Vísir - 03.04.1962, Síða 5
Þriðjudagurinn 3. apríl 1962.
VISIR
5
ór um allt landið
Snjókoma var í morgun um
allt Vesturland og snjóaði býsna
mikið, hér í Reykjavík til dæm-
is 4 millimetra á 3 klst. og er
það mikil úrkoma af snjó að
vera, sagði Páll Bergþórsson
Vísi í morgun, er hann spurði
hann frétta af snjókomunni. —
Kvað hann snjókomuna mundu
færast austur yfir landið, en
smá-eyðast.
Vísir hefur haft af því spurn-
ir, að á ýmsum bæjum út um
sveitir, vestur um Mýrar og
sums staðar austan fjalls, hafi
vatnsskortur verið orðinn til
mikils baga á mörgum bæjum,
og orðið að sækja vatn að, sums
staðar langar leiðir, í straum-
vötn og á aðra staði, þar sem
vatn er að finna. Er þetta mik-
ið og erfitt verk, og má geta
nærri hver óhemjuvinna er við
það bundin, eins og dæmi eru
til, er sækja verður vatn að dag-
Frímerkjadagur o * •
Framh. af 16. síðu.
að frímerkjasöfnun lýtur.
Margir frímerkjasafnarar safna
ekki einungis frímerkjum, held-
ur líka póststimplum. Eiga sum-
ir þeirra mjög stór stimplasöfn.
Með vaxandi áhuga á frímerkja-
söfnun hefur póstþjónustan auk
ið þjónustu við safnarana með
því að stimpla með sérstimpl-
um.
Þessir eru helztu sérstimplar
á síðustu árum. Stimpill í sam-
bandi við „Frimex“ frímerkja-
sýninguna 27. sept. 1958, stimp-
ill í sambandi við frímerkjasýn-
ingu Æskulýðsráðs Reykjavíkur
7. apríl 1960. Þá var dagur frí-
merkisins í fyrsta sinn haldinn
hátíðlegur 11. apríl 1961 og var
þá notaður sérstimpill. í dag er
svo annar dagur frímerkisins.
iÍBfidÍBidRSBtienn •. •
Framh. af 1. síðu.
kosningunni og síðan sæti á
listanum, en Freymóður taldi
annars líklegt, að Gísli Sigur-
björnsson yrði í efsta sæti Mun
ekki verða hætt við bessi á-
form, nema tryggð verði tvö ör-
ugg sæti á listum flokkanna,
sagði Freymóður að lokum
Fjandskapur við
AA og Bláa bandið.
Vísir hefir frétt þa'~' »f>:r
öðrum leiðum, að bindindis-
menn hafi leitað eftir þvi við
Jónas Guðmundsson, hinn ötula
forvígismann AA-samtakanna
og Bláa bandsins. að hann tæRi
efsta sæti á lista þeirra, en
hann hafnaði, þar sem templar
ar hafa jafnan verið fjandsam-
legir því ágæta starfi, sem þessi
samtök hafa unnið. Má segja
að það er mikið áfall fyrir þl
að Jónas skuli hafa reynzf ó-
fáanlegur til framboðsins þvi
að fáum mun þykja Gisli sigur
stranglegur.
Er raunar erfitt að sjá hvaða
menn þessir „iistamenn" gets
fengið til liðs við sig, en bó. er
helzt talið, að eitthvað ar ó-
ánægðum Framsóknarmórinum
mundu kasta atkvæði sínu á
þenna lista.
lega til heimilisnota og handa
tugum nautgripa og annars bú-
penings. Á tamningastöð einni
austan fjalls hefur orðið að fara
með allan hópinn, yfir 20 hesta,
langa leið hverju sinni til brynn-
ingar, og mætti fleiri slík dæmi
nefna. Ekki er það óalgengt á
ýmsum bæjum, þar sem brunnar
þverra í langvarandi úrkomu-
leysi á vetrum, að menn bjarga
Slasaðist í skipi
1 gærkveldi slasaðist maður við
vinnu í skipi inn við Gufunes-
bryggju.
M.s. Arnarfell lá þar við bryggju
og var að athafna sig, er einj
verkamanna, Rúnar Finnbogason.
Óðinsgötu 25, varð milli lestarops
og vörulyftu.
Hve mikið Rúnar slasaðist veit
blaðið ekki, að öðru leyti en því
að Iæknir sem skoðaði hann
sfeömmu eftir að slysið varð
kvaðst vona að það væri ekki al-
varlegs eðlis.
Þjóðréttarfræðingur -
Framh af 16. síðu.
kunnasti þjóðréttarfræðingur Breta
og mikilsvirtur kennari í fræði-
grein sinni. Hann kemur hingað
samkvæmt sérstökum samniogi
milli British Council og Háskóla
íslands um gagnkvæm skipti á fyr-
irlestrum.
sér með því að bræða snjó
handa skepnum og til matar-
gerðar, en nú hefur lengi verið
snjólaust í fjölda mörgum byggð
um, svo að ekki hefur orðið til
þess ráðs gripið. Mun núverandi
snjókoma allvíða vera fagnað í
sveitum í von um, að veður-
breytingin leiði til þess að úr
vatnsskortinum bætist. Víða
hefur vart komið úrkoma, að
minnsta kosti ekki rignt að heit-
ið geti, frá því um miðjan febrú-
ar, og hafi verið lítils háttar úr-
koma hefur hún ekki komið að
haldi, þar sem hún hefur ekki
komizt niður vegna frosta, en
verið hafa langvarandi frost-
Gísli Halldórsson.
Heiðrar Gísla
Fyrir skömmu sæmdi stjórn
Danska íþróttasambandsins
Gísla Halldórsson, formann ÍBR,
gullmerki sambandsins fyrir
störf hans að íþróttamálum og
íþróttasamskiptum danskra og
íslenzkra íþróttamanna. — Var
veiting merkisins ákveðin á
fyrsta fundi sambandsstjórnar-
innar eftir heimkomu dönsku
gestanna á afmælishátíð ÍSÍ i
vetur, en eins og kunnugt er
var Gísli formaður undirbúnings
nefndar hátíðahaldanna.
| Yfir 350 brezkir blaðamenn hafa
boðað verkfall eftir 4 vikur náist
ekki samkomulag um kaup þeirra
og kjör. — Lágmarkslaun eru nú
21 sterlingspund og 10 shillingar
á viku.
Salomonsdómur í togaramáli
Alþjóðanefnd hefur skilað áliti i
Haag að undangenginni rannsókn
á atburði þeim sem varð við Fær-
eyjar £ maímánuði í fyrrasumar, er
danska varðskipið NIELS EBBE-
SEN skaut á Aberdeen-togarann
RED CRUSADER. í Haag var gef-
ið í skyn— en ekki opinberlega
— að upp hefði verið kveðinn
Salomonsdómur.
Báðir víttir.
í áliti nefndarinnar eru báðir
víttir: Sölling skipherra á Niels
Ebb?sen og Wood skipstjóri á Red
Crusader. Sölling fyrir að láta ögr-
andi framkomu Woods hafa þau
áhrif á sig, að hann lét skjóta
kúluskoti á togarann — hann hafi
með því farið yfir þau mörk, sem
embættisskyldan bauð honum, og
sett mannslíf í hættu, — en Wood
fyrir að hlýðnast ekki fyrirmælum
Söllings, að nema staðar — en
fyrr þennan sama dag, 29. maí,
hafði hann hlýðnast slíkum fyrir-
mælum.
Hugðist ræna mönnum.
í þessum vítum á Wood inni-
Frondizi Argentínuforseti leiddur í fangelsi á dögunum.
Látlausar hríðar og frost
hörkur norðanlands
Akureyri, 2. apríl.
Allt er komið á kaf í fönn á
nýjan leik hér Norðanlands. Umd-
anfarið hefur verið hríðarveð-
ur dag eftir dag, nema i gær var
gott veður, og færð hefur spillzt
verulega á vegum úti.
Snjórinn er það mikill orðinn,
að ekki sér lengur á dökkan dil
að heitið getur og meira að segja
er víða örðugt fyrir fólksbíla að
komast eftir götum Akureyrar. í
moigun var hér 16 stiga frost.
í gær varð að fresta skíðamóti
sem halda átti við skíðahótelið í
Hlíðarfjalli vegna þess, að þátt-
takendurnif komust þangað ekki.
Leiðin til Húsavíkur er orðin ó-
fær bifreiðum á nýjan leik og
ekki komast aðrir bílar en „trukk
ar“ út í Höfðahverfi eða til Dal-
vikur. Byrjað var í morgun að
ryðja Dalvíkurleiðina. Öxnadalur-
inn og Öxnadalsheiðin virðast
eitthvað snjóléttari, því í gær kom
bíll sunnan yfir heiði til Akureyr-
ar. Kvað bílstjórinn leiðina ennþá
færa, en mætti þó ekki versna að
ráði úi þessu. ;
Vegna hriðarveðurs gátu flug-
. vélar ekki lent á Akureyrarflug-
| velli, hvorki á laugardag né föstu-
dag.
felst, að hann hafi ætlað að ræna
tveimur dönskum sjóliðsforingj-
um. Bech lauinanti og Kropp korp-
óráli, en þeir voru sendir frá Niels
Ebbesen yfir í togarann. Wood
ætlaði sér að komast undan með
þá til Aberdeen. Þeim var sleppt
eftir að tvö brezk herskip lcomu á
vettvang, en þau fylgdu þvi næst
Red Crusader heim.
í brezku blaði er komist svo að
orði um víturnar á Sölling, að
nefndin hafi komist að þeirri nið-
urstöðu, að hann hafi tvívegis
gengið lengra £ valdbeitingu en
löglegt er:
1. Hann hafi skotið kúiuskoti
án aðvörunar, — og
2. „teflt mannslífum í hættu án
þess sannað sé, að nauðsyn
hafi knúið hann til þess“.
I dönskum blöðum segir um nið-
urstöður nefndarinnar, að hún
hafi að sjálfsögðu viðurkennt full-
an rétt danskra yfirvalda í fær-
eyskri landhelgi — og hinn skozki
skipstjóri verið víttur fyrir, að hafa
verið með vörpuna á hlið innan
landhelgi á nánara tilteknum tíma,
en nefndin telur ekki sannað, að
hann hafi verið að ólöglegum
veiðum.
Salómonsdómur.
Nefndin, sem var skipuð mönn-
um frá Frakklandi, Hollandi og
Belgíu, hefur þannig kveðið upp
dóm þar sem báðum aðilum er
kennt um, og mjög reynt að þræða
meðalveg, svo að málið verði ekki
þrætumál lengur.
Ríkisstjórnir Bretlands og Dan-
merkur hafa nú álitið til athugun-
ar og sennilega ekki annað eftir
en semja um bætur fyrir þær
skemmdir, sem Wood mun gera
kröfur til, vegna skemmda af
kúluskotinu.
Var við Færeyjar.
Eitt Hafnarblaðanna gróf það
upp, að þegar dómurinn var
felldur hafi Wood verið að fiska
við Færeyjar, og hringdi til
konu hans i Aberdeen, sem
staðfesti, að hann væri að veið-
um þar, — „rétt megin línunn-
ar“, bætti hún við. í Aberdeen
væru menn þeirrar skounar,
sagði blaðið ennfremur eftir
upphringinguna, að lífið — og
fiskveiðarnar — yrðu að ganga
sinn gang, hvað sem liði áliti
Haagnefnda.