Tölvumál - 01.03.1988, Page 6
FRÉTTAPISTILL
Marglitur tölvukostur
Stöð 2 vekur athygli fyrir margra hluta sakir. Það sem tölvumönnum
þykir athyglisvert er marglitur tölvukostur stöðvarinnar, sem
samanstendur af HP 9000 tölvu, MicroVAX II og 20 Wang PC vélum
sem tengdar eru saman með Novel netkerfi. Að auki má nefna að í
VAX-tölvum Verzlunarbankans eru áskriftarreikningar stöðvarinnar
unnir.
Alþingi kaupir WANG
Rétt þykir að vekja athygli á sölu Heimilistækja á Wang 7010 tölvu
til Alþingis, þrátt fyrir að fréttir af þeirri sölu hafi birst í dag-
blöðum. Ástæðan er sú, að í þessum pistli hefur áður verið sagt frá
því þegar Menntamálaráðuneytið og Húsnæðisstofnun, sem bæði notuðu
Wang búnað, ákváðu kaup á IBM 9370 í stað þess að skipta áfram við
Heimilistæki. Vegna þessa m.a. voru ýmsir ekki sérlega bjartsýnir á
að Alþingi myndi áfram halda sig við Wang. Þetta dæmi minnir okkur
á að oft er erfitt að spá fyrir um það sem gerist í tölvuheiminum.
Betri þjónusta
Póstur og sími hefur nú ákveðið að veita notendum gagnaflutnings-
netsins bætta þjónustu með því að stofna sérstaka gagnaflutnings-
deild. Forstöðumaður þessarar nýju deildar verður Karl Bender
verkfræðingur.
Skammvinn sæla
Sælan virðist hafa verið skammvinn í hjónasæng fyrirtækjanna
Rökvers og Hjarna. Eftir sameininguna töldu aðstandendur Hjarna
sig hafa vanmetið framlag sitt til búsins og vildu endurmeta og
breyta eignahlutaskiptingu í hinu nýja fyrirtæki. Á þetta vildu
Rökversmenn ekki fallast og gengu út.
- 6 -