Tölvumál - 01.09.1986, Side 20

Tölvumál - 01.09.1986, Side 20
TVEIR FRÁ SHANGHAI Einn af þekktustu tölvumönnum í heiminum er An Wang. Wang stofnaði Wang Laboratories á sjöunda áratugnum. Fyrirtækið er nú i hópi tiu stærstu tölvufyrirtækja i Bandaríkjunum. Wang Labratories velta 2,6 miljörðum dollara á ári. Markaðsverð fyrirtækisins er talið vera álika hátt. Fjölskylda Wangs ræður 70% af öllu hlutafé fyrirtækisins. Hann er sjálfur talinn vera í hópi 10 auðugustu manna í Bandarikjunum. Saga An Wangs er draumasaga hins fátæka innflytjanda til Bandarikjanna, sem kemst i fremstu röð af eigin verðleikum. Hann fæddist í Kina 1920. Fyrstu rafeindatæki sin framleiddi hann fyrir kinverska herinn þegar föðurland hans var hersetið af Japönum. í lok siðari heimstyrjaldarinnar fluttist hann frá Shanghai til Bandarikjanna. 3. júli siðastliðinn var An Wang i hópi 12 innflytenda, sem þykja hafa skarað fram úr á einhverju sviði og Reagen forseti heiðraði. Þar var hann í félagsskap Bob Hope og Henry Kissinger. í vor sameinuðust stórfyrirtækin Sperry Corp. og Burroughs Corp. Saman mynda þau næst stærsta tölvufyrirtæki i heimi. Við sameininguna hafði Burroughs yfirhöndina. Stjórnarformaður þess er nú valdamesti maður hins sameinaða fyrirtækis. W. Michael Blumenthal er ekki gamall i hettunni sem "tölvumaður". Hann tók við stjórnartaumunum hjá Burroughs 1980. Þá var hann þegar orðinn mjög kunnur athafnamaður, sem stjórnarformaður Bendix Corp. Ekki var hann siður þekktur af setu i stjórn Jimmy Carters. Þar gegndi hann embætti fjármálaráðherra 1977 - 1979. Blumenthal er af þýsku bergi brotinn. Foreldrar hans flýðu undan nasistum 1939 þegar Michael var 13 ára. Þau settust að i Shanghai. Þar vann drengurinn meðal annars fyrir sér með þvi að þrifa rannsóknartæki á tilraunastofu fyrir einn dollara á viku. Til Bandarikjanna flutti hann 1947 með 60 dollara i vasanum og fátæklega kunnáttu í enskri tungu. -si. 20

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.