Tölvumál - 01.09.1986, Qupperneq 7
Kynning á tölvunámi l.júnf s.l.
Það var 1. júní s.l. að fólki gafst kostur á að kynna
sér flest af því sem í boði er af tölvukennslu á
höfuðborgarsvæðinu. Skýrslutæknifélagið gekkst fyrir
kynningunni og var hún haldin i Verzlunarskólanum.
Ekki var annað að sjá en að þetta væri kærkomið
tækifæri fyrir marga, þvi stöðugur straumur gesta var
á kynninguna allan daginn. Alls komu rúmlega 600
manns og voru þeir á öllum aldri.
Yfir 20 aðilar tóku þátt i kynningunni. Þarna voru
fulltrúar frá Fjölbrautarskólanum i Breiðholti,
Háskóla íslands, Iðnskólanum í Reykjavík, Kennara-
háskólanum, Menntaskólunum i Kópavogi og Reykjavik,
Tækniskóla íslands, Iðntæknistofnun íslands, Stjórn-
unarfélagi íslands, Tölvu- og verkfræðiþjónustunni,
Tölvufræðslunni, Tölvuskóla Gisla J. Johnsen, Tölvu-
skólanum Framsyn, og frá IBM á íslandi. Þá kynnti
Bjarni Júliusson tölvunám i Florida State University,
Einar Þórðarson og Hrönn Þormóðsdóttir nám í EDB
skólanum i Odense, Hjálmtyr Hafsteinsson, tölvunám í
Cornell háskólanum i N.Y. og Hólmfriður Pálsdóttir,
tölvunám i University of London.
Formaður undirbúningsnefndar Bergur Jónsson,
tölvufræðingur opnaði kynninguna og sagði m.a. "Fyrir
nokkru vaknaði sú hugmynd hjá Skyrslutæknifélagi
íslands, hvort ekki væri þörf fyrir kynningu á þvi
tölvunámi, sem okkur stendur til boða. Hugmyndin var
mótuð og ákveðið að bjóða þátttöku öllum þeim, sem
hefðu einhvers konar tölvunám á sinni dagskrá.
Ástæður fyrir þvi að við teljum slíka kynningu eiga
erindi til fólks eru margar. Ein er sú að á siðustu
árum hefur hafist þróun i tölvuvæðingu landsins, sem
likja má við byltingu. Börn fá tölvur i
fermingargjöf, fólk notar þær til gamans, fyrirtæki
og stofnanir af öllum stærðum og gerðum tölvuvæðast.
Þessi tækni kemur æ oftar inn i daglegt líf okkar.
Þrátt fyrir mjög mikla verðlækkun á tölvubúnaði er
þetta dýr búnaður. Hann er einnig flókinn. En það
þarf ekki aðeins að læra á vélarnar. Það þarf einnig
að læra að nyta þennan tæknibúnað á réttan hátt.
Annars eiga menn á hættu að hann verði einungis
kostnaðarauki fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
7