Tölvumál - 01.09.1986, Page 6
Skýrslutæknifélag íslands boðar til félagsfundar
i Norræna húsinu, þriðjudaginn 30. september
n.k. kl. 14.30.
Dr. Jörgen Pind, deildarstjóri tölvudeildar
Orðabókar Háskólans heldur fyrirlestur um
ORÐABÓKARGERÐ Á TÖLVUÖLD
Dr. Jörgen Pind hélt þennan fyrirlestur á Nord-
DATA 86 s.l. sumar og hlaut verðlaun fyrir.
Dómnefndin byggði úrskurðinn á þvi að fyrir-
lesturinn fjallaði iam nytt og spennandi efni, sem
væri að nyta tölvutæknina sem verkfæri við tungu-
málarannsóknir og gerð orðabókar. Einnig væri
hann sérlega vel fluttur og uppbygging mjög góð.
Tölvan er hið nytsamasta hjálpartæki við
textavinnslu en að auki gerir hún ritstjórum
orðabóka kleift að vinna verk sitt með öðrum og
markvissari hætti en hægt hefur verið til þessa.
Þá er nú mögulegt að geyma orðabækur i tölvu.
Þannig opnast leiðir til að ná til þeirra
margvíslegu uppiysinga sem oft getur verið erfitt
að finna í prentuðum bókum.
í fyrirlestrinum verður rætt um það með hvaða
hætti tölvur nytast við orðabókargerð, einkum við
gerð sögulegra orðabóka.
Eftir fyrirlesturinn gefst tækifæri til fyrir-
spurna og umræðna um efnið.
Kaffi.
Stjórnin.
6