Tölvumál - 01.03.1988, Síða 8
Á L I T A M Á L
Páll Jensson:
Fyrsta álitamál:
METNAÐARLAUS HÁSKÓLI
Sjá grein Stefán Ingólfssonar, ritstjóra, í síðasta hefti TÖLVUMÁLA.
Hér get ég verið stuttorður, því ég er sammála Stefáni í öllum
meginatriðum, einkum ef orðin "fullkomin og fjölbreytileg netþjón-
usta" eru sett í stað orðanna "ein öflug reiknitölva". Jóhann
Gunnarsson bendir á í Alþýðublaðinu 4. mars s.l. að "metnaðarleysið
lýsi sér í þeirri stefnu að láta Reiknistofnunina standa undir eigin
rekstri", sem átti vel við á sínum tíma en er úrelt nú við breyttar
aðstæður.
Undirrót þess að ekki er hægt að lifa á því að selja þjónustu til
rannsóknaraðila hérlendis er reyndar sú að þeir eru fjársveltir og
fátækir.
Ég tel mig vera einn þeirra draumóramanna, sem Stefán ræðir um,
sem trúa á það að íslendingar geti haslað sér völl á sviði upplýsinga-
tækni á alþjóðavettvangi. En til þess þarf bæði góða aðstöðu og ekki
síður sterkan stuðning við rannsóknir og þróunarstarf á þessu sviði.
Hér þarf að gera stórt átak, en meira um það á öðrum vettvangi.
Annað álitamál:
FRAMLEIÐNI OG TÖLVUR.
(sjá bls. 14)
í septemberhefti TÖLVUMÁLA 1986 birtist athyglisverð grein eftir
Stefán Ingólfsson, ritstjóra og hét hún "Framleiðni óbreytt í 20 ár".
Greinin er um margt merkileg og verðskuldar miklu meiri umræðu en
orðið hefur. Sigríður Á. Ásgrímsdóttir, verkfræðingur skrifaði einnig
ágæta grein í TÖLVUMÁL í framhaldi af grein Stefáns en annað hef
ég ekki séð í okkar ágæta blaði. Hins vegar heyrði ég að einhverjir
þingmenn hefðu vitnað í skrif Stefáns, sem er í sjálfu sér vel, svo
framarlega sem það leiðir til skynsamlegra ályktana.
- 8 -