Tölvumál - 01.09.1986, Side 12
Frá Félagi tölvunarfræðinema við Háskóla íslands:
TÖLVUR OG ÞJÓÐLÍF
TÖLVUR OG ÞJÓÐLÍF er tölvusýning, sexn tölvunarfræði-
nemar við Háskóla íslands halda dagana 8. - 12.
október næstkomandi.
Það er orðinn fastur liður hjá tölvunarfræðinemum að
halda sýningar af þessu tagi. Þó má segja að i þetta
skiptið verði um einstaklega glæsilega sýningu að
ræða, sem ætti að gefa fyrirtækjum, fjölskyldum og
einstakligum kjörið tækifæri til að sjá og kynnast
þvi nyjasta sem er að gerast á sviði tölvutækni.
synendur verða fleiri en nokkru sinni áður eða á
milli 40 og 50 og verður hið glæsilega Borgarleikhús
i Reykjavik syningarstaður að þessu sinni. Fyrir-
tækin sem sýna, starfa allt frá sölu mikilvirkra
tölva til sérhæfðra sviða innan tölvutækni Póls
o.fl.
Eins og áður var getið á sýningin TÖLVIJR OG ÞJÓÐLÍF
að veita innsyn í það nýjasta sem er að gerast í
tölvutækni i dag. Fyrirtækjum gefst kostur á að bera
saman þær lausnir sem bjóðast við tölvuvæðingu
fyrirtækis, bæði á sviði vél- og hugbúnaðar. Er
syningin þvi kjörinn vetvangur til slíkra hluta.
Allir hafa heyrt talað um að við lifum á
uppiysingaöld og þjóðfélag nútimans sé þjóðfélag
uppiysinga. Það er þvi vel við hæfi að sem flestir
kynni sér það sem er að gerast í tölvutækni í dag.
Tölvur eru í æ ríkari mæli að ryðja sér til rúms sem
verkfæri einstaklingsins, bæði sem atvinnutæki,
námstæki og einnig til skemmtunar og fróðleiks.
TÖLVUR OG ÞJÓÐLÍF er þvi syning sem ætti að veita
einstaklingum, sem og fjölskyldum, uppiysingar sem
koma mættu að gagni í hugsanlegum tölvukaupum.
í tengslum við TÖLVUR OG ÞJÓÐLÍF verður haldin
ráðstefna, þann 8. október að Hótel örk i Hvera-
gerði, undir heitinu FRAMTÍÐARÞRÓUN í TÖLVUTÆKNI.
Þangað hefur verið boðið þekktum erlendum
fyrirlesurum. Fundarstjóri verður Páll Jensson,
forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans. Þeir sem
áhuga hafa á að taka þátt i ráðstefnunni er bent á að
tilkynna þátttöku í sima 12602.
12