Tölvumál - 01.01.1988, Side 22
ingar megi sín meira en dómgreind. Ég hef reynt að árétta þá
skoðun, að siðmenning okkar hafi það því sem næst að trúarsetningu,
að þekking okkar á heiminum standi ekki undir nafni, nema hún sé
fengin frá vísindunum. Aðrar uppsprettur þekkingar er búið að
ómerkja: hugsun, innsæi, tilfinningu. Því verður líkjandi við farsótt,
er börnum okkar verður innrætt óupplýst, frumstæð og einfeldn-
ingsleg tölvudýrkun. Og í því mun tölvufræðslan í skólum að öllum
líkindum felast framar öðru. Svartsýni mín á framtíð menningar-
innar, sem svo ljós var í fyrstu útgáfu bókarinnar, á sér fulla
réttlætingu í þessu atriði einu saman, þótt ekkert kæmi annað til.
Vitaskuld hefði mér þótt vænt um að geta glatt breska lesendur mína
með því, að ástandið hafi batnað og hrakspár mínar frá 1976 hafi ekki
gengið eftir. En ef til vill er Bretland siðmenntaðra land en Banda-
ríkin. Sé það rétt, bið ég menn að taka orð mín til varnaðar.
Þýtt og endursagt: Jón R. Gunnarsson,
lektor, Háskóla íslands
- 22 -