísir - 14.03.1962, Qupperneq 8
8 VISIR Þriðjudagurinn 13. marz 1962. Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjórar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjómarskrifstofur: Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. 1 lausasölu 3 kr. eint. - Sfmi 11660 (5 lfnur). Prentsmiðja Vfsis. - Steindórsprent h.f. - Edda h.f. Erfiðleikar togaranna Síðustu árin hefir togaraútgerð lands- manna átt við mikla erfiðleika að etja, svo að vart verður líkt við annað en örðugleika á verstu kreppuárunum á f jórða tug aldar- innar. Kemur þetta bezt fram í því, að mörg ágæt skip hafa legið bundin mánuðum og jafnvel árum saman, en útgerðarfyrirtæki hæjarfélaga hafa hvert af öðru orðið að gef- ast upp þrátt fyrir margvíslegar tilraunir til að halda togurunum úti. Þótt heyrzt hafi raddir um, að við eigum að hætta útgerð togara, þar eð hún borgi sig ekki, munu fleiri þeirrar skoðunar, að við eigum ekki að fordæma þessi atvinnu- tæki, þótt eitthvað blási á móti í bili. At- vinnuvegir fslendinga eru einhæfir — en er ástæða til að gera þá enn einhæfari með því að uppræta einn þátt þeirra, sem talinn var hinn mikilvægasti áður og færir þjóðinni enn tugi eða hundruð milljóna króna til ráð- stöfunar árlega? Slíkt er fráleitt og ekki vottur annars en hættulegrar þröngsýni, enda liggur í augum uppi, að það eru að- gerðir okkar sjálfra, sem eiga mikla sök á því, að togurunum er fyrirmunað að fá eins mikinn afla og áður. Togarafrumvarp ríkisstjórnarinnar er í aðalatriðum á þá leið, að breyting verður gerð á hlutatryggingasjóði bátaútvegsins, svo að honum verði í senn veitt aukin vernd fyrir misnotkun og hann geti jafnframt komið togurunum að gagni. Jafnframt mun ríkissjóður leggja fram stórfé, 37,5 milljónir króna, til stofnunar togaradeildar við sjóð- inn, svo að honum verði kleift að sinna meira hlutverki framvegis en undanfarið. Bætur fyrir 1960—61 munu nema um 60 millj. kr. skv. frumvarpinu. Það er táknrænt fyrir nauðsyn þess, að togaraútgerðinni sé hjálpað, að st jórnarand- staðan treystir sér ekki til að mæla því gegn, að þörf sé á hjálp við togarana. Andstæð- ingar ríkisstjórnarinnar segjast bara ekki vilja „fórna“ bátaútveginum fyrir togar- ana. Slíkt, er vitanlega ekki verið að gera, enda mundi stuðningsflokkum ríkisstjórn- arinnar sízt koma það til hugar. Störf stjórnarinnar hafa frá öndverðu miðazt við hag allra stétta og atvinnuvega og svo mun og verða í framtíðinni. Aðstoðin við togar- ana er góð sönnun þess. Ky nþátta va ndamál Alsír og Afríku Vegna þess, hve samband- ið hefur verið náið milli Frakklands og Alsír og vegna þess að stríðið í Alsír hefur orðið miklu harðvítugra en aðrar þjóðfrelsisbaráttur í Afríkulöndum hefur mönnum oft láðst að athuga það, að Alsír-stríðið er aðeins einn þáttur í miklu víðtækari þró- un. Þar sem sjálfstæði Alsír er nú á næsta leiti þá er kom- inn tími til að virða vanda- málið fyrir sér í Ijósi hinnar sögulegu þróunar, þ. e. með tilliti til afnáms nýlendu- stefnunnar og í sambandi við þá stöðu, sem Alsír hefur í Afríku. ★ Kynþáttavandamál. Bak við hinar heitu ástríð- ur og blóðsúthellingar síð- ustu sjö ára í Alsír liggur erf- iðasta viðfangsefnið í sam- bandi við upplausn nýlendu- veldanna, það er kynþátta- vandamál, sem myndast við það að evrópskir landnemar hafa flutzt til landsins í stór- um stíl. Hvernig á að tryggja það, að níu milljón Serkir geti lif- að í friðsamlegri sambúð við eina milljón EyrðþuftSSííná'/ sem hafa fram að þessu haft öll völd og sérréttindi í ‘líf- inu? Og saman við þetta kemur vandamálið, - hvern- ig geta Serkirnir lifað í land- inu án þessara evrópsku inn- flytjenda. ★ Sama vandamál víða. Hér í Bretlandi verðum við þess nú æ meir varir, að þetta vandamál er ekki ein- ungis takmarkað við Alsír. Þess vegna gætir víða í Af- riku og sérstaklega niður eft- ir allri hrygglenjgju svörtu álfunnar í Kenýa, í báðum Ródesíunum og loks í Suður- Afríku. Þeim mun eldra sem hið evrópska landnám er, þvi erfiðara verður að leysa vandamálið. í Suður-Afríku er landnám Evrópumannanna elzt og þar neita landnemarnir að fram- kvæma neina breytingu. Suð- ur-Afríka varð sjálfstætt ríki mörgum árum áður en það fór að blása með breyttri vindátt yfir álfuna og þeir byggðu þetta ríki sitt á hvít- um yfirráðum. Þeir hafa snúizt gegn þjóð- ernisstefnu svertingja með harðri gagnþjóðernisstefnu hvítra manna, Afríkaaner þjóðernisstefnu, sem á ræt- ur sínar langt niðri* í erfða- 3. grein Sylvoin iængeot, frétta- ritora VÍSIS í London, um Alsír venjum hollenzku landnem- anna eða Búanna eins og þeir voru kallaðir. En samkvæmt þeim eru svartir Afríkubúar fordæmdir og þeim útskúfað sem annars flokks borgurum. ★ Hluti af Frakklandi. í Alsír er næstelzta ev- Jópska landnámið. Og í 4undrað ár hefur landinu ver- ið stjórnað eins og hluta af Frakídandi. Engin sambæri- leg nýlendustjórn hefur ver- ið í neinu öðru Afríkulandi. Að vísu voru mörg göt á hinum gömlu frönsku hug- myndum um fullkomin borg- araréttindi, en þær hafa þó sett mark sitt á þjóðemis- stefnu Serkja. Útlendingar, sem komizt hafa í kynni við helztu leið- togana í útlagastjóm Serkja hafa orðið undrandi yfir því, hve franskir þeir eru að öll- um viðhorfum og hugsunar- hætti. Þegar þeir ræða hvað muni gerast eftir að sjálfstæði er náð, þá heyrir maður hug- myndir, sem foringjum ann- arra Afríkuþjóða kæmi aldrei til hugar að velta vöngum yfir. Þeir hafa til að bera stjórn- málaþroska og gera sér full- komlega ljóst, að þeir þurfa að glíma við mikil og erfið vandamál bæði í innanríkis- og utanríkismálum. ★ Vilja samstarf Frakka. Þeir viðurkenna til dæmis, að ef þeim eigi að takast að bæta lífskjör hins serkneska almúga þá verða þeir að fá alla í lið með sér. Til þess verða þeir að tryggja náið samstarf við Frakka og eins marga evrópska íbúa lands- ins og hægt er að fá til að vera um kyrrt í landinu. Eitt er víst, að Alsír-til- raunin mun hafa víðtæk á- hrif í öllum öðrum löndum, sem eiga við kynþáttavanda- mál að stríða. Ef vopnahléinu fylgir að- eins öngþveiti og öfgamönn- unum í báðum tjaldbúðum tekst að hindra gott samstarf Frakka og Serkja á millibils- tímum, þá er það víst, að hvítu landnemarnir í Ródesíu munu harðna um allan helm- ing í mótspymu sinni við vald brezku stjómarinnar. Ef hótanir OAS-samtak- anna hins vegar hjaðna nið- ur og gott samstarf tekst milli Frakka og Serkja, þá mun það hafa heillavænleg áhrif til lausnar kynþátta- vandamálunum í Kenýa og Ródesíunum tveimur. ★ Öflugt Afríkuríki. Hitt er og þýðingarmikið ef tilraunin tekst vel og sjálf- stætt Alsír rís upp án meiri- háttar óhappa, að þá mun ný og björt stjarna rísa á hinni afrísku himinfestingu. í dag er Alsír efnahagslega vanþróað og stjórnmálalega í upplausn. En á afrískan mælikvarða er Alsír fjöl- mennt og auðugt land. Auðvitað verður gömlum Framh. á 10. síðu. Mikið hatur hefur kviknað milli kynþáttanna í Alsír, hinna innfæddu Serkja og evrópsku landnemanna. Þessi mynd var tekin í Arabahverfi Algeirsborgar fyrir nokkm, þegar serk- neskir íbúar fóru í mótmælagöngu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.