Tölvumál - 01.09.1986, Síða 10
ráðstefnu, ekki síst að nota þetta tækifæri til að
koma þvi á framfæri, sem verið er að gera i
tölvumálum hér. Undirtektir sýna að við eigum sist
minna erindi sem fyrirlesarar á NordDATA en aðrir.-ló
Skýrslutæknifélaginu hefur borist "Call for papers"
fyrir NordDATA 87, sem haldin verður i Þrándheimi 15.
-18. júni n.k. Bæklingurinn, sem er með nákvæmum
upplýsingum fyrir væntanlega fyrirlesara
ráðstefnunnar liggur frammi hér á skrifstofu
félagsins. Félögum, sem ekki eru áskrifendur að
DATAnytt og fá þar af leiðandi ekki bæklinginn sendan
i pósti er bent á að hafa samband við skrifstofuna i
sima 82500 óski þeir eftir þeim upplýsingum, sem hann
hefur að geyma.
Fyrsta tilkynning frá fyrirlesurum verður að hafa
borist dagskránefnd NordDATA 87 fyrir 15.
nóvember n.k. 6 verðlaun verða veitt fyrir bestu
fyrirlestrana að upphæð N.kr. 12.000 hver.
Lesendur TÖLVUMÁLA eru eindregið beðnir að kynna sér
málið þvi eins og Lilja ólafsdóttir, fulltrúi
Skýrslutæknifélagsins i Nordisk DATAunion bendir
réttilega á hér að framan er ástæða til þess að
hvetja íslendinga til að nota þau tækifæri sem þessi
langstærsta tövluráðstefna á Norðurlöndum gefur.
Þetta er tilvalinn vettvangur til að koma þvi á
framfæri, sem verið er að gera i tölvumálum hér á
íslandi. -kþ.
10