Vísir - 03.04.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 03.04.1962, Blaðsíða 7
Þrtðjwdaga'FHMi 3. apríl 1962, V’SIR 7 Gagnmerk messubók Messubók, tekin saman af síra Sigurði Pálssyni, ’sett í Prentsmiðju Hafnarfjarðar .h.f af Albert Þorsteinssyni, prentuð í Kassagerð Reykja- víkur h.f. af Gunnari Giss- urarsyni, gefin út af Krist- jáni Jóh. Kristjánssyni og sfra Sigmari I. Torfasyni. - 1961. Útkoma hinnar nýju Messu- bókar sira Sigurðar Pálssonar er merkur atbufður f íslenzkri kirkjusögu, enda ekki getið með stóru blaðaletri og heil- sfðumyndum eins og venja er, þegar ausið er yfir fólk ein- hverju ómerkilegu eða algjöru fánýti. Hér hefur verið unnið ó- venjulegt og glæsilegt afrek í kyrrþei. Árið 1947 kom út lítil og fögur bænabók eftir séra Sig- urð. Óskaði ég þá, að fieiH bækur kæmu frá þeim höfundi og hefur mér nú orðið að þeirri ósk rninni. Hér er ekki ætlunin að skrifa langan ritdóm um Messubók séra Sigurðar Pálssonar, en bókarinnar vil ég þó geta meö nokkrum orðum. Sá góði siður hefur mjög aukizt hin síðari árin. að auka, endurbæta, fegra og lífga sitt- hvað á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins og kunna menn því að vonum vel. Hví skyldi þetta þá ekki einnig ná til kirkj- unnar? Þjóðkirkjan íslenzka hefur um aldir búið við fátæk- legt og flatneskjulegt danskt messuform. En nú er svo að sjá, sem breytinga megi vænta hér eins og víða hafa á orðið erlendis. í kirkjulegum efnum ein- kennist 20. öldin af liturgiskum fræðiiðkunum og 'endurbótum. Fara þær fram í öllum kirkju- deildum og virðist liturgían tala sterku máli til samtíðarinnar ísland hefur ekki orðið ósnort- ið af þessarri hreyfingu eins og sjá má af hinni nýju Messubók séra Sigurðar. Vafalaust halda vmsir, að það sé svo sem eins og ekkert verk að taka saman messubók. Að baki hinnar nýju Messubókar séra Sigurðar Pálssonar er margra ára starf og heimildakönnun. Enda verð- ur ekki annað sagt, en að messa þessi hafi þegar fengið hinar beztu viðtökur, bæði þar sem séra Sigurður hefur fram- flutt hana og nú síðast, er sjálf- ur biskupinn söng hana í Há- skólanum Helztu nýjungarnar í þessari nýju Messubók eru: 1. Inngöngusálmur, tekinn úr Davíðssálum eins og fylgt hefur messum Vest- urlanda síðan á 4. og 5. eld, eða tekinn úr sálma- bókinni. Kyrie frá 6. öld og Gioria nokkru yngri. 2. Pallasöngur, þ. e. söngur milli pistils og guðs- spjalls. Sennilega allt frá postulatímum. 3. Trúarjátning, sem verið hefur síðan á 5. og 6. öld. 4. Prefatia, sem innleidd er með víxlsöng, er fylgt hefur öllum þekktum sakramentissöngvum allt frá upphafi. 5. Hinn himneski lofsöngur úr Jesaja 6, sem kallast Sanctus og hefur að lík- indum tíðkast allt frá dög- um postulanna 6. Agnus Dei, innleitt af Gregoríusi um 600. Ýmsar fleiri athyglisverðar nýjungar í Messubók sr. Sig- urðar mætti og nefna, en verð- ur ekki gert hér nema hvað drepið skal á eitt atriði, er okk ur lútherskum mönnum á íl' landi kann að þykja allnýstár- legt. Höfundur bendir i það 1 eftirmála, að nú tíðkist orðið að halda ýmiss konar kirkju- daga. Setur hann því sérVain messu í bókina á ártíðardegi og segir: „Kirkja vor hefur um alca- skeið í engu sinnt minningu framliðinna eftir útfarardagir.n. Þessi vanræksla hefur leitt til þess, að sú þjónusta hefur lent í höndum kuklara. Nauðsyn ber til að kirkjan endurskoði af- stöðu sína til þessa máls. Til að minna á það, er hér sett messa á ártíðardegi". Eins og ég drap á að framan hefur með þessari nýju Mes ,u- bók verið verk unnið mikið. gott og óeigingjarnt verk, bor- ið uppi af áhuga og köllun. Séra Sigurður segir, að Messu- bókin hvíli á þessum stoðum: „1. Nýja Testamenti í þýð- ingu Odds Gottskálk i- sonar lögmanns, 1540. 2. Handbók Marteins Ein- arssonar Skálholts bisk- ups, 1555. 3. Messusöngbók (Gradu- ale) Guðbrands Þorláks sonar Hólabiskps, 1594 4. Helgisiðabók, Rvk, 1910 5. Helgisiðabók, Rvk, 1934 6. The Lutheran Liturgy 1940. 8. Agende fiir evangelisch- Framh á 10 síðu .Ú;V j V;.-,.. .. . :•:•:■• :■:•:• : ' t in. I ‘ OiX fcí b-s.wi; tXV' J I 1 . .V ' Sýnishora af kápum og innsíðum nokkurra bóka, sem Ríkisútgáfa námsbóka hefur nýlega gefið út. Ríkisútgáfa námsbóka er 5 ára um þessar mundir og hefur á þessum árum látið prenta 136 bækur og hjálpargögn í rúmlega 1 milljón eintaka, upplag ein- stakra bóka frá 10—35 þúsund eintök, en í ár kemur út bók í stærsta upplagi, sem bók hef- ur verið gefin út hér á landi, litprentuð íslenzk landabréfa- bók, er prentuð verður í 40 þús- und eintökum. Samkvæmt fyrstu lögum rík- isútgáfunnar skyldi hún sjá 7 —13 ára börnum fyrir ókeypis námsbókum og var það gert fyrst haustið 1937. Fyrstu árin var námsbókagjaldið, er kosta átta útgáfu námsbókanna 7 kr., en síðustu árin 15 krónur fram undir 1956, er sett voru ný lög, og gjaldið ákveðið 95 krónur 1957, en s.l. ár var það 154 kr. 1957 var framlag ríkissjóðs til útgáfunnar 1.350 þús. krónur, en heildartekjur útgáfunnar s.l. ár 4 millj. og 50 þús. kr., Litprentuð iandabréfabók, er verið hefur í athugun og undirbúningi i aldarfjórðung, kemur út á þessu ári. Helming- ur hennar er um tsland og frum- verk að öllu leyti, en útlöndin er sænsk vinna, nema ianda- fræðiheitin prentuð fyrir Ríkis- útgáfuna, og bókin öll prentuð í Svíþjóð og frágangur allur eins og bezt verður á kosið, eins og blaðamenn komust að raun um í gær, er stjórn útgáf- unnar ræddi við blöðin og sýndi próförk af bókinni. Þeir, sem bú- ið hafa hana til prentunar, eru Helgi Elíasson, Einar Magnús- son og Ágúst Böðvarsson. Aðrar nýjar bækur á árinu eru: Tvö kennslu- og æfinga- hefti í reikningi, myndskreytt og litprentuð, fyrir 6 og 7 ára börn, eftir Jónas B. Jónsson. Vinnubækur í tónlist, 4 hefti, tekin saman af söngkennurun- um Jóni Ásgeirssyni, Guðrúnu Pálsdóttur og Kristjáni Sig- tryggssyni. Náttúrufræði eftir Pálma Jósefsson og Geir Gígju. íslenzk bókmenntasaga 1750— 1950, ágrip handa unglingum, 2. útgáfa aukin og breytt, eftir Erlend Jónsson. Landafræðibók um Evrópu eftir Guðmund Þor- láksson. Mannkynssaga (fram- hald) eftir Jón R. Hjálmarsson Eðlisfræði Pálma Jósefssonar, breytt útgáfa, og framhald af henni, eftir Guðmund Arnlaugs- son, kemur sennilega haustið 1963. Rækur í undirbúningi. í ráði er, að Heimir Áskels- son semji kennslubók í ensku fyrir gagnfræðastigið. Fyrir barnaskólana koma út á næsta ári landafræði eftir Erling Tóm- asson, biblíusögur teknar saman af Þórði Kristjánssyni og Stein- grími Benediktssyni, og nýtt sönglagahefti fyrir 10—12 ára börn, er Ingólfur Guðbrandsson tekur saman. Ný Islandssaga, eftir Þórleif Bjarnason, er í smíðum, og kemur væntanlega fyrsta heftið út haustið 1963. Þá er í ráði að hefja útgáfu arkasafns eða leshefta, sem ætl- azt er til, að kennarar hafi til skýringar og uppfyllingar efni ýmissa kennslubóka. Umsjá með undirbúningi hefur Helgi Þor- láksson. 30 þúsund við skyldunám. Ríkisútgáfan gefur nú barna- skólunum kost á 63 mismunandi ókeypis oókum og unglingaskól- unum 19, og fá nemendur þær flestar til eignar, en nokkrar aðeins lánaðar neme iaum. Nem- endur í skyldunámsskólum munu nú vera um 30 þúsund á landinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.