Vísir - 03.04.1962, Side 6

Vísir - 03.04.1962, Side 6
6 V'SIR Þriðjudagurinn 3. apríl 1962. Athugasemd við athugasemd Svavar Pálsson dósent tekur hugpiynd mína um aðstöðugjald 1 fórmi vinnsluvirðisgjalds til með- ferðar í stuttri athugasemd í Morg unblaðinu, laugardaginn 31. marz. Þar slær hann tvær flugur i einu höggí, því að jafnframt svarar hann mjög samhljóða grein eftir Hauk Eggertsson, framkvæmda- stjóra. Raunar er það merkileg tilviljun, að við Haukur skulum sama dag- inn koma fram með sömu hug- mynd um lausn þessa máls, studda sömu rökum og sams konar dæm- um. Fleiri en ég munu áreiðan- lega telja það staðfestingu þess, að eitthvað sé í þessa hugmynd varið. Vitaskuld geri ég mér grein fyr- ir því, að ákvæðin eru hámarks- ákvæði. Lögin taka það skýrt fram, og er það skýrt nánar í greinargerð. Þetta skiptir bara ekki máli í þessu sambandi. Lögin tak- marka frjálsræði sveitarfélaganna í þessum efnum, bæði þeim til leið- beiningar um, hver sé hinn rétti álagningargrundvöllur, og þó eink um til þess að tryggja menn gegn réttleysi handahófskenndrar álagn ingar og persónulegrar mismunun- ar. Hámarksákvæði verða því jafnt og bindandi ákvæði að miðast við réttan álagningargrundvöll að dómi löggjafans. Svavar ber alls ekki á móti því, að vinnsluvirðið sé hinn réttmæti grunavöllur aðstöðugjaldsins. — Þvert á móti virðist hann mæla með framkvæmd þess með þeim l.ætti, að gjaldprósentan sé gerð mjög breytileg, eftir þvl hvert hlut- fall sé milli veltu og vinnsluvirð- is í hverri grein, jafnvel hjá hverju fyrirtæki. Þar höfum við það. Al- þingi a að setja lög um álagningu á veitu, eh síðan á framkvæmda- valdið, skattstofur og niðurjöfnun- arnefndir að bauka svo við fram- kvæmd laganna, að úr verði álagn- ing á vinnsluvirði, og það auðvitað án þess að mega lýsa því yfir, hvað verið sé að gera. Ég ber svo rótgróna virðingu fyrir Alþingi sem stofnun, að ég er ekki til viðtals um þess háttar bollalegg- ingar. Við höfum þegar allt of mikið af þess háttar bauki, sem grefur undan trausti manna á stofn unum hins opinbera og trúnaði við þær. Reynslan hefur að vísu fjölmörgum sinnum fært mér heim sanninn um það, að embættismenn irnir eru að jafnaði að reyna að gera það, sem þeir vita réttast og bezt til almannaheilla. En því trúa ekki allir. Störf þeirra verða þv£ að markast af meginreglum, sem almenningur getur skilið, met- ið og dæmt um. tíjaldið á vinnsluvirði er held- ur ekki svo auðveldlega framkvæm anlegt eftir krókaleiðum. Gjald- skráin verður að vera mjög marg- brotm, jafnvel oft að miðast við hin emstöku fyrirtæki. Hvernig er þá hægt að semja hana, án þess að ýmsar annarlegar afstöður til fyr- irtækja og manna komi til greina? Hvernig verður misferli fyrir- byggt, og það svo að almenning- ur megi því treysta? Þetta er auð- veldara, sé lagt á rekstrardeildir fyrirtækjanna út af fyrir sig (be- driftsbasis), eins og álagning veltu útsvarsins var farin að sveigjast að í sumum grfeinum. En felst ekki 1 þessu uppgjöf viðmiðunar við veltu? Menn hafa I rauninni verið að leitast við að miða við vinnslu- virði, en ekki vanizt því hugtaki eða kynnt sér gildi þess. -Ivers vegna eigum við ekki að taka skref ið út og spara okkur miklar flækj- ur og mikið ómak með því að miða aðstöðugjaldið við vinnslu- virði? Bjarni Bragi Jónsson. Enginn árangur Viðræður hafa farið fram milli aðila frá Útgerðarfélagi Akureyringa og Sjómannafélags ins á staðnum, en ekki orðið árangur til þessa, enda ólíklegt talið að norðlenzkir sjómenn vilji skera sig úr hvað snertir heildarsamninga. Eiginmaður minn og faðir okkar, JÓHANN ÞORFINNSSON frá Siglufirði, er lézt að heimili sínu 26. marz s.l., verður jarðsung- inn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. þ. m. kl. 10.30. Jarðarförinni verður útvarpað. Aðalbjörg Björnsdóttir, Sigurlaug Jóhannsdóttir, Þorfinnur Jóhannsson, Bjöm Jóhannsson. En með hliðsjón af því hefur Útgerðarfélag Akureyringa sagt upp öllum yfirmönnum á togur- unum, hið sama er og búizt vSð að gert verði við flesta starfs- menn frystihússins. Fjöldinn allur af togarasjó- mönnum hefur nú leitað sér atvinnu annarsstaðar, m. a. eru ýmsir þeirra farnir í atvinnu til Suðurnesja og munu ráða sig þar fram á vorið. Virðist allt benda til þess að menn búist við löngu verkfalli. Hefja sölu á Perk- ins-Drá tta rvélu m Einn stærsti og þekktasti fram- leiðandi dieselvéla, Perkins Engin- es Ltd. hefir falið Dráttarvélum hf. umboð fyrir framleiðsluvörur sín- ar hérlendis. Perkins Engines Ltd. á sér tvö systurfyrirtæki, Perkins Outboard Motors Ltd. og Perkins Gasturbins Ltd. Öll eru fyrirtækin staðsett í Peterbourgh á Englandi. Þau framleiða léttbyggðar, hrað- gengar dieselvélar til notkunar í bílum, dráttarvélum og iðnaði, auk margra tegunda utanborðsmótora og gastúrbína. Perkins Engines Ltd. er aðeins 29 ára gamalt. Það hóf starfsemi sína litlu tilraunaverkstæði í Peterbourgh. Á þessum 29 árum hefir framleiðslan vaxið svo gífur lega að árið 1961 framleiddu fyrir- tækin samtals 250 þúsund diesel- vélar og mun framleiðslan komin upp i 1000 vélar hvern vinnudag. Er nú svo komið, að enginn fram- leiðandi dieselvéla 1 nefndum stærðarflokkum framleiðir og sel- ur fleiri vélar en Perkins. Þær er að finna um allan heim við hin ó- líkustu störf, enda eru verksmiðj- urnar heimsþekktar einmitt fyrir það að framleiða vélar fyrir hvers- konar kringumstæður. Dráttarvélar h.f. hafa undirbúið þjónustu sína fyrir Perkins til hins ítrasta og hafa kappkostað að afla sér sem mestra gagna og upp- lýsinga um framleiðsluvörur verk- smiðjanna. Allur sá undirbúningur hefur verið skipulagður með það fyrir augum að geta veitt við- skiptavinum sem beztar upplýsing- ar og þjónustu. Liggja nú þegar fyrir hjá umboðinu nákvæmir verð listar yfir hinar ýmsu vélar og fá- anlegan aukaútbúnað með þeim. — JttRuOA, BILHAPPDRÆTTI FUF Nú era a&eins 7 daaar, þar til dregib verBur um þennan glæs’dega Ford Consul 315 De Luk árgerð 1962. Kaupið miba úr bilnum i Austurstræti. Góðfúslega gerið skil i Tjamargötu 26, simi 12942. DREGIÐ 10. APRIL. Aðeins 8000 miðar. Allar upplýsingar um bilinn gefur Fordumboðið, KR. KRISTJÁNSSON, Suðurlandsbraut 2, — simi 3 53 00

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.